Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Birgir Lúðvíksson er látinn: „Traustur og brást aldrei!“

Birgir Lúðvíksson er látinn: „Traustur og brást aldrei!“
|

Birg­ir Lúðvíks­son fædd­ist í Reykja­vík 3. maí 1937. Hann lést á heim­ili sínu 3. fe­brú­ar 2021. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Birg­is er Helga Brynj­ólfs­dótt­ir. Þau eign­uð­ust fjögur börn, Viðar, Lúðvík, Sig­ríði og Guðríði. Hann var jarð­sung­inn í gær. Greint er frá and­láti Birgis á heima­síðu Fram.

Birg­ir var deild­ar­stjóri hjá Sjóvá-Al­menn­um trygg­ing­um þar til hann lét af störf­um vegna ald­urs. Þá stund­aði Birgir knatt­spyrnu og hand­knatt­leik á sín­um yngri árum hjá knatt­spyrnu­fé­lag­inu Fram í Reykja­vík.

Seinna sinnti hann ýmsum fé­lags­störf­um fyr­ir Fram og var for­maður knatt­spyrnu­deild­ar 1960-1961 og for­maður hand­knatt­leiks­deild­ar 1963-1969 og 1976-1981. Þá var hann for­maður aðal­stjórn­ar 1986-1989 og heið­urs­fé­lagi frá 2003.

Birg­ir var einnig fé­lagi í Frí­múr­ar­a­regl­unni. Hinn þaul­reyndi íþrótta­f­rétta­maður og fyrr­ver­andi yfir­maður íþrótta­deildar Morg­un­blaðs­ins, Sig­mundur Ó. Stein­ars­son, skrifar kveðju fyrir hönd knatt­spyrnu­fé­lags­ins Fram.

„Við frá­fall Birgis Lúð­víks­sonar, heið­urs­fé­laga Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Fram, sjá Framarar á eftir öfl­ugum félags­manni sem setti sterkan svip á félags­líf Fram. Birgir, sem var gerður heið­urs­fé­laga Fram á 95 ára afmæl­is­ár­inu 2003, lagði til ófá hand­tökin til að efla félagið, af miklum dugn­aði, krafti og ódrep­andi bar­áttu­vilja. Birgir var mik­ill félags­maður, sem unni félagi sínu heitt og mætti við ýmis tíma­mót, alltaf léttur í lund.

Birgir var fæddur og upp­al­inn Framari, sem keppti bæði í knatt­spyrnu og hand­knatt­leik frá barns­aldri. Blátt blóð rann um æðar hans. Hann erfði Fram­genið frá föður sínum, Lúðvík Thorberg Þor­geirs­syni, sem var aðeins 18 ára þegar hann gerð­ist stjórn­ar­maður í Fram, og móður sinni, Guðríði Hall­dórs­dóttur.

Þegar Birgir fædd­ist 3. maí 1937 var pabbi hans leik­maður og for­maður Fram (1935-1937), 24 ára. Þrír bræður Guðríðar voru einnig for­menn Fram; Guð­mundur, Ólafur og Sigurður. Guð­mundur var nefndur „faðir Fram“ – eftir að hann blés í her­lúðra 1928, þegar Fram var nærri dautt. Undir hans stjórn hófst sögu­legt tíma­bil, sem er kallað „End­ur­reisn­ar­tíma­bilið.“ Lúðvík Thorberg tók virkan þátt í því tíma­bili.

Þess má geta að Lúðvík Thorberg og Guð­mundur, báðir heið­urs­fé­lagar Fram, komu mikið við sögu þegar félags­svæði Fram í Safamýri var í upp­bygg­ingu. Guð­mundur tók fyrstu skóflustung­una á svæð­inu 21. júní 1968 og Lúðvík Thorberg tók fyrstu skóflustung­una að fyrra félags­heim­ili Fram, 10. apríl 1972.

Birgir varð Íslands­meist­ari með meist­ara­flokki Fram í knatt­spyrnu 1962, en þá lék hann við hlið bræðra sinna; Halldórs og Þorgeirs. Guð­mundur Jónsson, þjálf­ari Fram, hafði þetta að segja um Birgi, sem lék í stöðu bak­varðar: „Birgir var traustur og brást aldrei. Það var erfitt fyrir and­stæð­inga að leika á hann og var Birgir mjög góður í návígi og nýtti sér ýmsar hreyf­ingar úr hand­knatt­leiknum.“

Þegar Birgir lagði keppn­is­skóna á hill­una snéri hann sér að félags­málum og gegndi marg­vís­legum trún­að­ar­störfum fyrir Fram. Hann varð for­maður knatt­spyrnu­deildar 1960-1961, síðan for­maður hand­knatt­leiks­deildar í 11 ár; fyrst 1963-1969 og síðan 1976-1981.

Karlalið Fram varð gríð­ar­lega sterkt og varð Íslands­meist­ari fjórum sinnum á fyrra for­manns­tíma­bili Birgis og 1968 varð Fram Íslands­meist­ari í fimm flokkum af sjö, karla og kvenna. Birgir átti stóran þátt í þeim upp­gangi og á síð­ari for­manns­tíma­bili hans voru Fram­konur óstöðv­andi; hömp­uðu 17 bik­urum og urðu Íslands­meist­arar fimm ár í röð; bæði innan og utan­húss.

Birgir barð­ist fyrir því að Fram eign­að­ist eigið íþrótta­hús, en tal­aði lengi fyrir daufum eyrum. Hörð bar­átta Birgis skil­aði árangri, hand­knatt­leiks­menn og konur Fram gátu hreiðrað um sig í Safa­mýr­inni; nýtt íþrótta­hús var vígt 21. ágúst 1994. Gleðin var mikil, Framarar höfðu eign­ast heima­völl!

Birgir, sem var for­maður aðal­stjórnar Fram 1986-1989, tók á móti öllum fjórum heið­urs­merkjum Fram og þá var hann sæmdur heið­urs­merkjum HSÍ, KSÍ, ÍSÍ, HKRR, KRR og ÍBR.

Birgir er einn af þeim félags­mönnum sem tóku ekki krónu fyrir það sem þeir gerðu og voru alltaf til­búnir til átaka þegar til hans var leitað – til að halda merki félags­ins hátt á lofti;

„Traustur og brást aldrei!“

Framarar kveðja og minn­ast Birgis með þakk­læti fyrir mikið starf í þágu félags­ins. Eig­in­konu hans Helgu Brynj­ólfs­dóttur og fjöl­skyldu eru sendar hug­heilar sam­úð­ar­kveðjur.

Sig­mundur Ó. Stein­ars­son.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag