Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Stóraukið símasvindl hérlendis – Íslendingar hvattir til að svara ekki erlendum númerum

Stóraukið símasvindl hérlendis – Íslendingar hvattir til að svara ekki erlendum númerum

Gífurleg aukn­ing hefur orðið á sím­tölum erlendis frá þar sem boðin er alls kyns þjón­usta, ekki síst fjár­mála­þjón­usta þar sem lofað er miklum hagn­aði. Til­gang­ur­inn er að kom­ast yfir banka- og kredit­korta­upp­lýs­ingar. Íslend­ingum er ráð­lagt að svara ekki sím­tölum úr erlendum núm­erum sem það þekkir ekki og á ekki von á.

Hinir óprút­tnu aðilar geta oftar en ekki verið afar sann­fær­andi og með auk­inni tækni geta þessir aðilar látið svo virð­ast að sím­talið geti komið víða frá, jafn­vel Íslandi. Einnig nýta þessir óprút­tnu aðilar sér inter­netið og hafa gullin til­boð borist til ein­stak­linga á fag­legri hátt gömlu Nígeru­bréfin, til að mynda á Linkedin. 

Tæknin góð sé hún ekki misnotuð

Til­gang­ur­inn með sím­töl­unum er að ná í banka- og kredit­korta­upp­lýs­ingar við­tak­anda en slík sím­töl hafa jafn­vel gert við­tak­endur sím­tala gjald­þrota þótt ekki sé vitað um slík dæmi hér á landi. Reyndar er álitið að af fjar­skipta­yf­ir­völdum í Bret­landi að fæstir til­kynni um slíkt þar sem fólk skammist sín fyrir að hafa fallið í gildr­una. Engin ástæða er til að ætla að sá mögu­leiki sé einnig til staðar á Íslandi. 

Þor­leifur Jónasson, for­stöðu­maður hjá Póst- og fjar­skipta­stofnun, segir tölu­verða aukn­ingu til­kynn­inga um svindl­sím­töl, bæði frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. 

,,Aukin tækni er að lang­mestu leyti til hins góða en í þessum til­fellum er hún mis­notuð og þá í þeim til­fellum þar sem unnt er að falsa hvaðan númer koma. Einnig fáum við til­kynn­ingar um að hringt sé í íslensk númer úr erlendum núm­erum og fljót­lega skellt á. Þá er ekki óal­gengt að fólk hringi til baka og lendi í því að fá him­in­háa sím­reikn­inga fyrir sím­talið. 

Við viljum ein­dregið ráð­leggja fólki að svara ekki sím­tölum úr erlendum núm­erum sem það þekkir ekki og á ekki von á. Þá er rétt að hafa var­ann á varð­andi erlenda aðila sem bjóða t.d. fjár­mála­þjón­ustu, oft er þar lofað skjótum gróða eða ein­hverju sem er „of gott til að vera satt“. Aldrei skal gefa upp fjár­mála­upp­lýs­ingar í gegnum síma, net­spjall eða tölvu­póst. Þá er rétt að hafa í huga að íslenskar fjár­mála­stofn­anir biðja aldrei um slíkar upp­lýs­ingar á net­inu eða í síma.

Stöðug aukning kallar á varúð

Guð­mundur Jóhanns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Símans tekur undir orð Þorleifs. ,,Við höfum tekið eftir aukn­ingu í síma- og netsvindli og með auk­inni tækni er erf­ið­ara að takast á við þetta. Hér áður fyrr var auð­veld­ara að sjá hvaðan sím­tölin komu en í dag býður tæknin upp á að ill­mögu­legt er að sjá hvaðan upp­runinn er, fyrir utan að í dag er hægt að fela upp­runann jafn­vel. Við fylgj­umst mjög vel með þessu og ef við sjáum sömu núm­erin hringja ítrekað lokum við á þau, við getum lítið annað gert því ekki er í boði að loka fyrir sím­töl frá ákveðnum svæðum eða heilu lönd­unum.  Við sáum gríð­ar­lega aukn­ingu árið 2020 sem er í takti við það sem er að ger­ast erlendis, síma- og netsvindl hafa stór­auk­ist. En aðal­at­riðið er, og við ítrekum að fólk á helst ekki að hringja til baka í erlend númer sem það kann­ast ekki við. Engin auka­kostn­aður verður til með því að svara, hann getur aðeins orðið ef fólk hringir til baka“

Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag