Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hallur Gunnar strauk úr Vesturbænum: Auglýst var eftir honum í útvarpinu

Hallur Gunnar strauk úr Vesturbænum: Auglýst var eftir honum í útvarpinu

Hallur Gunnar Erlings­son Reyndal var aðeins þriggja ára þegar hann var fyrst til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Í febr­ú­ar­mán­uði árið 1964 fjall­aði Þjóð­vilj­inn um ævin­týra­legt strok Halls Gunnars af gæslu­velli í Vest­ur­bænum. Guttinn fór víða um bæinn, nokk­urra kíló­metra leið í leit að heim­ili sínu. Lýst var eftir Halli Gunnari í útvarpi og fjöl­margir borg­ar­búar voru ugg­andi og ótt­uð­ust hið versta. Björg­un­ar­sveitir voru í við­bragðs­stöðu til þegar útvarpið flutti þjóð­inni mikil gleði­tíð­indi.

Fimmtíu og sjö árum síðar er aftur leitað að Halli. Rétt eins og árið 1964 skaut hann þjóð sinni skelk í bringu. Skotið hafði verið á fjöl­skyldu­bíl Dags B. Egg­erts­sonar og þjóðin var slegin óhug. Byssu­maður gekk laus.

Hallur Gunnar var hand­samaður og aftur fagn­aði þjóðin að Hallur væri fund­inn en sú gleði var á öðrum for­sendum.

Eitt sinn glödd­ust lands­menn að lít­ill þriggja ára drengur kæm­ist aftur í fang móður sinnar. Nú varp­aði þjóðin önd­inni léttar að Hallur, grun­aður um að vera óði byssu­mað­ur­inn með ægi­lega for­tíð, sat á bak­við lás og slá, þessi fyrr­ver­andi lög­reglu­þjónn og barn­a­níð­ingur sem hafði fengið upp­reist æru fyrir sín skelfi­legu ódæð­is­verk.

Í þess­ari nær­mynd verður fjallað um Hall Gunnar Erlings­son Reyndal, fyrr­ver­andi lög­reglu­þjón, barn­a­níð­ing og byssu­mann. Hann sat í gæslu­varð­haldi en losnar í dag.

Þetta er brot úr nær­mynd um Hall Gunnar en hana má finna í heild sinni hér.

Strok hljóp í snáðann

Aðeins þriggja ára gam­all er Hallur Gunnar fyrst til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Árið er 1964 og þó Þjóð­vilj­inn sé aðeins 12 síður er mál­gagn Sós­í­alista í fullu fjöri, frétt­irnar áhuga­verðar og spriklandi skemmti­legar en þess má geta að blað­inu var lagt árið 1992.

Á bak­síð­unni 19. febr­úar er fjöldi merki­legra tíð­inda og þarna kennir ýmissa grasa. Íbúar í Þor­láks­höfn eru illir vegna hafn­ar­fram­kvæmda og flug­mála­sam­band Norð­ur­lands er stofnað. Þá verður ekki hjá því kom­ist að rifja upp er eldri maður og lít­ill frændi hans lentu í hremm­ingum í Háskóla­bíó. Í miðri sýn­ingu upp­götv­að­ist að litli kútur var las­inn. Þeir fengu hvergi að fara enda strang­lega bannað í Háskóla­bíó að hleypa fólki út í miðri sýn­ingu. Neyddust þeir til að dúsa í kvik­mynda­hús­inu þar til tjaldið féll.

Allt var þetta og fleira til umfjöll­unar á bak­síðu Þjóð­vilj­ans. Neðst á síðu 12 lesum við um kjörna full­trúa er þáðu boðs­ferð gæsl­unnar til að skoða Surtsey. Á meðan þing­menn flugu yfir sótsvörtu nýju landi þann 18. febr­úar fékk Hallur Gunnar 3 ára nóg af vist sinni hjá fóstrum á Drafna­borg í Vest­ur­bænum. Hann laum­aði sér af gæslu­vell­inum og setti stefn­una á mið­bæ­inn, þaðan upp í holtin, í átt­ina að Bar­óns­stíg 65. Eitt og annað freist­aði hans á leið­inni svo á meðan flótt­anum stóð var útvarpið komið í spilið. Í blað­inu segir:

„Hann heitir Hallur Gunnar Erlings­son. Ráð­staf­anir höfðu verið gerðar til þess að boða út leit­ar­flokk með til­kynn­ingu í útvarp­inu.“

Þetta er brot úr nær­mynd um Hall Gunnar en hana má finna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina