Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Auður orðlaus eftir fullyrðingar danskennara: „Þú þarft að grennast“

Auður orðlaus eftir fullyrðingar danskennara: „Þú þarft að grennast“

„Ég get ekki setið hljóð, ég hef bara of mikið að segja.“

Svona byrjar færsla Auðar Huldar Gunn­ars­dóttur er hún segir frá því á Facebook síðu sinni að dans­kenn­ar­inn hennar hafi mælt með því að hún grennti sig.
„Það er ekki ég sem þarf að breyt­ast á nokkurn hátt heldur hugs­un­ar­háttur fólks,“ segir Auður. Hún seg­ist jafn­framt vera slegin yfir því að fólk leyfi sér að gagn­rýna lík­ama ann­arra.

Auður lauk námi frá Institude of the Arts í Bar­selóna síð­ast­liðið vor með áherslu á dans. Í kjöl­farið flutti hún til Madríd til að vinna með dans­flokki þar sem umræddur þjálf­ari starfar.

Auður segir það úrelt við­horf að fólk eigi að vera eins grannt og mögu­legt er til að flokk­ast heil­brigt og þeir sem séu enn þeirrar skoð­unar ættu að hugsa sinn gang.
„Það geta ekki allir verið með „sixpack“ eða flatan maga, því allir lík­amar eru mis­mun­andi,“ skrifar Auður.

Auður Huld

Missti mátt í líkamanum

Hún segir í sam­tali við Mannlíf að auk til­mæla dans­kenn­ara hennar um þyngd­ar­tap hafi hann einnig sagt að hún þyrfti að læra treysta leið­bein­endum sínum og þeirra ráðum, með öðrum orðum, treystu mér þú ert of feit, þú þarft að grenna þig.

Síð­ast­lið­inn nóv­em­ber fékk Auður þungt höf­uð­högg á dansæf­ingu og var í kjöl­farið flutt á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar. Eftir slysið fór Auður að missa mátt í lík­am­anum í tíma og ótíma og þurfti því að taka hvíld frá dans­inum. Þjálfari hennar gerði lítið úr meiðsl­unum og sagði að hún væri ein­fald­lega ekki að borða nóg, hún ætti bara að fá sér stóra skál af pasta og þá yrði hún betri. Þetta er sami þjálf­ari og segir henni nú að grenna sig og því óhætt að segja að lítið sam­ræmi sé í ráð­legg­ingum hans.

Auður seg­ist hafa svarað þjálf­ar­anum og lýst yfir óánægju sinni yfir því að hann segði hana of þunga. Þjálf­ar­inn baðst ekki afsök­unar, þvert á móti, hann bað Auði að lesa aftur yfir umsögn­ina og seg­ist aldrei hafa ýtt undir lík­ams­skömm hjá neinum. En í bréf­inu stendur orð­rétt: „I sug­gest you loose weight,“ eða: „Ég mæli með að þú léttir þig.“

Því miður segir Auður þetta ekki vera í fyrsta skipti sem hún sé sögð of þung í dans­heim­inum. Segist hún vera hávaxin og stór­bein­ótt, en aldrei hafa verið of þung. Þvert á móti sé hún heil­brigð og frekar grönn, enda alltaf hugað mikið að matar­æði og hreyf­ingu.

„Ég man að 9 ára var ég farin að hugsa að ég þyrfti að fara út að hlaupa til að vera grönn fyrir ball­ett­inn.“

Auður segir dans­heim­inn vera harðan og miklar útlits­kröfur gerðar innan hans: „Ég man að 9 ára var ég farin að hugsa að ég þyrfti að fara út að hlaupa til að vera grönn fyrir ball­ett­inn.“

Ráðlagt að kremja brjóstin niður

Auður byrj­aði í ball­ett 4 ára gömul og segir hún ball­ett­inn gera afar miklar kröfur um að vera grannur og smá­gerður: „Á æfingum var kenn­ar­inn alltaf að segja: Inn með mag­ann, inn með mag­ann,“ segir Auður. Þessi stöðuga áminn­ing um að vera grannur segir Auður  ástæð­una fyrir því að hún hafi þróað með sér átröskun þegar hún var 18 ára gömul. Sökum þess og vegna ann­arra ástæðna líka, tók hún í kjöl­farið hálfs árs hlé frá dans­inum og á þeim tíma pru­faði hún ýmsar aðrar íþróttir: „Ég fór í fim­leika, box og frjálsar íþróttir og fann aldrei fyrir þessum þrýst­ingi um að þurfa vera grönn í þeim íþróttum. Ég fann samt á þessum tíma að dans­inn er þar sem ég á heima og byrj­aði því aftur að dansa en skipti um skóla og ákvað að leggja meiri áherslu á nútíma­dans.“

Segir Auður kröf­una um eitt­hvað ákveðið útlit ekki vera jafn mikla í nútíma dans­inum og í ball­ett­inum, en þó sé ástandið hvergi í dans­heim­inum nógu gott hvað útlits­kröfur varðar. Segist hún til að mynda nýlega hafa heyrt kenn­ara segja við stór­bein­ótta stelpu þegar hann sá hana borða sam­loku: „Já þetta er ástæðan fyrir því að þú ert ekki jafn grönn og hinir.“

En það eru ekki aðeins gerðar þyngd­ar­kröfur heldur eru brjóst einnig litin horn­auga. Segist Auður vita dæmi þess að stelpum hafi verið sagt að þær væru með of stór brjóst og að þau tækju athygl­ina frá dans­inum. Hafi þeim jafn framt verið ráð­lagt að kaupa sér fatnað til þess að reyna kremja brjóst sín niður.

Segist Auður hafa orðið gjör­sam­lega orð­laus við að heyra þessi ummæli. Hún segir nauð­syn­legt að konum og lík­ömum þeirra sé sýnd virð­ing og að fólk þurfi að læra að ein­beita sér að því að horfa á dans­inn sjálfan og öllu sem honum fylgir, en ekki velta sér upp úr lík­ams­bygg­ingu hvers og eins.

Auður segir að lokum að hún von­ist til þess að niðr­andi athuga­semdir um mis­mun­andi lík­ams­gerðir hætti og þá sér­stak­lega af hálfu dans­kenn­ara og -stjóra. Því það sé fólkið sem dans­arar eigi að geta treyst og litið upp til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur