Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Erla syrgir Vilhjálm sem var aðeins fertugur: „Myndi ekki óska versta óvini að upplifa þessa sorg“

Erla syrgir Vilhjálm sem var aðeins fertugur: „Myndi ekki óska versta óvini að upplifa þessa sorg“

„Þetta var óskap­legt áfall. Það hefur tekið okkur langan tíma að átta okkur á að þetta er raun­veru­leiki og að Villi sé far­inn,” segir Erla Ösp Ingv­ars­dóttir en sam­býl­is­maður hennar, Vil­hjálmur Ingi­mars­son, varð bráð­kvaddur þann 8. apríl síð­ast­lið­inn, nýorð­inn fer­tugur að aldri. Þau höfðu verið búsett á Akureyri til margra ára.

Erla Ösp segir að Vil­hjálmur hefur hvergi kennt sér meins fyrir and­látið.

„Hann var með of háan blóð­þrýst­ing en það var ekk­ert sem ástæða var til að hafa áhyggjur af. Hann starf­aði sem raf­virki hjá Ljós­gjaf­anum og var í vinnu­ferð á Tálkna­firði þegar þetta ger­ist. Þetta sama kvöld var sonur minn hjá stuðn­ings­fjöl­skyldu sinni og við dóttir mín með létt stelpupartý, horfðum á sjón­varpið og höfðum það nota­legt. Ég tal­aði við hann um tíu­leytið um kvöldið og það var mjög gott í honum hljóðið. Það var síðan um klukkan hálf­eitt um nótt­ina að ég vakn­aði við sím­ann og fékk frétt­inar. Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upp­lifa eitt­hvað þessu líkt.”

Vil­hjálmur lést langt um aldur fram þann 8. apríl síð­ast­lið­inn.

Ást við fyrstu sín

Erla Ösp og Vil­hjálmur kynnt­ust haustið 2002 þegar bæði léku í leik­riti í Frey­vangs­leik­hús­inu. „Þetta var ást við fyrstu sýn. For­eldrar mínir voru nýflutt í Eyja­fjörð­inn og mamma hafði orð á því að það gæti verið gaman fyrir mig að kynn­ast fleira fólki með því að taka þátt í leik­list­ar­starf­inu. Ég man að ég sá Villa ganga inn og hugs­aði með mér hvað það yrði nú skondið ef ég yrði ást­fangin af honum. Þetta var kab­ar­ett sýn­ing sem hét Viltu Viagra og Villi var aðal­stjarnan í bleikri brók, bað­aður í barna­olíu. Ég hugs­aði með mér að þessi væri flottur, ég tek hann! Á þessum tíma bjó Villi í lít­illi kjall­ara­í­búð og ég var flutt inn í jan­úar. Þetta hefðu verið komin 19 ár hjá okkur í haust.“

Sorgin bankar ítrekað á dyrnar

Erla Ösp er vel kunnug sorg­inni í gegnum tíð­ina. „Við eign­uð­umst eldri dóttur okkar árið 2006 og aðra dóttur árið 2009 en hún var and­vana fædd. Dreng­ur­inn okkar kom árið 2010 en hann varð fyrir súr­efn­is­skorti í fæð­ingu og fékk væga CP lömun í kjöl­farið auk þess að vera með ein­hverfu. Ég við­ur­kenni alveg að ég myndi þiggja pásu frá áföllum,” segir Erla af mik­illi yfir­vegun.

Villi og Erla nutu þess að eyða tíma saman með börn­unum sínum.

Aðspurð um hvernig þau Villi hefðu tekið þessum áföllum segir Erla Ösp þau hafa þjappað þeim saman.

„Við urðum enn sterk­ari saman. Maður hefur heyrt af því að áföll geti aðskilið pör en við urðum bara sam­rýmd­ari. Ég var síðan greind með MS fyrir þremur árum síðan og Villi stóð eins og klettur við hlið­ina á mér, sama hvað bját­aði á. Ég er svo full af þakk­læti, hlýju og vænt­um­þykju fyrir árin með Villa.“

Sá um stórsteikurnar

„Villi var til­bú­inn að gera allt fyrir alla og var fljótur að kynn­ast fólki. Hann var mikil félags­vera, gat labbað inn í hóp og var strax orð­inn mál­kunn­ugur öllum. Hann hafði líka gaman af því að segja skemmti­sögur og sagði mjög skemmti­lega frá,” segir Erna Ösp um mann­inn sinn. „Hann var einnig afar flinkur í eld­hús­inu og sá um alla elda­mennsku á heim­il­inu. Hann sá um allar stór­steikur og gerði þrjár suður af heima­gerðu rauð­káli eftir sautján daga vinnu­ferð, honum þótti svo gaman í eld­hús­inu“.

Villi elskaði að elda og var frá­bær kokkur.

Erla er full ást­úðar þegar hún minn­ist Villa. „Hann var frá­bær pabbi og naut þess að vera með krökk­unum. Dóttir okkar æfir sund og Villi var að ljúka við gráðu sem yfir­dóm­ari í sundi til að unnt væri að halda mót hér fyrir norðan. Hann átti aðeins útskrift­ina eftir. Hann var með mikið með krökk­unum, gisti með hóp­unum og allir krakk­arnir þekktu hann vel. Þeim fannst hann skemmti­legur og hvetj­andi enda hvatti hann þau alltaf til dáða og var dug­legur að hrósa þeim“.

Lífið í núinu mikilvægast

Erla Ösp og Vil­hjálmur nutu þess að byggja sum­ar­hús úti í sveit ásamt for­eldrum Erlu.

„Það var okkar draumur að ljúka því. En núna er það fok­helt í pásu.“

„Þetta var ást við fyrstu sýn.“

Þau höfðu einnig gaman af því að ferð­ast. „Villi var kom­inn til útlanda í rúllu­stig­anum í flug­stöð­inni,” segir Erla og kímir við til­hugs­un­inni.

„Ég grín­að­ist oft með að það hefði verið nóg að gefa honum rúllu­stiga­ferð til að gleðja hann!”

Hún hafði ákveðið að gefa honum ferð til Tenerife í fer­tugs­af­mæl­is­gjöf fyrr í vetur, en þau höfðu ákaf­lega gaman af að fara þangað og lang­aði aftur.

„Bara við tvö. En svo kom Covid svo við komumst aldrei”.

Erla Ösp segir áföllin hafa kennt sér að það mik­il­væg­asta í heim­inum sé að njóta tíma með fjöl­skyld­unni.

Erla segir að sem ung stúlka hafi hennar stærsti draumur verið að eign­ast stóra ein­býl­is­húsið með stóra garð­inum, heita pott­inum og jepp­anum í bíl­skúrnum

„Áföllin hafa kennt manni mikið. Þau hafa kennt manni að staldra við og njóta stund­anna með sínum nán­ustu. Lifa í núinu, njóta barn­anna og tím­ans hvort með öðru og plana ekki of langt fram í tím­ann. Við áttum ekki ein­býl­is­hús, stóran garð né dýra hluti en við vorum ham­ingju­söm og glöð. Það er það sem skiptir máli,” segir Erla Ösp sem hefur upp­lifað stór áföll í líf­inu þrátt fyrir ungan aldur.

Vinir og vel­unn­arar litlu fjöl­skyld­unnar hafa efnt til söfn­unar fyrir þau á þessum erf­iðu tímum.

Fyrir þá sem vilja leggja söfn­unni lið er reikn­ing­ur­inn 370-22-034997, kt.230480-3469.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina