Íslendingurinn og YouTube-arinn Elís Veigar er búsettur í Kanada. Hann gerði á dögunum myndband þar sem hann fjallar um íslenskan mat, hvers hann saknar og vildi geta gætt sér að.
Í kjölfarið setti hann myndbandið inn í Facebook hóp fyrir Íslendinga sem búa erlendis og spurði: „Hvaða matar saknið þið frá klakanum?“
Svörum rignir inn og því ljóst að íslenskur matur stendur greinilega alltaf fyrir sínu.
Listinn virðist ótæmandi en þorramatur, lambakjöt, sósur, ostar, fiskur, pylsur, kartöflukrydd að ógleymdu íslenska sælgætinu er ansi oft nefnt.
„OMG það er svo margt sem ég sakna! Gjörsamlega ALLT íslenskt nammi, ostastjörnur, ostapopp, remúlaði, pítusósu, vogaídýfu, hp flatkökur og rúgbrauð og svona mætti lengi telja!“ segir Jóna.
„Er ég ein um að sakna mysings?“ Spyr ein á meðan önnur þráir slátur, svið og brennivín.
„Harðfiskur, lyfrapylsa, rúllupylsa, kæfa og piparostur er það eina sem ég nenni að drösla með mér á milli landa,“ segir Þórunn.
Sumir flytja ýmislegt matarkyns með sér heim eftir Íslandsheimsóknir og frysta jafnvel, á meðan aðrir fá sent til sín hitt og þetta sem hugurinn og bragðlaukarnir girnast.
Inga nokkur segir: „Íslenskur matur er góður og margt sem ég sakna en það sem ég væri mikið til í almennilegt hrossakjöt og bjúgu. Væri líka til í pylsu með kókómjólk. Á alltaf slatta af íslensku nammi á lager.“
Nú líður senn að páskum og eru einmitt ófáir Íslendingar búsettir erlendis sem fá send til sín íslensk páskaegg. En mörgum finnst það ómissandi, enda sambærileg egg ekki að finna annars staðar.
Hér að neðan má sjá myndband Elíasar:































Athugasemdir