Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Löggan vill að verjandi Antons verði vitni: „Sjaldgæft örþrifaráð að losa sig við lögmanninn“

Löggan vill að verjandi Antons verði vitni: „Sjaldgæft örþrifaráð að losa sig við lögmanninn“

Stein­bergur Finn­borga­son, lög­maður Antons Kristinns Þór­ar­ins­sonar athafna­manns, segir að lög­reglan vilji losna við sig sem verj­anda í rann­sókn­inni á morð­inu hrotta­lega í Rauða­gerði um miðjan febr­úar. Anton sat áður í gæslu­varð­haldi meðan lög­regla rann­sak­aði tengsl hann við glæp­inn en hann er nú í far­banni.

Antoni Kristni var fyrir tæpri viku sleppt úr haldi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en úrskurð­aður í fjög­urra vikna far­bann. Hann hafði áður setið í tveggja vikna gærslu­varð­haldi vegna rann­sókn­ar­innar á hinu hrotta­lega morði á Armando Bequiri.

Sjá einnig: Maðurinn sem myrtur var í Rauða­gerði bor­inn til grafar á morgun: „Ástkær eig­in­maður og faðir“

Nú hefur lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gert þá kröfu að Stein­bergur lög­maður verði kall­aður til yfir­heyrslu sem vitni í mál­inu. Lög­mað­ur­inn telur lög­regl­una gripa til örþrifa­ráða og sú skoðun hans kemur fram í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag sem ber yfir­skrift­ina Ljótur leikur lög­regl­unnar:

„„Í rann­sókn á mögu­legum tengslum hans við sjálfan glæp­inn hefur lög­reglan gripið til sjald­gæfra örþrifa­ráða – að losa sig við lög­mann­inn.“

Svona er bréf Stein­bergs í heild sinni:

Flest viljum við trúa því að íslenska rétt­ar­ríkið fari ekki í mann­grein­ar­á­lit. Við tökum öll undir ein­kunn­ar­orð lög­regl­unnar, „Með lögum skal land byggja“ og við erum líka sam­mála um það að hver maður sé sak­laus þar til sekt hans er sönnuð. Við eigum öll rétt á sann­gjarnri máls­með­ferð og sak­born­ingar mega velja sér lög­menn til þess að halda uppi eins góðum málsvörnum og frekast er unnt. Um þetta er almenn sátt í sam­fé­lag­inu. Lög­reglan leitar samt stundum af brigða og beitir jafn­vel brögðum til þess að leiða mál til lykta á grund­velli sann­fær­ingar sinnar um sekt fremur en hlut­lægri nið­ur­stöðu dóm­ara.

Ég geri þetta að umtals­efni vegna þess að ég er – a.m.k. á meðan þessi orð eru skrifuð – skip­aður verj­andi sem löggan vill losna við. Ég hef um nokk­urra vikna skeið í því verk­efni notið skil­yrð­is­lauss trún­aðar skjól­stæð­ings míns. Til skamms tíma sat hann í gæslu­varð­haldi og er nú í far­banni vegna gruns um tengsl við alvar­legt saka­mál sem mjög hefur verið í fréttum síð­ustu vik­urnar. Í rann­sókn á mögu­legum tengslum hans við sjálfan glæp­inn hefur lög­reglan gripið til sjald­gæfra örþrifa­ráða – að losa sig við lög­mann­inn. Hefur hún farið fram á það að ég verði kall­aður til skýrslu­töku sem vitni. Skv. lögum er mér um leið óheim­ilt að gegna störfum mínum sem verj­andi í sama máli.

Þetta er ljótur leikur í stöð­unni. Látum vera, þótt sorg­legt sé, að þetta er í annað sinn sem þessum hæl­króki er beitt á mig – síð­ast m.a. með fyr­ir­vara­lausu gæslu­varð­haldi, hús­leitum og f leira sem lög­reglan hefur ekki enn bitið úr nál­inni með. Alvar­legra er hvernig lög­reglan vegur að rétt­indum og and­legri líðan hins grun­aða. Þar er sparkað illa í liggj­andi mann. Hann valdi sér lög­mann sem hann treysti, hann trúði honum fyrir öllum atriðum sem honum voru kunnug, hann hag­aði vitn­is­burði sínum og svörum að við­höfðu sam­ráði við lög­mann sinn og náði með honum ákveðnum áfanga­sigrum í vörn sinni gagn­vart sak­ar­giftum. Ekki er nóg með að lög­reglan ætli að neyða hann til að skipta um lög­mann í miðjum klíðum heldur á að leiða trún­að­ar­mann­inn, lög­mann hans, í vitna­stúk­una þar sem reynt verður að rekja úr honum garn­irnar. Vænt­an­lega mun þessi leikur lög­regl­unnar auka sak­born­ingnum enn frekar áhyggjur og eru þær þó nægar fyrir.

Lögmaður hefur ríkar – og í raun heilagar – trún­að­ar­skyldur gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum. Ég end­aði að ósekju í gæslu­varð­haldi vegna þess að ég neit­aði að svara spurn­ingum sem skaðað hefðu skjól­stæð­ing minn. Ég mun gera það aftur núna. Haldi lög­reglan þessum leik sínum til streitu mun ég leita allra leiða til þess að standa á bæði mínum rétti og skjól­stæð­ings míns. Í fyrsta lagi til þess að verja hann áfram og í öðru lagi til þess að geta, með milli­göngu dóm­stóla ef á þarf að halda, vikið mér undan spurn­ingum sem skaðað gætu málsvörn hans.

Vonandi mun svo Lög­manna­fé­lag Íslands taka þessa maka­lausu atburða­rás til skoð­unar. Það er eitt­hvað mikið að ef lög­reglan getur ítrekað leikið þann leik að breyta verj­anda í vitni til þess ann­ars vegar að losna við hann úr mál­inu og hins vegar að pumpa upp úr honum upp­lýs­ingar sem hann kann að búa yfir vegna trún­að­ar­sam­bands við skjól­stæð­ing sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við