Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bomba Bergþóru: Opna bréfið sem fer líkt og stormsveipur um Facebook

Bomba Bergþóru: Opna bréfið sem fer líkt og stormsveipur um Facebook

Opið bréf sem Bergþóra Ein­ars­dóttir ritar til Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Facebook hefur vakið mikla athygli. Þar gagn­rýnir Bergþóra fjár­mála­ráð­herra harð­lega. Bergþóra á barna­barn sem bundin er við hjóla­stól og þarf dag­lega aðstoð. Barna­barnið hefur ekki séð kærasta sinn í fimm mán­uði vegna COVID. Dóttir Bergþóru er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og heldur sig heima á milli vakta til að draga úr lýkum að bera smit inn á vinnu­stað­inn. Bergþóra segir:

„Það er hart að lesa frá þér afsök­un­ar­beiðni þar sem þú biðst afsök­unar – rétt eins og þú hafir óvart stigið á tærnar á mér í ein­hverri N1-sjopp­unni.“

Hér fyrir neðan má lesa bréfið frá Bergþóru sem hefur farið eins og storm­sveipur um sam­fé­lags­miðla.

„Bless­aður og sæll, Bjarni,

Mig langar að segja þér, að ég á barna­barn, sem er alger­lega bundið í hjóla­stól og þarf aðstoð við allar dag­legar þarfir. Hún hefur ekki getað farið til vinnu – þrjá morgna í viku – frá því í mars á þessu ári. Hún horfir og hlustar sam­viku­sam­lega á alla upp­lýs­inga­fundi vegna veirunnar og hefur farið í einu og öllu eftir þeim fyr­ir­mælum sem þar hafa verið sett fram.

Hún býr í íbúða­kjarna fyrir fatl­aða og hefur haldið sig alveg inni í sínu her­bergi, fer ekki fram í sam­eig­in­lega rýmið og fjöl­skyldan hefur komið í mýflugu­mynd í garð­dyrnar hjá henni.

Hún hefur á þessu tíma­bili farið einu sinni út – fór út á póst­hús til að setja pakka í póst til kærastans síns, sem hún hefur ekki séð í fimm mán­uði.

Ég á dóttur sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Hún gengur til sinna dag­legu starfa með gerð­ar­dóm á bak­inu eins og allir hjúkr­un­ar­fræð­ingar. Þú veist kannski af þessum dómi. Hún hefur þetta ár farið til vinnu sinnar á sjúkra­hús­inu og heim aftur. Eig­in­lega ekk­ert meira. Hún vill ekki fá smit og bera það til sjúk­linga og sam­starfs­fólks.

Yngri dóttir hennar átti sjö ára afmæli fyrir þremur dögum. Þrjár upp­á­halds­frænkur komu með pakka til hennar, settu hann í stig­ann, veif­uðu, brostu og sendu fing­ur­kossa úr rúm­lega tveggja metra fjar­lægð.

Svona virðir fólk reglur sem ráða­menn setja.

Ég þekki hjón, sem hafa haldið sig að mestu í sum­ar­bú­stað allt árið, koma stöku sinnum heim til sín og hitta varla nokkurn mann. Þótt kærir vinir myndu hringja og biðja þau að koma á sölu­sýn­ingu mál­verka, þar sem kannski tíkall af milljón rennur til fátækra, myndu þau aldrei láta sér detta í hug að ansa því. Þau myndu segja:

„Hittumst þegar veiran er farin.“

Allir sem ég þekki og eru í sam­bandi, gæta sín, leit­ast við að vera í sem minnstu sam­bandi við aðra, hitta alls ekki ókunn­uga og fara helst ekki neitt.

Það er til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu heims­far­ald­urs, sem heldur heims­byggð­inni í helj­ar­g­reipum, ef það skyldi hafa farið fram hjá þér.

Þess vegna er hart að þurfa að hlusta á fréttir af Þórdísi Kolbrúnu, sem fór í spa og kvöld­mat í þéttum hópi vin­kvenna, af Víði sem var næstum með umferð­ar­mið­stöð heima hjá sér, af Þorgerði Katrínu, sem laum­að­ist í golf og af ráð­herra­hjón­unum – þér eig­in­konu þinni – í partíi sem greini­lega var ekki að ljúka þegar það var stöðvað.

Það er hart að heyra að það taki þig góðan stund­ar­fjórð­ung að telja upp að tíu í sal þar sem eru hátt í fimm­tíu manns.

Og það er hart að lesa frá þér afsök­un­ar­beiðni þar sem þú biðst afsök­unar – rétt eins og þú hafir óvart stigið á tærnar á mér í ein­hverri N1-sjopp­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag