Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðar skammar Sigurð Inga: Vestfirðingar sviknir um Dynjandisheiði

Fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðar skammar Sigurð Inga: Vestfirðingar sviknir um Dynjandisheiði
Guð­mundur Gunn­ars­son odd­viti Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi 2021.

„Það væri synd að segja að maður missi hök­una í gólfið í hvert skipti sem ráð­herra veldur manni von­brigðum,“ segir Guð­mundur Gunn­ars­son fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar og núver­andi odd­viti Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi um þá ákvörðun að skera niður fjár­fram­lög til fram­kvæmda á Dynj­and­is­heiði. Þetta kallar hann svik.

„Eins og nú þegar þær fréttir ber­ast af því að fram­kvæmdum á Dynj­and­is­heiði hafi enn eina ferð­ina verið slegið á frest. Vegna fjár­skorts.“

Guð­mundur segir að það „sannar enn og aftur að það má ekki missa augun af þessu fólki sem seg­ist skilja og við­ur­kenna að Vest­firðir hafi velkst um í sáru svelti alltof lengi. Flagga fögrum lof­orðum og yfir­bót sem reyn­ist svo lítið annað en heitt loft.“

Fyrrum bæj­ar­stjór­anum finnst “merki­legt hvað þessi bless­aði rík­is­kassi virð­ist alltaf grun­sam­lega tómur þegar kemur að því að umbreyta djúpsárum skiln­ingi í aðgerðir. Því lengra sem bauk­ur­inn ferð­ast frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu því hærra glymur í honum tóma­hljóðið. Merki­legur fjandi.“

Guð­mundur segir að svo sem sé ekki við miklu að búast „þegar við getum ekki einu sinni klárað löngu fjár­mögnuð ofan­flóða­verk­efni til að verja þorpin fyrr en ein­hverjum ára­tugum of seint; vegna sof­anda­háttar. Þessi van­virð­ing við öryggi fólks og þessi síend­ur­teknu svik við æða­kerfi sam­fé­lag­anna er auð­vitað til hábor­innar skammar.“

Hann segir að „vís­ast á maður ekki að vera að kvabba þetta. Þakka frekar fyrir veg­stubbana sem þó er verið að tjasla saman á kjálk­anum. Stubbum, sem hampað er sem nýfram­kvæmdum, en eru í reynd til­færsla á fé sem ann­ars ætti að fara í við­hald á svæð­inu og verður til þess að aðrir lúnir vegir um fjöl­farna ferða­manna­staði drabb­ast ofan í for­aðið á sér. Það er öll inn­spýt­ingin.; við­spyrnan; braga­bótin.“

Guð­mundur telur að „það getur ekki verið að ég sé einn um að vera orð­inn þreyttur á ryk­inu sem þyrl­ast upp undan lakk­skóm þess­ara lof­orða,“ og beinir orðum sínum til sam­göngu- og og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, og fjár­málar- og  efna­hags­ráð­herra Bjarna Bene­dikts­sonar:

„Já, ég er að horfa á þig kæri sam­göngu­ráð­herra. Og já, ég er að horfa á þig kæri fjár­mála­ráð­herra. Þið eruð góðir menn og ég vil trúa því að þið meinið vel. Ég verð samt að biðja ykkur um eitt. Næst þegar þið birt­ist í ofboði með tár­vot hvolpa­augu eftir ham­farir, segið okkur þá bara eins og er. Að ykkur finn­ist svæðið ekki nægi­lega mik­il­vægt til að halda úti grunn­kerfum. Eða að þið gefið því ekki gaum að íbúar fjórð­ungs­ins eigi rétt á lág­marks þjón­ustu“ og bætir við að „þið sóið tíma fólks með því að fylla verð­mætt vest­firskt fjalla­loft af inn­an­tómum lof­orðum. Þetta er komið gott. Ef þið getið ekki sagt satt og staðið við stóru orðin, sleppið því þá frekar að koma“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag