Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingkona VG, segir í Facebook-hópi íbúa í Miðbænum að Hallargarðurinn sé í algjörri niðurníðslu. Aðrir íbúar kannast við það og segjast nokkuð margir hafa dottið í garðinum nýlega.
„Kæru nágrannar! Hallargarðurinn okkar er í niðurníðslu – vonandi er hús Thors Jensens orðið jafn fínt innan sem utan, en göngustígurinn upp á Skothúsveg er hreinasta slysagildra. Þar hafa risaaspir rifið upp hellur sem margar leika á lyginni og liggja þvers og kruss. Eftir að minn betri helmingur datt þarna á dögunum hef ég heyrt um fleiri sem hafa meitt sig á stígnum sem er búinn að vera svona lengi. – Hvað er til ráða?,“ spyr Álfheiður.

Ljóst er að eiginmaður hennar er ekki sá eini sem hefur dottið í garðinum. Egill Helgason fjölmiðlamaður óskar honum bata og skrifar: „Tók eftir þessu um daginn. Við Sigurmar erum báðir fastagestir í Hallargarðinum. Vona að hann hafi ekki meiðst illa.“
Aðrir íbúar segjast hafa lent í þessari slysagildru. „Ég hrasaði þarna líka um daginn. Þetta er stórhættulegt!,“ segir ein kona. Önnur segist hafa slasast nokkuð illa á sama stíg. „Mun vera með ör á hnénu það sem eftir er vegna þessa stígar… og eigin klaufaskap en það er annað mál.“
Málið virðist komið áleiðis innan borgarinnar því stjórnandi hópsins skrifar að lokum: „Sendi póst á Hjálmar Sveinsson – sem svaraði og ætlar að hafa samband við garðyrkjudeildina.“































Athugasemdir