Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Óumbeðnar typpamyndir: „Æi, dúllulegur svona pínulítill“

Óumbeðnar typpamyndir: „Æi, dúllulegur svona pínulítill“
Mynd / Pexels

Óumbeðnar typpamyndir – eiga þær að hífa upp sjálfstraustið hjá óöruggum körlum?

Óum­beðnar eða ósam­þykktar typpa­myndir eru ógeðs­legar. Sorrí, strákar. Það er algjört lág­mark að spyrja alla vega hvort þið megið senda mynd af ferm­ing­ar­bróð­urnum. Ég veit að ég tala ekki fyrir allar konur en þessar myndir koma mörgum okkar ekki í stuð og sumum finn­ast slíkar mynda­send­ingar vera nið­ur­lægj­andi, jafn­vel ógn­vekj­andi.

Fyrir nokkrum vikum fékk ég vina­beiðni á Facebook frá ókunn­ugum manni. Hann var aug­ljós­lega giftur með nafn eig­in­kon­unnar í hjú­skap­ar­upp­lýs­ingum og með mynd af kon­unni sinni í prófílnum. Við áttum nokkra sam­eig­in­lega vini svo ég sam­þykkti hann. Ég var varla búin að smella á „sam­þykkja vina­beiðni“ þegar hann sendi mér skila­boð:
„Úbbs, sendi ég þér vina­beiðni?“ Broskarl.

Upp frá þessu spruttu sam­ræður okkar á milli, ég átti afmæli þennan dag og hann sagð­ist eiga afmæli eftir nokkra daga og við vorum sam­mála um að stjörnu­merkin okkar væru þau bestu og svona. Áður en ég vissi af og án nokk­urrar ein­ustu ástæðu var hann búinn að senda mér mynd af typp­inu á sér. Hafandi fengið slíkar óum­beðnar myndir áður, og ver­andi búin að fá meira en nóg af þeim, sagði ég:
„Nei, oj! Ertu að senda mér mynd af typpi á litlum dreng?“

Ég heyrði ekki frá honum meir. En svona geta jafn­vel giftu menn­irnir með mynd af kon­unum sínum í prófíl á Facebook verið úlfar í sauð­ar­gæru.

„Kannski spyrja þessir kjánar ekki hvort maður vilji fá mynd af djásn­inu af því að allar líkur eru á að svarið verði nei.“

Hvers vegna senda karlar konum óum­beðnar typpa­myndir?
Í rann­sókn sem gerð var meðal 1,087 gagn­kyn­hneigðra karla um slíkar mynd­send­ingar og birt var í Journal of Sex Research kom fram að menn sendu slíkar myndir í von um að fá svip­aðar myndir eða eitt­hvað kyn­ferð­is­legt efni til baka eða þeir myndu græða hitt­ing og kyn­líf út á mynd­irnar af djásn­inu. Nið­ur­stöður bentu til að þátt­tak­endur sækt­ust helst eftir jákvæðum við­brögðum með þessum mynda­send­ingum, til dæmis að þeir fengju að heyra það að þeir væru flottir og aðlað­andi. (Er það þá ekki bara spurn­ing um Dale Carnegie-nám­skeið til að rífa upp sjálfs­traustið?)

Hins vegar sögð­ust um 10% þátt­tak­enda sam­þykkir full­yrð­ing­unni: Þegar ég sendi typpa­mynd finnst mér ég hafa vald yfir mann­eskj­unni sem ég sendi mynd­ina á. Og næstum 6% þátt­tak­enda sögð­ust sam­þykkir því að þeir hefðu andúð á konum og það væri því full­nægj­andi að senda typpa­myndir. Sem sagt, mér sýn­ist að þeir karlar sem senda typpa­myndir séu ann­að­hvort með núll sjálfs­traust eða í veru­legum vand­ræðum and­lega. Nema hvort tveggja sé.

Allar líkur á að svarið verði nei
Það er lík­lega engin ein ástæða fyrir því að karlar sendi typpa­myndir, það er sjálf­sagt mis­jafnt eftir hverjum og einum. Og lík­lega er ekki auð­velt að stoppa þetta. Ekki fyrr en Messen­ger, Snapchat, Instagram og hvað þetta allt heitir verður komið með ein­hvern skynjara sem stoppar slíkar send­ingar.

Ég veit að ég er ekki ein um að vilja ekki lengur svona óum­beðnar eða ósam­þykktar mynda­send­ingar. Kannski spyrja þessir kjánar ekki hvort maður vilji fá mynd af djásn­inu af því að allar líkur eru á að svarið verði nei. Það getur samt auð­vitað vel verið að ein­hverjar konur séu þyrstar í slíkar myndir, og verði þeim að góðu, en það er almenn kurt­eisi að spyrja fyrst áður en þær eru sendar. Þarna kemur sam­þykkið inn. Leyfum þeim sem það vilja að svara ját­andi og þiggja typpa­myndir en við hinar sem viljum ekki sjá þær megum segja nei og sleppa við þær og málið er dautt.

Hug­myndir að svörum við óum­beðnum typpa­myndum:
• Af hverju er litlifingur á þér svona skrýt­inn?
• Jess, á ég að gefa ein­kunn? Ókei, 0 af 10 mögu­legum.
• Úff, þú ættir að láta lækni kíkja á þetta.
• Æi, dúllu­legur svona pínu­lít­ill.
• Það er eins og þú hafir legið of lengi í baði og hann sé orð­inn að rús­ínu!
• ??? Ég sé ekki neitt!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur