Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Horfnu milljarðarnir hennar Sonju – Frændinn á Núpum grunaður um svikaslóð

Horfnu milljarðarnir hennar Sonju – Frændinn á Núpum grunaður um svikaslóð
Glæsi­konan Sonja Zorrilla. Ævisaga hennar kom út árið 2002.

Ekkert hefur enn feng­ist upp­gefið um sjóð sem stofna átti fyrir 18 árum til styrktar lang­veikum börnum á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Sjóð­ur­inn varð til við and­lát auð­kon­unnar Sonju Zorrilla og áttu allar eignir hennar að und­an­skildum lágum upp­hæðum sem systra­börn hennar fengu. Leitt var að því líkum að eignir Sonju hafi numið 10 millj­örðum króna um síð­ustu alda­mót.

Sá sem fór með for­ræði eign­anna og átti að stofna minn­ing­ar­sjóð­inn er Guð­mundur A. Birg­is­son á Núpum, fjar­skyldur frændi Sonju. Guð­mundur rækt­aði mjög sam­bandið við Sonju um ára­bil áður en hún lést og vann sér inn traust hennar. Sjálfur hefur hann tví­vegis orðið gjald­þrota, fyrsta árið 2013 og svo aftur í lok síð­asta árs en þá fékk hann líka tveggja ára dóm fyrir skatta­svik og pen­inga­þvætti.

Í Hruninu var fjallað um Guð­mundur fjár­festi þar sem upp komst að hann hafði fært tug fast­eigna yfir á sam­býl­is­konu sína. Meðal þeirra eigna er hús auð­kon­unnar sjálfrar sem runnið hafði inn í minn­inga­sjóð hennar. Það var skömmu eftir banka­hrunið mikla sem Guð­mundur sjóðs­stjóri hófst handa við að færa eignir sínar yfir á Unni Jóhanns­dóttur, sam­býl­is­konu sína, og sam­kvæmt fast­eigna­skrá voru fast­eignir sem hafa farið þessa leið tæpur tugur. DV greindi frá.

Hér má sjá hús Guð­mundar á Núpum, sjóðs­stjóra Sonju Zorrilla-sjóðs­ins. Sonja átti þetta hús þar til hún lést.

Þeirra á meðal var hús­eign Sonju W. B. Zorilla að Núpum í Ölfusi en hús­eignin gekk inn í minn­ing­ar­sjóð hennar til að styrkja börn, hér­lendis og erlendis, til náms og heilsu. Húsið staldr­aði aðeins við í sjóðnum í átta daga og þá var það komið yfir á nafn Guð­mundar. Ekki löngu síðar var húsið síðan fært yfir á sam­býl­is­kon­una.

Guð­mundur hefur verið umsvifa­mik­ill fjár­festir und­an­farin ár. Í gegnum fyr­ir­tækið Lífsval varð hann einn stærsti jarð­eig­andi lands­ins og rak stærstu kúabú lands­ins. Guð­mundur tók einnig þátt í ýmsum útrás­ar­verk­efnum.

Hagnaðist vel

Sonja Zorilla hagn­að­ist vel á við­skiptum á Wall Street. Minn­ing­ar­sjóði hennar, Sonja Foundation, var ætlað að styrkja lang­veik börn á Íslandi og í Banda­ríkj­unum og hefur verið fjallað um að eignir Sonju um alda­mótin hafi verið um tíu millj­arðar króna. Lítið sem ekk­ert hefur enn feng­ist upp­gefið um sjóð­inn sem varð til við and­lát auð­kon­unnar.

Allt frá því Sonja lést hefur leynd­ar­hjúpur verið um eignir hennar og ekk­ert spurts til sjóðs­ins eða úthlut­ana úr honum. Guð­mundur hefur sjálfur farið undan í flæm­ingi þegar fjöl­miðlar hafa spurt um sjóð­inn eða afdrif eign­anna í gegnum árin. Allt frá því Sonja lést árið 2002 er minn­ing­ar­sjóður hennar enn í sama myrkri og hann hefur verið und­an­farin 18 ár.

Guð­mundur, var upp­haf­lega naut­gripa­bóndi, en komst í nokkrar álnir með við­skiptum og ekki síst með gjald­eyri. Hann er þó þekkt­astur fyrir að hafa haldið utan um eignir Sonju sem lést árið 2002. Erfða­skrá hennar til­greindi að til yrði Sonja Zorrilla foundation, sem átti að vera til að styrkja fátæk börn til tón­list­ar­náms. Sonja átti miklar eignir á Flórída og í New York. Þá átti hún íbúð á Ísland og sum­ar­hús á Núpum, land­ar­eign Guð­mundar. Auk þess átti hún Rolls Royce bif­reið sem geymd var á Núpum. Eignir Sonju voru taldar í millj­örðum króna sam­kvæmt eldri fjöl­miðlaum­fjöll­unum.

Guð­mundur var á haust­mán­uðum í fyrra ákærður fyrir marg­vís­leg brot gagn­vart skatta­yf­ir­völdum á Íslandi vegna eigna á Man­hattan, á Flórída og á Spáni. Um var að ræða pen­inga­þvætti og skila­svik þar sem eignum í New York, Flórída og á Spáni var leynt.

Engin svör

Þegar DV gekk á Guðmund og með­stjórn­anda hans hjá Sonja Foundation, banda­ríska lög­mann­inn John Ferguson, eftir hrun sögðu sjóðs­stjór­arnir tveir enga aura að fá úr minn­ing­ar­sjóðnum. Sjóð­ur­inn væri hrein­lega yfir­skuld­bund­inn og þá var umsækj­endum óskað vel­farn­aðar í öðrum styrkja­um­leit­unum sínum.

Þá var Ferguson lög­maður fyrir svörum og hafði þetta að segja:

„Ég vil þakka ykkur fyrir áhug­ann á Sonja Foundation. Sjóð­ur­inn er að öllu leyti einka­sjóður og því vona ég að þið skiljið að við svörum engum fyr­ir­spurnum frá almenn­ingi.“

Það er ekki aðeins hinn banda­ríski lög­fræð­ingur sem veitir engin svör heldur reyn­ist erfitt að hafa uppi á Guðmundi, frænda Sonju, til að ræða mál­efni sjóðs­ins. Til þess hafa verið gerðar ítrek­aðar til­raunir um nokk­urt skeið en án árang­urs.

Guð­mundur á Núpum færði þetta hús yfir á sam­býl­is­konu sína nokkrum dögum eftir banka­hrunið. Húsið var á sínum tíma í eigu Björg­ólfs Guð­munds­sonar og ólst Björgólfur Thor þar upp.

Þrátt fyrir að 18 ár eru liðin frá því að auð­konan Sonja Zorilla lést og stofn­aður var minn­ing­ar­sjóður í hennar nafni er vef­síða sjóðs­ins enn í smíðum. Samkvæmt erfða­skrá áttu auð­ævi hennar að renna í sjóð til styrktar fátækum börnum.

Skilur ekkert í meðstjórnandanum

John J. Ferguson, banda­rískur lög­maður auð­kon­unnar heit­innar Sonju Zorilla, aðskilur sig alfarið frá við­skiptum Guð­mundar A. Birg­is­sonar sem var dæmdur fyrir skatt­svik og pen­inga­þvætti. Lög­mað­ur­inn sagð­ist í sam­tali við Mannlíf vera bæði undr­andi og von­svik­inn að heyra af því hvernig er komið fyrir kollega sínum hjá minn­ing­ar­stjóði Sonju.

John J. Ferguson, lög­maður Sonju á sínum tíma og annar umsjón­ar­manna styrkt­ar­sjóðs Sonju.

„Ég hef þekkt Gumma í 25 ár og veit að hann hefur verið í vand­ræðum vegna gjald­þrots. En ekk­ert af því teng­ist sjóðnum því ég einn hef hönd á öllum pen­ing­unum frá upp­hafi og hann hefur ekki haft nokkurn aðgang að þeim. Hvað sem hann hefur gert þá er alfarið engin pen­inga­teng­ing milli sjóðs­ins og hans per­sónu­legu mála,“ segir Ferguson.

Ferguson lög­maður neit­aði Mannlífi einnig um aðgang að sjóðs­yf­ir­liti, Sonja Foundation, góð­gerða­sjóði auð­kon­unnar. „Þetta eru trún­að­ar­upp­lýs­ingar og eru því ekki ætl­aðar til opin­berrar birt­ingar,“ sagði Ferguson í sam­tali við Mannlíf.

Sjá einnig: Ferguson lög­maður Sonju sver af sér Guðmund á Núpum: „Bæði undr­andi og von­svik­inn með Gumma“

Frét­tal­aðið sagði á sínum tíma frá millj­arða­eignum Sonju. Í bók­inni Ríkir Íslend­ingar var leitt líkum að því að Sonja hafi átt yfir eignir fyrir rúma10 milj­arða króna.

Sjóður Sonju hafði upp­haf­lega tveggja manna sjórn. Guð­mundur var annar stjórn­ar­mað­ur­inn en hinn var Ferguson, fyrr­ver­andi lög­maður Sonju. Sjóð­ur­inn er með aðsetur sitt í Banda­ríkj­unum. Allt frá því Sonja lést hefur leynd­ar­hjúpur verið um eignir hennar og ekk­ert spurts til sjóðs­ins eða úthlut­ana úr honum.

Guð­mundur hefur sjálfur farið undan í flæm­ingi þegar fjöl­miðlar hafa spurt um sjóð­inn eða afdrif eign­anna. Því hefur verið borið við að Íslend­ingum komi ekki mál­efni sjóðs­ins við þar sem hann sé einka­sjóður í Banda­ríkj­unum. Þetta gengur þvert á þann yfr­lýsta til­gang sjóðs­ins að hann myndi starfa í þágu lang­veikra barna á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Frétta­þátt­ur­inn Kompás spurð­ist fyrir á sínum tíma um afdrif eigna Sonju og sátu fyrir Guðmundi en hann svar­aði efn­is­lega engu.

„Hvað sem Gummi hefur gert af sér per­sónu­lega hefur ekk­ert að gera með dán­arbú Sonju eða sjóð­inn.“

Allt frá því Sonja lést árið 2002 hefur verið þögn um eigur hennar og sjóð­inn. Athygl­is­vert ert að meint svika­slóð Guð­mundar liggur um sömu svæði og eigur auð­kon­unnar var að finna. Sonja átti veg­legt mál­verka­safn, íbúðir á Flórída og á Park Avenue í New York þar sem skatt­ur­inn hefur kom­ist á snoðir um leyndar eignir Guð­mundar.

DV fjall­aði um fjölda fast­eigna sem Guð­mundur færði yfir á sam­býl­is­konu sína. Meðal þeirra var hús Sonju við Núpa.

Ekki hefur farið fram rann­sókn íslenskra eða banda­rískra aðila á því hvernig umræddar eignir voru til­komnar og féllu í hlut Guð­mundar. Sjóður Sonju er enn í sama myrkri og hann hefur verið und­an­farin 18 ár. Ekki eru þekkt dæmi um að lang­veik börn hér­lendis hafi notið góðs af sjóðnum sem stofn­aður var í þágu þeirra.

Spurn­ing­unni um hvort ekki hafi verið and­virði 10 millj­arða til ráð­stöf­unar eftir lát Sonju svar­aði Ferguson því hlæj­andi í sam­tali við Mannlíf í fyrra. Honum var hins vegar aug­ljós­lega brugðið þegar Mannlíf sagði honum frá því að Guð­mundur hafi játað á sig skatt­svik og pen­inga­þvætti.

Aðspurður segir Ferguson að upp­runa­lega hafi verið í sjóðnum því sem nemur hálfum millj­arði króna og því hefur að mestu verið úthlutað til góð­gerð­ar­mála. Mannlíf óskaði form­lega eftir yfir­liti frá sjóðnum um hvaða upp­hæðir og hvert þær hafi runnið úr sjóðnum frá stofnun. Ferguson neit­aði að afhenda þær upp­lýs­ingar.

„Þetta eru trún­að­ar­upp­lýs­ingar og eru því ekki ætl­aðar til opin­berrar birt­ingar.“

„Ég held að Sonja hafi aldrei átt svona mik­inn pen­ing en það mesta úr sjóðnum hefur verið úthlutað til góð­gerð­ar­mála í gegnum árin. Það er eitt­hvað eftir í sjóðnum. Hvað sem Gummi hefur gert af sér per­sónu­lega hefur ekk­ert að gera með dán­arbú Sonju eða sjóð­inn. Sjóð­ur­inn stendur fylli­lega í skilum við skatta­yf­ir­völd og er algjör­lega hreinn. Ég finn til með Gumma því hann kom mér ávallt fyrir sjónir sem sann­krist­inn maður og vin­gjarn­leg per­sóna. Því er ég bæði undr­andi og von­svik­inn. Frá per­sónu­legu sjón­ar­miði hef ég ekk­ert að gera með hann og hef ekki þekk­ingu á hvaðan pen­ingar hans komu,“ sagði Ferguson í sam­tali við Mannlíf.

Eftir stendur spurn­ingin: Hvað varð um pen­ing­ana hennar Sonju?

Hver er Guðmundur Birgisson?

  • Guð­mundur Albert Birg­is­son er fæddur í Reykja­vík 1. júlí 1961. Hann er elstur fjög­urra syst­kyna. For­eldrar hans eru Birgir Guð­munds­son Alberts­son kenn­ari og kaup­maður og móðir hans heitir Evlalía Kristín Guð­munds­dóttir.
  • Guð­mundur hefur ekki verið áber­andi í umræð­unni þrátt fyrir að hafa verið mjög umsvifa­mik­ill fjár­festir. Hann er lík­lega þekkt­astur fyrir að vera í for­svari fyrir minn­ing­ar­sjóð Sonju frænku sinnar.
  • Guð­mundur var með­eig­andi að félag­inu Lífsval sem var stærsti land­eig­andi lands­ins. Félög sem hann kom að áttu Hótel Borg og Nordica Spa og hann kom að fisk­eldi víðs vegar á Suð­ur­landi, þar á meðal að Núpum í Ölfusi en þar leigði hann Samherja aðstöðu.
  • Lífsval átti Guð­mundur með Lands­bank­anum, Ingvari Karls­syni og Ólafi Wernerssyni. Ólafur er bróðir þeirra Karls og Stein­gríms sem kenndir voru við fjár­fest­inga­fé­lagið Milestone. Lífsval var stærsti jarð­eig­andi lands­ins en félagið átti á annað hund­rað jarðir. Samkvæmt árs­reikn­ingi félags­ins árið 2007 átti félagið jarðir fyrir um 4,3 millj­arða króna. Félagið rak bú á Skriðu­felli í Jök­ulsár­hlíð og Ytra­felli í Eyja­firði. Auk þess var félagið með stærsta kúabú lands­ins á jörð­inni Flatey á Mýrum í Aust­ur­Skafta­fells­sýslu.
  • Guð­mundar var ansi umsvifa­mik­ill í þátt­töku hluta­fé­laga. Þegar DV skoð­aði hluta­fé­laga­eign Guð­mundar sum­arið 2009 var hann skráður stjórn­ar­maður í 29 félögum, fram­kvæmda­stjóri níu félaga, pró­kúru­hafi þrettán félaga og stofn­andi 20 félaga.
  • Frjáls verslun birti ítar­lega umfjöllun um Guðmund árið 1998 eftir að hann hafði gengið frá sölu á jörðum við Núpa í Ölfusi og Þóru­staði á Vatns­leysu­strönd til Hita­veitu Reykja­víkur. Þar sagði að Guð­mundur Birg­is­son hefði snemma verið „ein­beittur og stefnu­fastur í því ætl­un­ar­verki sínu að eign­ast pen­inga. Til eru myndir af honum barn­ungum þar sem hann situr og leikur sér að pen­ingum sem voru hans eft­ir­læt­is­leik­föng“.
  • Guð­mundur er mik­ill bíla­á­huga­maður. Þegar hann var 17 ára, árið 1979, fór hann til Þýska­lands og keypti sér Mercedes Benz 280 SEL sem þótti einn af flott­ari bílum lands­ins á þeim tíma. Bíllinn var hins vegar fljót­lega seldur.
  • Á árum áður sást stundum til Guð­mundar á Rolls Royce-bif­reið sem Sonja Zorrilla geymdi í húsi sínu að Núpum í Ölfusi. Hún flutti bíl­inn inn frá Flórída árið 1995 en hann er árgerð 1983. Að sögn heim­ild­ar­manna er bíll­inn nú að Núpum við húsið sem Sonja átti og Guð­mundur á í dag. Bíllinn varð óöku­fær fyrir nokkrum árum þegar Guð­mundur ætl­aði að keyra hann út úr bíl­skúrnum að Núpum en eyði­lagði hlið bíls­ins.
  • Guð­mundur átti ein­býl­is­hús á Spáni og DV sagði frá því 2007 þegar 20 millj­óna króna Mercedes Benz-bif­reið hans var stolið fyrir utan heim­ili hans. DV sagði líka frá því að Guð­mundur ætti fast­eignir í Slóvakíu með Runólfi Oddssyni, hálf­bróður Davíðs Odds­sonar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina