Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áttræð Elínborg lætur ekkert stöðva sig: „Göngurnar hjálpuðu mér í sorginni“

Áttræð Elínborg lætur ekkert stöðva sig: „Göngurnar hjálpuðu mér í sorginni“

Elínborg Krist­ins­dóttir gekk um ára­bil með Ung­menna­fé­lagi Íslands og nefnir göngu- og úti­vist­ar­verk­efnið „Fjöl­skyldan á fjallið“ sem var ætlað að auka sam­veru­stundir fjöl­skyld­unnar og stuðla að lík­ams­rækt og hreyf­ingu sem og að njóta nátt­úru­feg­urð­ar­innar. Eitt árið voru til dæmis til­nefnd 22 fjöll víða um land þar sem settir voru upp póst­passar með gesta­bókum og þeir sem skrif­uðu nafn sitt í þær gátu átt von á vinn­ingum. Elínborg skráði nafn sitt í nokkrar gesta­bækur.

Hún var komin á bragðið. Göngur heilll­uðu hana.

„Mér fannst þetta bara vera svo skemmti­legt verk­efni. Það var mjög hvetj­andi.“

Eig­in­maður Elín­borgar, Guðni Sig­ur­jóns­son, lést árið 2008 en hann fór stundum með henni í göngur. Lífs­föru­nautur hennar, sem hafði gengið með henni lífs­ins leið, var ekki lengur til staðar.

„Ég hugsa að göng­urnar hafi hjálpað mér mest í sorg­inni. Þær dreifa svo hug­anum. Það var ýmis­legt sem breytt­ist við það að missa mann­inn minn. Ég varð að taka á því eftir bestu getu. Lífið heldur áfram eftir dauðs­fall ást­vinar og maður varð að reyna að spila áfram eftir bestu getu.“

Það var svo árið 2010 sem Elínborg fór að fara í göngur á vegum Ferða­fé­lags Íslands og eftir það var ekki aftur snúið. Fyrsta vet­ur­inn var farið á eitt fjall í viku.

„Ég varð óstöðv­andi eftir það. Mér fannst þetta vera svo skemmti­legt,“ segir Elínborg sem gekk með ferða­fé­lag­inu í mörg ár í kjöl­farið.

„Eftir að ég hætti að vinna þegar ég var sjö­tug þá leit ég á göngur sem mína vinnu og það var bara skylda hjá mér að mæta í göng­urnar. Göng­urnar voru hvatn­ing; þetta var hvatn­ing fyrir mig því ef svo hefði ekki verið þá hefði ég örugg­lega ekki farið í þessar göngur.“

Elínborg hefur farið á fjölda fjalla og segir að Mæli­fells­hnjúkur sé upp­á­halds­fjallið.

„Það er svo gaman að labba á það.“

Elínborg er spurð hvaða ferð hafi verið erf­ið­ust.

„Ætli það hafi ekki verið til­raun­irnar á Hvanna­dals­hnjúk en ég hef því miður ekki kom­ist þangað upp enn.“

Hvaða ferð er eft­ir­minni­leg­ust?

„Ætli það hafi ekki verið ferð til Spánar; það var æðis­legt,“ segir Elínborg en hún fór ásamt hópi göngu­fólks til Spánar vorið 2019 þar sem var farið upp á fjallið Cruz de la Muela þar sem stór kross er uppi á fjall­inu, einn dag­inn var gengið upp á Sierra de Bernia og þar þurfti fólk að skríða á gegnum þröng göng til að kom­ast í gegnum fjallið og svo var farið upp á fjallið Puig Campana sem er næst hæsta fjall á Alicante-svæð­inu.

„Á Íslandi er eft­ir­minni­leg­ust ferð sem ég og fleiri sem vorum í göngu­hópnum „Fyrsta skref­inu“ á sínum tíma fórum upp á Snæ­fells­jökul í svo snar­vit­leysu veðri að við sáum hreint ekki neitt. Þá var ég búin að fara áður tvisvar sinnum á jökul­inn í svo dásam­legu veðri. Fyrsta ferðin mín upp á jökul­inn var Jóns­messu­ganga og að vera þar á ferð­inni um nótt­ina; ég skrökva ekki en jök­ull­inn var bleikur. Það var dásam­leg ferð.“

Elínborg er spurð hvort hún hafi ein­hvern tím­ann verið hrædd í göngu.

„Já, ég hef einu sinni orðið svo­lítið smeyk. Þá skall á mig þoka. Þá var ég uppi á Þræls­felli. Ég hafði ekki hug­mynd um hvar ég var. Ég var búin að labba og labba og það end­aði með því að þegar rof­aði til þá sá ég niður í Víðidal Þá hafði ég alltaf labbað í þver­öf­uga átt við það sem ég átti að gera. En þetta fór allt vel.“

Elínborg gekk í vetur upp að gos­s­töðv­unum á Reykja­nesi.

„Mér fannst það vera æðis­legt að ganga að gos­inu. Meiri­háttar alveg.“

Þetta eru ekki einu gos­s­töðv­arnar sem Elínborg hefur gengið upp að en hún gekk upp á Fimm­vörðu­háls þegar þar gaus og svo fór hún upp á Heklu þegar þar gaus síð­ast.

Göngur eru hollar fyrir lík­ama og sál.

„Þetta er bara svo heilsu­bæt­andi. Manni líður svo vel úti þegar maður getur notið nátt­úr­unnar. Það er ólýs­an­legt að vera á þessum stöðum. Þeir eru nátt­úr­lega mis­mun­andi eins og þeir eru margir. Það er svo margt; dásemdin í kringum mann, fugla­söng­ur­inn á sumrin og ég tala nú ekki um ef maður stoppar ein­hvers staðar við ein­hverja lækj­ar­sprænu og hlustar á árn­ið­inn og skoðar blómin. Það er svo margt sem þetta gefur manni.“

Elínborg á gamlan hús­bíl sem hún hefur notað mikið til ferða­laga í mörg ár.

„Ég er nýkomin úr Skaga­firði þar sem ég var í fimm daga og gisti í bílnum. Þetta er allt alveg óment­an­legt. Það er bara svo­leiðis.“

Elínborg er átt­ræð og hún segir að það skipti miklu máli að eldra fólk gangi.

„Þetta bara heldur manni gang­andi. Ég er ekki viss um að ég hefði það þrek í dag sem ég hef ef ég hefði ekki haldið þessu svona við með þessum göngum. Ég er hraust að eðl­is­fari og göng­urnar halda mér við með það. Það er akkúrat ekk­ert að mér og það eru for­rétt­indi að fá að njóta þess að geta gert þessa hluti. Ég myndi ráð­leggja öllum sem mögu­lega geta gert þetta að drífa sig og fara á fjöll. Það þarf ekk­ert endi­lega að fara á hæstu fjöllin því að útsýnið af lægri fell­unum er dásam­legt og breytir svo miklu fyrir manni,“ segir Elínborg og nefnir Úlf­ars­fell í þessu sam­bandi.

„En það er farið að draga úr þessu aðeins hjá mér. Ég er meira á lág­lend­inu,“ segir átt­ræð konan sem mun síðar í sumar fara í nokk­urra daga göngu­ferð um Aust­ur­land ásamt vin­konu sinni.

„Við ætlum að reyna að ná okkur í ein­hverjar göngur þar. Mig langar upp að Hengi­fossi og svo langar mig að fara í Stórurð. Svo langar okkur að fara í Stuðla­gil. En þetta fer allt eftir veðri hvernig okkur gengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur