Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Róbert getur ekki borðað eggjahvítu og poppkorn eftir Covid: „Var einum of saklaus og einfaldur“

Róbert getur ekki borðað eggjahvítu og poppkorn eftir Covid: „Var einum of saklaus og einfaldur“

Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, fékk Covid-19 í mars í fyrra og þjá­ist enn af brengl­uðu bragð­skyni vegna sjúk­dóms­ins. Hann getur til að mynda ekki borðað eggja­hvítur og popp­korn. Það sem verra er þá finnur hann ekki lengur mun á góðu og vondu kaffi. 

Í ein­lægu helg­ar­við­tali Mannlífs ræðir Róbert meðal ann­ars um það þegar hann smit­að­ist. „Við Bryn­hildur vorum með skíða­ferð í nágrenni Mývatns helg­ina áður en fyrstu fjölda­tak­mark­anir tóku gildi. Við tókum þá ákvörðun að 25 manna ferð til Mývatns stæði og fólk skyldi hafa sótt­varna­ráð­stafnir í huga. Þetta var löngu áður en fólk var orðið með­vitað um tveggja metra regl­una og hvað það skiptir miklu máli að vera með grímu. Það kom upp smit á hót­el­inu sem við gistum á og af 24 í hópnum þá smit­uð­ust 19. Það var alveg ótrú­legt hvað þetta fór hratt yfir allan hóp­inn,“ segir Róbert. 

Bryn­hildur smit­að­ist líka og segir Róbert að ein­kenni sín hafi verið minni en hennar. „Ég slapp vel. Ég missti strax bragð- og þef­skyn. Ég var með netta háls­bólgu, höf­uð­verk og bein­verki og var smá­slen­aður á 8. eða 9. degi. Ég var með mild ein­kenni og fékk ekki mik­inn hita.

Bryn­hildur og Róbert smit­uð­ust bæði af Covid-19.

Þetta hópsmit vakti hneykslun og var eig­in­lega fyrsta dæmið um smit­skömm á land­inu. Það var sér­stakt að upp­lifa það því ekk­ert okkar fór á svig við reglur. Þær höfðu verið boð­aðar en höfðu ekki tekið gildi. Þegar ég lít til baka þá held ég að maður hafi ekki gert sér grein fyrir hætt­unni á þessum tíma; verið einum of sak­laus og ein­faldur. Ég var til­tölu­lega nýbú­inn með Vasa-skíða­göng­una í Svíþjóð þar sem hátt í 20 þús­und manns kepptu á göngu­skíðum í einum hnapp og þótti ekki til­töku­mál. Síðar hefur svo komið í ljós að Svíar tóku þetta ekki sömu tökum og aðrir.  

Sjá einnig: Róbert stóð frammi fyrir dauð­anum en fer nú fram fyrir VG: „Ég bað til guðs; ekki núna!“

Ég var leið­sögu­maður á Snæfelli í maí eftir að ég var búinn að ná mér og þegar ég var að leiða hóp­inn upp á Snæfell sem er erfitt fjall og hæsta fjall utan jökla á Íslandi þá fannst mér þetta vera svo erfitt að ég sagði við sjálfan mig að ég væri hættur þessu; þetta væri ekki gaman og ég yrði að segja þetta gott. Ég hef síðan kom­ist að því að margir sem hafa smit­ast hafa einmitt verið mátt­lausir eftir veik­indin og glímt við síþreytu. Ég hef ekki verið þar en bragð­skynið hefur verið lengi að kom­ast í samt horf. Ég get til dæmis ekki borðað eggja­hvítu; hún hefur bragðst stórfurðu­lega og popp­korn er ekki sér­lega gott. Þá finn ég ekki mik­inn mun á vondu kaffi og því sem ég veit að er gott kaffi. Þannig að miðað við það sem maður hefur heyrt og lesið þá er ég gríð­ar­lega hepp­inn því fólk veit ekki hvaða spil það dregur þegar það færi Covid.“

Róbert segir að það sé sér­stök lífs­reynsla að hafa fengið Covid. „Það er ekki þægi­leg reynsla að vera með sjúk­dóm sem við vitum eig­in­lega ekk­ert um og maður veit að fullt af fólki deyr úr þessum út um allan heim. Þannig að það er ekki þægi­leg til­finn­ing. 

Síðan hefur það verið að mörgu leyti gagn­legt fyrir mig í starfi að geta til dæmis alltaf mætt í vinn­una af því að ég er með mótefni. Ég passa mig samt á að sótt­hreinsa af því að ég gæti samt borið snert­ismit á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina