Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rifrildið endaði með því að pabbi skaut sig í hausinn: „Hvíldu í friði, pabbi. Ég elska þig.“

Rifrildið endaði með því að pabbi skaut sig í hausinn: „Hvíldu í friði, pabbi. Ég elska þig.“

„Einn dag­inn datt pabbi í það og drakk fram á næsta morgun. Um morg­un­inn rifust for­eldrar mínir og end­aði það rifr­ildi með því að pabbi fór fram í for­­­stofu og skaut sig í haus­inn. Við skot­hljóðið vökn­uðu bræður mínir.“

Þetta kemur fram í pistli eftir Snærúnu Ösp Guð­munds­dóttur, hjúkr­un­ar­fræð­ing, á vef Mannlífs. Þar fjallar Snærún um hugs­an­leg hættu­merki þeirra sem glíma við þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir og bendir á hættu­merkin, sem eru ekki alltaf aug­ljós en kunna að vera til staðar. Snærún tjáir sig einnig við Mannlíf og opnar sig um þöggun sam­fé­lags­ins og hvernig hún mátti þola háðs­glósur frá öðrum krökkum vegna sjálfs­vígs föður hennar.

Mörg ár að vinna úr sársaukanum

Und­an­fari sjálfs­vígstil­raunar getur verið langur og flók­inn. Þá er oft um tíma­bundna röskun að ræða og fólk sem fær aðstoð sér­fræð­inga eiga mögu­leika á að lifa góðu lífi í sátt við aðra og sjálfa sig, fái þeir fag­lega ráð­gjöf. Þá má ekki gleyma aðstand­endum og áhrif sjálfs­víga á þau sem standa þeim veika næst. Mörg ár getur tekið að vinna úr sárs­auk­anum og sumir kom­ast aldrei yfir að missa nákom­inn ætt­ingja sem tekur eigið líf. Snærún birti fyrst umfjöllun um föður sinn fyrir nokkru síðan og í sam­tali við Mannlíf kveðst hún hafa fengið fjöl­mörg skila­boð frá vinum og ætt­ingjum sem þökk­uðu henni fyrir að tala á opin­skáan hátt um reynslu sína.

Stoltur af börnunum og góður við fjölskylduna

Faðir Snærúnar

Faðir Snærúnar lést þann 15. Mars 1981, þá aðeins 31 ár. Hann átti konu og þrjú börn. Drengirnir voru 8 og 7 ára en Snærún 1 árs. Faðir hennar var góður náms­maður sem fékk glimr­andi ein­kunnir og út­skrif­að­ist í bú­fræði frá Há­skól­anum á Hólum. Hann var bóndi allt sitt líf og á bænum voru kýr, kindur, hænur og hestar. Þá rækt­aði hann hesta sem hann seldi til Þýska­lands.

„Á­­fengið var hans böl og átti eftir að taka yfir hans líf,“ segir Snærún og telur föður sinn hafa glímt við þung­lyndi.

.„Hann var góður og blíður maður, með hjarta úr gulli. Hann var góður við fjöl­­skyld­una og svo stoltur af börn­unum sínum en þegar hann var undir á­hrifum þá breytt­ist hann. Hann var aldrei vondur við börnin sín en þegar hann reidd­ist lét hann það senni­­lega bitna mest á mömmu.“

Örlagaríkur morgun

Þann 14. mars árið 1981 hóf faðir Snæ­rúnar drykkju sem stóð fram eftir nóttu.

„Um morg­un­inn rifust for­eldrar mínir. Það rifr­ildi end­aði með því að pabbi fór fram í for­stofu og skaut sig í haus­inn. Við skot­hljóðið vökn­uðu bræður mínir. Á bænum bjó gam­all maður sem vann hjá okkur, hann fór að at­huga með pabba á meðan mamma fór til bræðra minna til að huga að þeim.“

Árið 1981 þótti mikil skömm ef mann­eskja framdi sjálfs­víg. Það mátti aldrei tala um það sem hafði gerst. Engin áfalla­hjálp var í boði. Móðir hennar fékk eina svefn­töflu, það var allt og sumt. Það var engin frek­ari aðstoð eða eft­ir­fylgni. Harm­leikir á borð við sjálfs­víg voru þagg­aðir niður á þessum árum.

Sagt að um slys hefði verið að ræða

Faðir Snærúnar

Snærún segir bræður sína hafa neyðst til að takast á við marg­vís­leg vanda­mál eftir þetta mikla áfall.

„Þetta var svo mikil skömm, það mátti aldrei tala um þetta. Mér var sagt að pabbi hafi dáið í slysi og var ég orðin sirka sjö ára þegar ég kemst að því hvernig hann dó,“ segir Snærún og kveðst lengi hafa átt erfitt með að tjá sig um and­lát föður síns. Hún telur lík­legt að þar hafi skömmin sem inn­prentuð var á þessum árum haft áhrif. Nýverið treysti hún sér til að stíga fram og opna sig um það sem gerð­ist og um leið von­ast til að hennar frá­sögn gæti hjálpað öðrum. Fólk sem hafði þekkt Snærúnu í mörg ár höfðu ekki nokkra hug­mynd um þennan mikla harm­leik.

Saknar pabba

„Ég hef síð­ast­liðið ár rætt þetta opin­­skátt við fólk ef það spyr mig. Mér finnst alltaf erf­ið­ast að fá við­­brögð þeirra sem spyrja mig hvernig pabbi dó. Fólki finnst ó­­þægi­­legt að heyra þetta og ég skil það mjög vel,“ segir Snærún og bætir við að hún teng­ist föður sínum sterkt og ræt­urnar liggi djúpt. Hún bætir við:

„Þrátt fyrir að ég hafi aldrei þekkt hann, þá sakna ég hans á hverjum degi. Ég hefði viljað kynn­ast honum og að börnin mín hefðu fengið að kynn­ast honum.“

Hún fagnar því að tím­arnir séu að breyt­ast, að umræðan um sjálfs­víg sé að opn­ast. Það er þó mikið verk að vinna. Umræðu um sjálfs­víg megi alls ekki þagga niður. Þá segir Snærún:

„Það veldur á­hyggjum hve sjálfs­vígs­­tíðni karla undir 25 ára hefur auk­ist undan­farna ára­tugi.“

Snærún Ösp Guð­munds­dóttir

Sjálfsvígstíðni aukist á meðal ungra karlmanna

Snærún deilir í pistli sínum ýmsum fróð­leik um sjálfs­víg og sjálfs­vígs­hættu. Hún bendir einnig á nöt­ur­lega stað­reynd en í hverjum mán­uði fremja þrír til fjórir Ís­lend­ingar sjálfs­morð. Þar eru karl­menn í miklum meiri­hluta. Þá veldur það Snærúnu áhyggjum hve sjálfs­vígs­tíðni karla undir 25 ára aldri hafi auk­ist und­an­farna ára­tugi.

„Ungir karl­­menn, sér­­stak­­lega hafi þeir ekki náð að marka sér stefnu í sam­­fé­lag­inu, verða utan­­veltu, hvat­vísir karl­menn. Einnig ungir karl­menn og konur sem glíma við alvar­lega fíkni­sjúk­dóma,“ segir Snærún og bendir á að karl­menn utan sam­búðar og fangar séu í áhættu­hópi. Þá eru konur sem komnar eru yfir miðjan aldur í meiri hættu en yngri konur. Þá er tíðnin einnig há hjá karl­mönnum eldri en 85 ára og eins ein­stak­lingar sem verða fyrir áföllum.

Var strítt vegna sjálfsmorðsins

Snærún bendir fólki sem glímir við dep­urð að hafa sam­band við Píeta­sam­tökin eða hjálp­ar­síma Rauða kross­ins. Einnig standi til boða hjálp á bráða­mót­töku geðsviðs og þar er boðið uppá við­tal.

Aðspurð hvort það sé enn þá erfitt að ræða um sjálfs­vígið við annað fólk eða hvort það hafi breyst svarar Snærún:

„Það er akkúrat það sem er erf­ið­ast við að segja frá því hvernig pabbi dó, það eru við­brögð fólks. Fólk veit ekki hvað það á að segja eða hvernig það á að vera, and­rúms­loftið verður því oft óþægi­legt og fólk verður oft vand­ræða­legt í sam­skiptum við mig lengi á eftir,“ segir Snærún í sam­tali við Mannlíf. Hún bætir við að þetta hafi sem betur fer breyst.

„Þegar ég var lítil og fram til sirka tví­tugs, þá voru mun meiri for­dómar gagn­vart sjálfs­vígum. Það var mikil þöggun um þetta mál í fjöl­skyld­unni og var helst ekki talað um pabba,“ segir Snærún og bætir við að hún hafi orðið fyrir aðkasti að hálfu ann­arra krakka vegna harm­leiks­ins.

„Mér var strítt á því hvernig pabbi dó af öðrum krökkum og ein stelpa í bekknum mínum mátti ekki leika við mig af því að pabbi hafði tekið líf sitt,“ segir Snærún og bætir við:

„Núna er umræðan svo mikið opn­ari og mun minni for­dómar. Þetta er samt enn þá heil­mikið tabú.“

„Hvíldu í friði, pabbi. Ég elska þig.“

Víkjum þá aftur að pistl­inum. Þar leggur Snærún þunga áherslu á að frá­sögn hennar snú­ist ekki bara um föður hennar og harm­leik­inn og eft­ir­köst hans.

„Heldur langar mig að fara yfir fræði­­legar og tölu­­legar stað­­reyndir um sjálfs­víg,“ segir Snæ­rún en pistil hennar má lesa í heild hér. Hún segir að lokum:

„Hvíldu í friði, pabbi. Ég elska þig.“

Hér má lesa pistil Snæ­rúnar í heild sinni þar sem einnig er fjallað ítar­lega um hvaða að­stoð stendur til boða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina