Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ævintýralegar eignir World Class fjölskyldu: Mamma keypti 150 milljóna íbúð

Ævintýralegar eignir World Class fjölskyldu: Mamma keypti 150 milljóna íbúð

Eigendur World Class, þau Björn Leifsson og Hafdís Jóns­dóttir standa í miklum fjár­fest­ingum á sama tíma og fyr­ir­tæki þeirra glímir við mikla erf­ið­leika. Hafdís keypti 180 fer­metra penthouse íbúð í Skugga­hverfi fyrir 150 millj­ónir króna um miðjan októ­ber. Heim­ildir Mannlífs herma að dóttir, hjón­anna, áhrifa­vald­ur­inn og mark­aðs­stjóri World Class, Birgitta Líf, hafi fengið íbúð­ina til búsetu. Birgitta seldi 105 fer­metra lúxus­í­búð í Skugga­hverf­inu á síð­asta ári. Þá íbúð stað­greiddi Birgitta á sínum tíma og var kaup­verðið 63 millj­ónir króna. Hún seldi síðan íbúð­ina á 67 millj­ónir. Birgitta er nú skráð með lög­heim­ili í lúxus­í­búð­inni að Vatns­stíg 14.

Hjónin í World Class eru þess utan að end­ur­byggja hús á sjáv­ar­lóð á Arn­ar­nesi. Talið er að kostn­aður hlaupi á hund­ruðum millj­óna króna eðða allt að  800 millj­ónum króna. Fyrir fjórum árum keyptu þau lóð­ina við Haukanes 22, sem áður í eigu Hjör­leifs Jak­obs­sonar fjár­festis sem var búinn að láta teikna húsið og byrj­aður að steypa grunn­inn. Nú hafa hjónin steypt húsið upp. Þess utan eiga hjónin hús að  Árlandi í Fossvogi. Enn ein hús­eign þeirra er í þjóð­garð­inum á Þing­völlum þar sem þau festu á sínum tíma kaup á glæsi­legu sum­ar­húsi á besta stað sem metið er á langt yfir 100 millj­ónir króna. Fjár­fest­ing þeirra í íbúð­ar­hús­næði hleypur því á rúmum millj­arði króna.

Höll hjón­anna í World Class á Arn­ar­nesi er smám saman að rísa þótt lítið sé að ger­ast í augna­blik­inu. Einn blikk­smiður að störfum.

Björn Leifsson hefur nokkrum sinnum stigið fram og bar­mað sér vegna erf­iðrar rekstr­ar­stöðu World Class sem hann segir að hafi tapað millj­arði króna á Covid. Hann hefur sagt upp fjölda starfs­manna heilsu­rækt­ar­stöðva sinna og óvissa ríkir um  fram­haldið.

Ljóst er að mikið verk er óunnið áður en glæsi­húsið á Arn­ar­nesi verður til­búið. Lítið hefur gerst í fram­kvæmdum þar en þó var blikk­smiður að störfum þar í dag. Næsti nágranni Dísu og Bjössa á Arn­ar­nes­inu er athafna­mað­ur­inn, Anton Kristinn Þór­ar­ins­son, sem á hús­grunn­inn við hlið­ina.  Þar voru iðn­að­ar­menn að störfum. Anton keypti húsið og reif til grunna. Kaup­verðið á því húsi var um 120 millj­ónir krónur. Húsið var áður í eigu Rasmus Rojkjaer, fyrr­ver­andi for­stjóra Alvotech á Íslandi. Anton lét jafna húsið við jörðu og er að byggja nýtt á lóð­inni. Rétt eins og hjá World Class-hjón­unum er tals­vert í land með að Anton klári húsið. Ekki er ólík­legt að nágrann­arnir í Hauka­nesi flytji inn á svip­uðum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð