Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sérstæð verkefni lögreglumanna: – Kona og köttur hennar í sjálfheldu uppi í tré

Sérstæð verkefni lögreglumanna: – Kona og köttur hennar í sjálfheldu uppi í tré

Lög­reglu­menn eru vissu­leg ekki öfunds­verðir af mörgum þeim verk­efnum sem þeir þurfa að taka sér fyrir hendur og eru sum klár­lega hættu­legri en önnur. Má þar nefna að elt­inga­leikur við ketti í trjám er ekki á allra færi og hreint ekki hættu­laust athæfi. Þess má finna dæmi að lög­reglu­menn hafi slasast við slíkt klifur. Þó ekki hættu­lega, bless­un­ar­lega.

Björgun gælu­dýra var reyndar ekki kennd sér­stak­lega í Lög­reglu­skól­anum, en þá kemur hyggju­vitið til skjal­anna þegar út í alvör­una er komið. Sjálf­sagt má skamma lög­reglu­menn fyrir að hafa á stundum ekki beitt meiri skyn­semi í slíkum aðstæðum, en lög­reglu­menn eru bara þannig gerðir að þeir vilja bjarga bæði mönnum og dýrum.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gaf góðu­fús­legt leyfi fyrir eft­ir­far­andi frá­sögnum.

Kona eltir kött

Fyrir nokkrum árum slas­að­ist lög­reglu­maður þegar hann einmitt reyndi að bjarga ketti niður úr háu tré, en hjálp­ar­beiðnir af því tag­inu ber­ast lög­regl­unni annað slagið. Ein slík kom á borð lög­reglu sum­arið 2016. Lög­reglu­menn voru fljótir á stað­inn, í ónefndan garð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og hugð­ust bjarga þar ketti niður úr tré.

Á vett­vangi blasti hins vegar við afar óvenju­leg sjón, því ekki ein­asta var kött­ur­inn í sjálf­heldu uppi í trénu, heldur var eig­andi hans þar líka. Um var að ræða unga konu sem hugð­ist bjarga kett­inum sínum með öllum til­tækum ráðum, en ekki fór betur en svo að hún sat þar jafn­föst og bless­aður kött­ur­inn og gat sig hvergi hreyft.

Nú voru góð ráð dýr.

Eftir að hafa skoðað málið af mik­illi yfir­vegun afréðu lög­reglu­menn­irnir að gera það skyn­sam­lega í stöð­unni og kalla til slökkvi­liðið og kom það á stað­inn með stiga. Skemmst er frá því að segja að í fram­hald­inu tókst björgun bæði kon­unnar og katt­ar­ins giftu­sam­lega, en þessum degi gleymir konan vafa­laust seint.

Hún hefur þó örugg­lega lært sína lexíu, en kött­ur­inn lík­lega ekki.

Frækileg björgun Fannars

Kettir eru þó ekki einu dýrin sem lög­reglan hefur þurft að koma til hjálpar í gegnum tíð­ina því árið 2020 barst Neyð­ar­línuni sím­tal þar sem greint var frá svans­unga, sem var í miklum vand­ræðum í Læknum í Hafn­ar­firði. Óttast var að hann kynni að drukkna og var eðli­lega brugð­ist hratt við.

Fannar komin í fang Guð­mundar eftir giftu­sam­lega björgun.

Fremsti sér­fræð­ingur lög­reglu í slíkum málum, Guð­mundur Fylk­is­son aðal­varð­stjóri, var umsvifa­laust kall­aður á vett­vang og tókst honum, með mjög góðri aðstoð nokk­urra veg­far­enda, að bjarga álft­inni frá dauða.

Um tíma var útlitið tví­sýnt enda flaut svan­ur­inn á hvolfi með haus og vængi á kafi, en fætur upp úr.

Nokkur ótti fór um fólk en allt fór þó vel að lokum og giftu­sam­leg björgun var stað­reynd. Svan­ur­inn, sem gengur undir nafn­inu Fannar, var lík­lega um tveggja ára gam­all, en til hans hafði áður sést við gamla Lækj­ar­skóla og greini­legt að eitt­hvað hafði verið að angra hann.

Fannar var færður til aðhlynn­ingar hjá dýra­vinum í Kjósinni og er ekki betur vitað en að honum heils­ist með ágætum þessa dag­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag