Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sjóðheitur Bjarni Ben á stefnumótasíðu: „Gert í algjörum hálfkæringi og af léttúð“

Sjóðheitur Bjarni Ben á stefnumótasíðu: „Gert í algjörum hálfkæringi og af léttúð“

Það var í júlí árið 2015 sem að hópur tölvu­hakk­ara sem kall­aði sig „The Impact Team“ stal gögnum af vef­síðu sem ber nafnið Ashley Madison og sér­hæfir sig í er að tengja saman ein­stak­linga sem leita náinna kynna utan hjóna­bands. Segir í kynn­ing­ar­texta vefs­ins að þar sé að finna „kvænta menn og leiðar hús­mæður”. Meðal þess­ara kvæntu manna og leiðu hús­mæðra var að finna 128 Íslend­inga og stóð eitt nafn sér­stak­lega upp úr.

Kynferðislegar óskir opinberaðar

Móð­ur­fé­lag Ashley Madison hefur löngum fiskað í tjörn ein­stak­linga í leit að kyn­lífi utan hins hefð­bunda ramma. Það rekur einnig meðal ann­ars vef sem gerir eldri konum kleyft að kom­ast í náin kynni við yngri menn, og annan sem gerir fjáðum mönnum mögu­legt að hitta ungar konur með „gagn­kvæma hags­muni” í huga.

Nú telst það ekki til tíð­inda að inter­netið sé notað í leit að lystisemdum holds­ins en eðli máls­ins sam­kvæmt kjósa flestir að halda því út af fyrir sig. Með árásinni stóðu millj­ónir ein­stak­linga frammi fyrir því að nafn þeirra, net­fang, not­enda­nafn og lýs­ingar á kyn­ferð­is­legum óskum yrði birtar opin­ber­lega.

Daginn eftir inn­brotið birti hakk­ara­hóp­ur­inn yfir­lýs­ingu og hót­aði að birta upp­lýs­ing­arnar nema að síð­unni yrði lokað. Ekki mun hafa verið um sið­ferð­is­lega köllun að ræða heldur vildi hóp­ur­inn sýna fram á að not­enda­ör­yggi væri áfátt.

For­svars­menn Ashley Madison urðu ekki að kröfum hakk­ar­ana sem létu vaða og settu not­enda­upp­lýs­ingar um 37 milljón manns inn á það sem almennt er kallað „svarta vef­inn”. Svarti vef­ur­inn er sá hluti inter­nets­ins sem ekki er unnt að finna með hefð­bundnum leit­ar­vélum og gefur enga auð­kenn­ingu.

Saumaklúbbar nötra

Íslend­ingar voru að sjálf­sögðu fljótið að þefa upp lek­ann og fóru, eins og fast­lega mátti búast við, að leita uppi landa sína, enda ekki flókið fyrir þá sem til þekkja að vafra um hinar dekkri lendur inter­nets­ins. Íslenskir not­endur reynd­ust vera 128 tals­ins, sumir hverjir lands­frægir ein­stak­lingar. Sauma­klúbbar lands­ins nötr­uðu í kjöl­farið.

Í ljós kom að hátt­virtur fjár­mála­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, var skráður not­andi með not­enda­nafnið ,,Icehot1” og var skrán­ingin undir net­fang­inu [email protected]. Eins og menn ef til vill muna hafði Bjarni, ásamt fleiri Eng­ey­ingum og fjár­festum, fengið kúlu­lán hjá Íslands­banka árið 2006 til kaupa á olíu­fé­lag­inu Esso sem síðar fékk nafnið N1.

Fjöl­miðlar gengu umsvifa­laust á Bjarna og kröfðu skýr­inga. Hann kvaðst ekk­ert muna eftir að hafa skráð sig sem not­anda á vefnum en aftók með öllu að hafa verið þar virkur eða nýtt sér þjón­ustu vefs­ins. Eig­in­kona hans, Þóra Margrét Bald­vins­dóttur, tók í sama streng og birti fljót­lega yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem sagði: „Við heyrðum um þennan umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um sjö árum (2008). Í fram­haldi af því skoð­uðum við vef­inn fyrir for­vitn­isakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá net­fang, erlent póst­númer og fleira sem við gerðum í algjörum hálf­kær­ingi og af léttúð. Við höfum aldrei síðan farið inn á þennan vef. Það var aldrei greitt fyrir skrán­ingu eða aðgang að vefnum. Þessi heim­sókn hefur ekki leitt til sam­skipta við nokkurn mann, hvað þá trún­að­ar­brots af neinum toga,“ skrif­aði Þóra Margrét.

Bjarni á vegg í Tælandi

Það var eng­inn skortur á Icehot1 brönd­urum á meðal lands­manna. Sam­fé­lags­miðlar fóru á kostum og ísbúðin Valdís bauð upp á sér­stakan Icehot1 ís sem sam­an­stóð af hvítu súkkulaði og chili. Hann náði miklum vin­sældum. Að sjálf­sögðu fékk Icehot1 grein­ar­góða úttekt í ára­mótaskaup­inu það árið. Icehot1 stimpl­aði sig aftur inn þegar að nekt­ar­bar í eigu Íslend­ings, opn­aði undir nafn­inu í Pattaya í Tælandi en borgin hefur löngum haft orð á sér fyrir vænd­is­starf­semi. Þar á vegg var að finna veg­lega mynd af Bjarna og fór gjörn­ing­ur­inn mis­vel í fólk svo vægt sé til orða tekið. Ekki er vitað hvort umræddur bar sé enn starf­andi.

Aðspurður síðar um Icehot1 málið gerði Bjarni grín að því og hvatti fólk til að skipta reglu­lega um lyk­il­orð og fara var­lega á net­inu. Hann virð­ist þó hafa lært sína lexíu í sam­skiptum við inter­netið eins og fram kom í við­talið við Loga Bergmann þar sem Bjarni sagði:  „Ímyndaðu þér hvað það er rosa­legt hvað mikið af gögnum eru geymd í langan tíma og maður veit aldrei, í þessu sam­fé­lagi sem við búum í í dag, hvenær eitt­hvað sem maður sagði eða gerði, ein­hver sam­skipti sem maður átti, birt­ast fyrir allan almenn­ing. Það er magnað,” sagði Bjarni Bene­dikts­son, Icehot1.

Móð­ur­fé­lag Ashley Madison þurfti að greiða háar upp­hæðir í skaða­bætur og skipti um nafn í kjöl­farið. Ashley Madison og syst­ur­síður lifa aftur á móti enn góðu lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag