Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kolgrafarvík kemur í bæinn: ,,Heillandi og óhugnanleg sýning“

Kolgrafarvík kemur í bæinn: ,,Heillandi og óhugnanleg sýning“

,,Þetta er mikið ævin­týri. Sýningin höfðar jafnt til leik­skóla­barna sem gam­alla Stranda­manna. Við erum bæði að sýna rusl­sögu hálfrar aldar og ein­staka nátt­úru Árnes­hrepps. Við þurfum að bæta þann skaða sem við höfum valdið líf­ríki strand­lengj­unnar með sinnu­leysi og sóða­skap,“ segir Hrafn Jök­uls­son sem þessa daga stendur ásamt Ver­ald­ar­vinum fyrir sýn­ing­unni ,,Kolgraf­ar­vík kemur í bæinn“.

Hrafn hefur síðan í fyrra­vor helgað sig hreinsun strand­lengj­unnar og hann ákvað strax í maí að afrakst­ur­inn færi á sýn­ingu:

,,Ég byrj­aði í minni ást­kæru Kolgraf­ar­vík 13. maí og ákvað að helga mig frelsun líf­ríkis strand­lengj­unnar í fjögur ár. Í Kolgraf­ar­vík er í raun um forn­leifa­rann­sóknir að ræða því lang­mest vinna fer í jarð­vegs­hreinsun. Elsta draslið hefur verið þarna í hálfa öld og við erum að hreinsa plast niður á 30-40 senti­metra dýpi langt upp af fjöru­kömbunum. Það tekur þús­undir vinnu­stunda að hreinsa Kolgraf­ar­vík almenni­lega en við erum komin vel á veg.“

Fjöl­margir hafa lagt leið sína á Geirs­götu 11 við Reykja­vík­ur­höfn að skoða sýn­ingu Hrafns og Ver­ald­ar­vina. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son lands­lags­arki­tekt, sem ætt­aður er úr Árnes­hreppi, sagði í umsögn sinni:

,,Sýningin er mikið undur og segir magn­aða sögu af vist­kerfi reka­fjör­unnar í Stranda­sýslu. Kolgraf­ar­vík í Árnes­hreppi verður í fram­setn­ingu Hrafns ekki ein­göngu vist­kerfi eða sögu­svið, víkin verður ekki bara lands­lags­heild eða auð­lind heldur verður hún líka hug­tak og frá­sögn, afhjúpun og svo gott sem miðja sam­tím­ans. Fram­setn­ing rek­ans á sýn­ing­unni leiðir mann í gegnum sögu neyslu­menn­ingar, and­vara- og skeyt­inga­leysis, átt­haga­tryggðar og hug­sjóna­mennsku.“

Anna Kristín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður, hvetur unga sem aldna til að skoða sýn­ing­una og í sama streng tekur Árni Gunn­ars­son:

,,Þessi sýn­ing er merki­leg til­raun til að vekja þjóð­ina til umhugs­unar um ömur­legt ástand í landi, sem íbú­arnir lýsa stundum sem hrein­asta landi í heimi. Öll börn og ung­lingar eiga erindi á þessa sýn­ingu, kenn­arar og umráða­menn unga fólks­ins, Það er ekki minni þörf á því, að við sem eigum að heita full­orðin og ,,þroskuð“ lítum inn hjá Hrafni og félögum.“

Þór Jak­obs­son veð­ur­fræð­ingur hvetur alla til að skoða sýn­ingu Hrafns og Ver­ald­ar­vina:

,,Það var bæði heill­andi og óhugn­an­legt að koma í heim­sókn í Pakk­húsið…  Vonandi hafa nú höf­uð­borg­ar­búar rænu á að ranka við sér og koma í stríðum straumum niður á höfn, sjá sýn­ing­una og láta sann­fær­ast um að oft hafi verið þörf en nú nauð­syn að bregð­ast við og taka þátt í að hreinsa strendur lands­ins.“

Sýningin er opin alla daga klukkan 14 til 17, Geirs­götu 11 við Reykja­vík­ur­höfn. Aðgangur er ókeypis og sýn­ing­unni lýkur 20. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag