„Við leikskólastarfsmenn smitumst greinilega síður og græddum líka eitt páskaegg – ef það sést, þetta er minnsta sem hægt er að kaupa. Takk Reykjavíkurborg þetta er alveg þess virði að mæta í vinnu og fá þennan glaðning,“ skrifar leikskólakennarinn Thelma Björk á Facebook síðu sinni í dag.
Ákvörðun stjórnvalda að halda leikskólum opnum en loka grunn-, mennta- og háskólum vegna kórónuveirusmita, hefur vakið mikla reiði.
Fjölmargir leikskólakennarar hafa lýst yfir óánægju sinni, en fjöldi smita hefur komið upp á meðal barna undanfarið. Samkvæmt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni, smitar hið breska afbrigði veirunnar sem nú er í samfélaginu frekar börn en önnur afbrigði hennar. Þá virðast börn einnig verða veikari af þessu afbrigði veirunnar. Hefur það því þótt skjóta skökku við að loka öllum skólum, nema leikskólum.
Sjá einnig: Reiðir leikskólastarfsmenn án bólusetningar í smithættu – „Við erum berskjölduð“
Leikskólastarfsmenn Reykjavíkurborgar fengu glaðning nú fyrir páskafrí, páskaegg númer eitt, ásamt eftirfarandi kveðju:
„Kæra leikskólastarfsfólk
Með þessari litlu sendingu viljum við koma á framfæri þökkum til ykkar allra, fyrir ómetanlegt framlag við krefjandi og flóknar aðstæður. Þið hafið sýnt mikla samstöðu, úthald og útsjónarsemi sem seint verður fullþakkað.
Með bestu óskum um gleðilega páskahátíð til ykkar og fjölskyldna ykkar.“
Óhætt er að segja að fólk sé passlega sátt með þennan glaðning Reykjavíkurborgar, en ekki hafur staðið á viðbrögðum fólks við færslu Thelmu.
„Þvílík vanvirðing! Þetta sýnir bara enn betur hvað leikskólastarfið er lítils metið!“ Skrifar Sigríður nokkur og önnur segir: „Smánun.“
„Þegar ég var að vinna á leikskóla fengu allir starfsmenn saman einn lítinn konfektkassa, ekki einu sinni einn moli á mann. Svo þetta er nú rausnarlegt,“ skrifar ein í kaldhæðni.































Athugasemdir