Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ingibjörg: „Fólk hefur hringt, sagst vera fyrir utan heimili okkar og hótað að drepa okkur“

Ingibjörg: „Fólk hefur hringt, sagst vera fyrir utan heimili okkar og hótað að drepa okkur“

Ingi­björg Tamimi Sig­ur­jóns­dóttir eign­að­ist sitt fyrsta barn 15 ára gömul. Hún skildi við fyrri eig­in­mann sinn rúm­lega tví­tug og kynnt­ist nokkrum árum síðar stóru ást­inni í lífi sínu, Salman Tamimi, sem lést í lok síð­asta árs. Ingi­björg talar hér meðal ann­ars um lífið, ást­ina, dauð­ann og sorg­ina.

„Ég var rosa­legur fjör­kálfur, upp­á­tækja­söm og hvat­vís. Ég var óþekka dóttirin hennar mömmu. Ég var með alls konar upp­á­tæki en við krakk­arnir, vin­irnir, köst­uðum stundum eggjum í hurðir og stundum þegar var mik­ill snjór lok­uðum við götum í bænum með snjó­boltum. Þetta voru þannig upp­á­tæki; að hrekkja náung­ann og stríða.“

Ingi­björg Tamimi Sig­ur­jóns­dóttir ólst upp í Ólafsvík og á Hell­issandi. Ingi­björg er í helg­ar­við­tali Mannlífs þessa helg­ina og hefur við­talið nú þegar vakið mikla athygli. Viðtalið í heild má nálg­ast HÉR en hér fyrir neðan greinir Ingi­björg frá því af hverju hún sner­ist til Islam.

Snerist til Islam

Ingi­björg og Salmann giftu sig hjá sýslu­manni árið 1994. Hún gerð­ist múslimi þremur árum síðar.

„Þetta var bara annar veru­leiki sem hann kynnti fyrir mér; annar heimur. Við spil­uðum mikið arab­íska tón­list og ég fékk að heyra tungu­málið hans þegar hann las upp úr Kór­an­inum og þegar hann bað. Þetta var allt nýtt.“

Ingi­björg segir að Salman hafi ekki ýtt á sig að skipta um trú. „Hann sagði alltaf að það væri undir mér komið en það væri skylda sín að fræða mig um Islam en allt hitt væri undir mér komið. Það sem mér fannst það góða við Islam er að allir spá­menn­irnir eru í því og þar með Jesú og Múhameð er sá eini sem bætt­ist við. Og það sem hann var búinn að vera að boða í sinni trú var nákvæm­lega það sama og ég var búin að læra sem krakki um kristna trú nema að Múhameð er ekki í krist­inni trú. Mér fannst vera svo fal­legt sem haft er eftir honum í Kór­an­inum og margt fal­legt varð­andi rétt­læti og sið­ferði. Þetta varð til þess að ég skipti um trú því ég var í raun­inni ekk­ert að skipta svo mikið um trú. Við trúum alveg á sama guð­inn og alla spá­menn­ina en það bætt­ist bara einn við.“

Ingi­björg skráði sig úr þjóð­kirkj­unni og fór með trú­ar­játn­ingu Islam. Vitnin voru tvö. „Þá var það búið.“

Múslímar biðja almennt fimm sinnum á dag en Ingi­björg segir að þau hjónin hafi ekk­ert gert það almennt. „Ég bað hins vegar fimm sinnum á dag þegar ég var að fasta. Við reyndum okkar besta en að sjálf­sögðum erum við bara mennsk og ekki full­komin.“

Hjónin eiga tvö börn, son og dóttur, og ólust þau upp í Islam.

Ingi­björg segir að hún og fjöl­skylda sín hafi orðið fyrir for­dómum vegna þess að þau eru múslímar. Hún segir að flestir séu jákvæðir gagn­vart því en að auð­vitað séu und­an­tekn­ingar.

„Ég lít alltaf miklu meira á það góða og fal­lega sem er í kringum okkur. Varðandi for­dóma þá hef ég til dæmis heyrt sagt að sumir myndu ekki líta mig réttum augum þegar ég hef sett upp slæðu, hijab. Við höfum orðið fyrir for­dómum þegar við höfum verið að fasta sem hafa meðal ann­ars falist í athuga­semdum og svo höfum við fengið hót­anir; fólk hefur hringt og sagst vera fyrir utan heim­ili okkar og hótað að drepa okkur af því að við erum múslímar. Við kærðum einu sinni þegar maður hót­aði að drepa Salman og það fór fyrir dóm. Þetta er vont. Maður er stundum hræddur. Það er engi lygi. Dómarinn spurði hvort við vildum fá ein­hverjar miska­bætur en við Salman sögðum að það væri ekki aðal­málið heldur að láta vita um þetta. Við vildum bara láta vita að það er ekki heil­brigt að láta svona.“

„Tíminn heldur áfram. Mér finnst að hann ætti að stöðvast en hann heldur áfram og ég þarf alltaf að takast á við nýjan dag.“

Draumur Salmans var að moska risi í Reykja­vík. „Ég trúði því ekki að hann myndi deyja áður en moskan risi. Þetta var for­gangs­mál hans.“ Ingi­björg segir að Félag múslíma, sem Salman stofn­aði, hafi enn vil­yrði fyrir lóð við hlið Herkast­al­ans en að enn vanti fjár­magn til að hefja fram­kvæmdir. „Við erum að fjár­magna þetta sjálf og það gengur fremur hægt.“

Þetta er aðeins brot úr við­tal­inu. Viðtalið má finna í heild HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við