Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Samherji sakar blaðamenn um að „vera á ferðinni“ og herja á Akureyringa eins og undirheimahrottar

Samherji sakar blaðamenn um að „vera á ferðinni“ og herja á Akureyringa eins og undirheimahrottar

Samherji hefur látið gera töl­fræði­lega sam­an­tekt á hversu oft Stundin hefur fjallað um fyr­ir­tækið síð­ustu ár. Líkt og flestir Íslend­ingar vita hefur Samherji verið til umfjöll­unar vegna mála tengd Seðla­bank­anum og þá hefur fyr­ir­tækið verið sakað um spill­ingu og glæp­sam­leg athæfi í Namibíu.

Í ómerktri grein á heima­síðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins er því haldið fram að alvar­legt ójafn­vægi sé í umfjöllun Stund­ar­innar og til­gangur útgáf­unnar virð­ist fyrst og fremst að ráð­ast á Samherja. Þá eru blaða­menn Stund­ar­innar sak­aðir um að „vera á ferð­inni á Akureyri“ til að þefa uppi nei­kvæðar fréttir um Samherja. Líkja Sam­herj­a­menn vinnu­brögðum blaða­manna Stund­ar­innar við vinnu­brögð und­ir­heima­hrotta.

Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar, svarar Sam­herj­a­mönnum fullum hálsi í yfir­lýs­ingu sem hann birtir á sam­fé­lags­miðlum. Segir hann ásak­anir um fram­ferði blaða­manna á Akureyri vera þvætt­ing. Þá færir Jón Trausti rök fyrir því af hverju Samherji sé oftar á síðum Stund­ar­innar en önnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki.

Blaðamenn sagðir helteknir af Samherja

Á heima­síðu Samherja birt­ist löng yfir­lýs­ing með alvar­legum ásök­unum í garð Stund­ar­innar og blaða­manna sem þar starfa. Blaða­menn Stund­ar­innar eru sak­aðir um að vera hel­teknir af félag­inu. Á heima­síðu Samherja segir:

„ … nú þegar þeir eru orðnir uppi­skroppa með umfjöll­un­ar­efni hafa þeir sent útsend­ara sína á Eyja­fjarð­ar­svæðið þar sem þeir hafa dvalið dögum saman og freistað þess að ná fram nei­kvæðum ummælum Norð­lend­inga um félagið.“

Samherji sakar einnig Inga Frey Vil­hjálms­son um að hafa horn í síðu Samherja frá þeim árum er hann starf­aði á DV. Stundin er sögð hafa Samherja á heil­anum og hefur kort­lagt skrif Inga Freys, sem þykir einn besti rann­sókn­ar­blaða­maður í fag­inu og marg­verð­launar sem slíkur. Þar segir að Ingi Freyr hafi skrifað 143 fréttir og frétta­skýr­ingar í prentút­gáfu Stund­ar­innar og 60 þeirra eða 41,9% hafi fjallað um Samherja. Í yfir­lýs­ingu Samherja segir:

„Það eru mörg stór­fyr­ir­tæki á Íslandi en Ingi Freyr virð­ist lítið fjalla um þau enda er áhuga­svið hans mjög þröngt eins og þessi töl­fræði sýnir. Hversu hátt þarf hlut­fall að vera til að telj­ast þrá­hyggja? Hversu reglu­leg þurfa skrifin að vera til þess að geta talist ein­elti?“

Segir blaðamenn þefa uppi neikvæðni

Á öðrum stað segir á vef Samherja að hlut­verk fjöl­miðla sé að veita aðhald en vald­inu fylgi ábyrgð og fjöl­miðlar því ekki hafnir yfir gagn­rýni. Telur Samherji það ekki eðli­legt hversu oft Samherji hafi verið til umfjöll­unar á síðum Stund­ar­innar.

„Að reyna að verja slíkt og segja það eðli­legt gengur í ber­högg við heil­brigða skyn­semi,“ segir á vef Samherja sem segir þrá­hyggju Stund­ar­innar eiga sér ýmsar birt­ing­ar­myndir.

„Að und­an­förnu hafa blaða­menn Stund­ar­innar verið á ferð­inni á Akureyri í því skyni að finna nei­kvæðar fréttir um Samherja. Þannig hafa þeir sótt á bæj­ar­stjóra og bæj­ar­full­trúa með hring­ingum úr óskráðum síma­núm­erum eins og tíðkast í und­ir­heimum, mætt óboðnir á starfs­stöðvar fjöl­miðla með fyr­ir­spurnir um rekstur þeirra og sótt á fólk á förnum vegi við dag­leg störf.

Virðist sú yfir­gengi­lega umfjöllun Stund­ar­innar, sem verið hefur í blaði og vef­miðli og áður var rakin, vera komin á nýtt stig ein­eltis og ofstækis.“

Unnið í samstarfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera

Jón Trausti Reyn­is­son, birtir yfir­lýs­ingu á Facebook ásamt meðrit­stjóra sínum, Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur, rit­stjóra Stund­ar­innar og Inga Frey Vil­hjálms­syni rann­sókn­ar­blaða­manni Stund­ar­innar. Þar útskýrir Jón Trausti hvenær og hvernig umfjöllun um Samherja kom til. Meiri­hluta árs­ins 2019, vann Ingi Freyr umfjöllun um greiðslur Samherja til emb­ættis- og stjórn­mála­manna í Namibíu, meðal ann­ars í gegnum net aflands­fé­laga. Jón Trausti útskýrir:

„Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. Stundin hefur þá sér­stöku rit­stjórn­ar­stefnu að kafa dýpra ofan í mál og veita valda­miklum aðilum aðhald, ekki síst þegar þeir gefa til­efni til þess með athæfi sínu. Hug­myndin með því er að sterk rann­sókn­ar­blaða­mennska sé mótefni við spill­ingu og auki heil­brigði og seiglu sam­fé­lags­ins.“

Þá spyr Jón Trausti hvað það þýði að eitt stærsta fyr­ir­tæki Íslands dæli pen­ingum í vasa stjórn­mála­manna og emb­ætt­is­manna til að fá vilja sínum fram­gengt og hagn­ast enn frekar. Þá bendir Jón Trausti á að Samherji hafi gefið stóran hlut í Morg­un­blað­inu til Eyþórs Arndal, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni. Jón Trausti segir:

„Hversu náin tengsl eru milli stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins og ráð­herra mála­flokks­ins, sem var staddur fyrir til­viljun á fundi með mútu­þeg­unum? Fjöl­margar spurn­ingar vakna og blaða­menn hafa eftir bestu sam­visku reynt að varpa ljósi á þær. Ein af spurn­ing­unum sem er ósvarað er félags­fræði­leg áhrif slíks stór­fyr­ir­tækis á nær­sam­fé­lag sitt.“

Borga fyrir umfjöllun á Youtube

Jón Trausti bendir síðan á ein­falda stað­reynd og segir hana skýra af hverju Samherji hafi oft veið til umfjöll­unar á síðum Stund­ar­innar. Það teng­ist ann­ars vegar stefnu Stund­ar­innar og hins vegar fram­ferði Samherja hér heima og í erlendis sem og völdum þeirra. Jafn­framt bendir Jón Trausti á að Samherji hafi fram­leitt heim­ild­ar­myndir sem hafa verið birtar á Youtube. Mynd­banda­veit­unni hefur verið greitt sér­stak­lega fyrir að koma efn­inu sem víð­ast. Þannig hafa íslenskir not­endur vitnað um það að mynd­skeið Samherja hafi byrjað að spil­ast á eftir barna­efni á Youtube. Eftir að hafa greitt fyrir birt­ingu hefur Samherji hreykt sér af áhorfi, sem eng­inn veit þó hvað er mikið í raun og veru. Í mynd­bönd­unum eru fjöl­miðla­menn gerðir tor­tryggnir.

Lygar um Akureyri

Jón Trausti sakar Samherja um að fara með ósann­indi um meinta veru blaða­manna á Akureyri og vísar þeim frá­sögnum til föð­ur­hús­anna.

„Í með­fylgj­andi „Sam­herj­a­f­rétt“ er Stund­inni líkt við und­ir­heima­starf­semi og færð fram ósann­indi um að rit­stjórn­ar­með­limur Stund­ar­innar hafi mætt óboð­inn á skrif­stofu fjöl­mið­ils á Akureyri. Þannig er Samherji að stilla sak­lausu og heið­virðu fólki upp sem glæpa­mönnum af því að það hentar mál­staðnum,“ segir Jón Trausti og bendir á að lokum:

„Það er hins vegar Samherji sem er í rann­sókn yfir­valda í tveimur löndum vegna fram­ferðis síns, ekki Stundin fyrir að fjalla um Samherja eftir aðferðum og siða­reglum blaða­mennsku.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð