Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gráturinn nísti hjörtu lögregluþjónanna-Telpa í náttkjól hélt á bangsa og sagði: „Ekki meiða pabba“

Gráturinn nísti hjörtu lögregluþjónanna-Telpa í náttkjól hélt á bangsa og sagði: „Ekki meiða pabba“
Jón Óðinn starf­aði um ára­bil sem lög­reglu­þjónn

„Það var gamlárs­kvöld. Þrír lög­reglu­menn saman á eft­ir­lits­ferð. Ég var yngstur, hinir tveir voru eldri og reynd­ari, þekktir fyrir mann­gæsku og umburð­ar­lyndi. Það var gott að vera með þannig mönnum í þessu starfi.“

Þannig hefst pistill­inn á vef Mannlífs eftir Jón Óðinn Waage fyrr­ver­andi lög­reglu­þjón og júd­ókenn­ara. Þeir höfðu fengið boð um að slags­mál hefðu brot­ist út í heima­húsi í ára­mótagleð­skap. Þetta útkall átti eftir að reyn­ast Jóni eitt það erf­ið­asta og sorg­leg­asta á ferl­inum. Úti­dyrnar stóðu opnar og hávaði gesta barst út á götu. Þegar inn var komið blasti við lög­reglu­þjón­unum dap­ur­leg sýn. Jón segir:

„Á stofu­gólf­inu velt­ust tveir menn um í átökum, báðir blóð­ugir. Eig­in­konur þeirra stóðu hjá og æptu á þá um að hætta. Öldruð móðir ann­ars manns­ins sat nið­ur­brot­inn í stofu­sóf­anum og hélt á korna­barni sem hágrét í fang­inu á henni. For­eldrar hins manns­ins, sem líka voru öldruð reyndu ítrekað að taka þátt í átök­unum, að því er virt­ist til að koma syni sínum til aðstoðar frekar en til að stilla til friðar“.

Í hús­inu voru einnig mörg börn, sum á leik­skóla­aldri. Jón heldur áfram:

„Það sem var verst var að þarna voru mörg ung börn, flest langt innan við ferm­ingu og nokkur á leik­skóla­aldri. Sum voru sem lömuð af skelf­ingu, önnur reyndu að grát­biðja feður sína um að hætta.“

Ekki var nokkur leið að fá hina sauð­drukknu karl­menn til að hætta slags­mál­unum. Jón hélt öðrum mann­inum niðri á meðan félagar hans tveir tóku með valdi á hinum slags­mála­hund­inum. Á sama tíma gerðu for­eldrar manns­ins lög­regl­unni erfitt fyrir og réð­ust á lög­reglu­þjón­anna.

„Framkoma gamla fólks­ins gerði illt verra, sonur þeirra æst­ist allur upp og það gerði konan hans líka þegar reynt var að hafa hemil á gömlu hjón­unum. Við þetta bætt­ist barns­grát­ur­inn, öll börnin voru nú farin að gráta hástöfum, hljóðin úr þeim voru átak­an­leg og nístu hjörtu okkar. Þetta var ekki sú fjöl­skyldu­skemmtun sem þau höfðu von­ast eftir,“ segir Jón Óðinn. Eftir nokkra stund tókst lög­reglu­þjón­unum að færa ofbeld­is­menn­ina í hand­járn. Þá var kallað eftir aðstoð. Þegar Jón Óðinn var á leið með sinn mann í járnum út í bíl var hann stöðv­aður af dóttur manns­ins. Jón segir:

„Í for­stof­unni stóð lítil stúlka. Hún var í nátt­kjól og hélt krampa­kenndu taki um bangs­ann sinn með annarri hendi. Litla stúlkan horfði á mig grát­bólgnum augum, hún teygði fram lausu hönd­ina til mín og sagði skjálf­andi röddu:

„Ekki meiða pabba minn.“

Jón Óðinn segir að lokum:

„Þetta var mitt fyrsta útkall þar sem börn voru fórn­ar­lömb áfeng­is­neyslu full­orð­inna. Því miður ekki það síð­asta.“

Hér má lesa pistil Jóns Óðins í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við