„Ég hef aldrei á ævinni séð eins mikla eymd í miðborg Reykjavíkur og þessi dægrin. Samt hefur ástandið verið betra hér en víðast hvar annars staðar. Maður getur þess vegna ekki annað en velt fyrir sér hvaða langtímaáhrif lokunaraðgerðirnar um víða veröld muni hafa. Hvaða áhrif mun það hafa á heila kynslóð að missa af árunum þar sem hún átti að taka fyrstu skrefin á vinnumarkaði? Hvaða áhrif mun það hafa á fólk að mega ekki hitta annað fólk á þeim tíma sem oft er kallaður bestu ár ævinnar þar sem það kynnist vinum sínum fyrir lífstíð?“
Þetta segir Halldór Armand Ásgeirsson, rithöfundur og útvarpsmaður, í pistli sem fluttur var í Víðsjá og birtist á vef RÚV í morgun. Halldór hefur verulegar áhyggjur af því að harðar sóttvarnir vegna COVID hafi haft skelfileg áhrif á líf almennings, ekki síst þeirra yngri. Hann gagnrýnir í pistlinum almannavarnir á forsendum heimspeki.
„Hvaða áhrif mun þetta gígantíska atvinnuleysi hafa til framtíðar? Hvaða áhrif mun sú ævintýralega fjármálakreppa sem nú er byrjuð hafa á andlega heilsu og kjör fólks? Hver verða áhrif mestu peningaprentunar mannkynssögunnar sem seðlabankar víða um heim halda nú gangandi til að borga fyrir fíaskóið? Hvaða áhrif mun það hafa til lengri tíma að aðgerðir vegna covid-19 hafa bitnað langsamlega verst á þeim sem voru verst staddir fyrir en á sama tíma verið mjög arðbærar fyrir hina ríku, til dæmis í formi síhækkandi hlutabréfamarkaða og fasteignaverðs? Hvaða áhrif mun það hafa til lengri tíma að búið sé að setja slíkt fordæmi í frjálsum lýðræðisþjóðfélögum að svipta almenning mannréttindum í svo stórum stíl í nafni lýðheilsu?,“ spyr Halldór.
Hann segist ekki geta svara þessu sjálfur. „Ég þykist ekki vita svörin. En mér finnast þetta vera tiltölulega augljósar spurningar sem þarf að horfast í augu við hvort sem maður er sammála því að við séum öll almannavarnir eða ekki. Fórnarlömb veirunnar eru og verða miklu fleiri en bara þau sem fá hana. Auðvitað er gott að ríkisstjórnin spurði lækni en ekki Íslandsmeistarann í keilu um það hvernig ætti að bregðast við heimsfaraldri. En það er ekki hægt að meta bara áhrif veirunnar á samfélagið og framtíð þess með því að liggja einungis yfir tölum um smit á hverjum morgni og láta eins og ekkert annað skipti eða geti skipt máli. Mannlegt samfélag er miklu flóknara og margbrotnara en svo og mannleg tilvist snýst um annað en það eitt að útrýma gjörsamlega áhættu.“































Athugasemdir