Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Helga eignaðist dreng með skarð í vör -„Þetta var mjög erfitt“

Helga eignaðist dreng með skarð í vör -„Þetta var mjög erfitt“

Helga Sig­fús­dóttir og eig­in­maður hennar, Sigmar Örn Hilm­ars­son, eign­uð­ust sitt fyrsta barn árið 2014. Þau eign­uð­ust lít­inn dreng, Bergmar Loga, sem fædd­ist með skarð í vör, klof­inn góm og tanngóm. Helga ræddi sögu sína við Andreu Eyland í hlað­varps­þætt­inum Kviknar.

„Þetta var mjög erfitt“

Í 20 vikna sónar fengu þau að vita að dreng­ur­inn væri með skarð í vör og segir Helga áfallið hafa verið mikið. „Þetta var mjög erfitt.“ Maður Helgu komst ekki með í són­ar­inn en móðir Helgu kom í stað hans.

„Ég var aðal­lega að hugsa um kynið í þessum sónar. Svo fer ljós­móð­irin að skoða barnið og telja upp hvað er í lagi. Hún nefnir nýrun, hjartað og svo sér hún að barnið er með skarð í vör og segir mér það strax.“

Í sumum til­fellum, líkt og þeirra, er skarð í vör erfða­tengdur fæð­ing­ar­galli, en Sigmar faðir barns­ins fædd­ist einnig með skarð í vör. Segir Helga að í sumum til­fellum sé þetta þó ekki í fjöl­skyld­unni og þá sé í raun ekki vitað af hverju þetta ger­ist. En skarð í vör er algeng­ara hjá strákum en stelpum.

Ljós­móð­irin fékk fæð­ing­ar­lækni til að stað­festa grun sinn. „Ég fer bara að hágráta, mamma stendur við hlið­ina mér og huggar mig. Svo kemur fæð­ing­ar­lækn­ir­inn inn og stað­festir að þetta sé skarð í vör. Svo horfir hann á mig þar sem ég er hágrát­andi og segir: „Er þetta rosa­legt sjokk fyrir þig?““

Fannst Helgu spurn­ing fæð­ing­ar­lækn­is­ins und­ar­leg þar sem eðli­lega sé það áfall fyrir for­eldra að fá að vita að eitt­hvað sé að ófæddu barni sínu.

„Þetta var ekki það sem ég þurfti að heyra þegar ég fékk hann fyrst í fangið“

Með­gangan var flokkuð sem áhættu­með­ganga og því var vel fylgst með þeim mæðginum allan tím­ann.

Að sögn Helgu gekk fæð­ingin vel, en til­finn­ingin að fá nýfætt barn í hend­urnar tók veru­lega á hana.

„Þegar hann fædd­ist skoð­aði ljós­móð­irin strax upp í hann og sagði strax: „Já, hann er líka með klof­inn góm og tanngóm,““segir Helga og tók hún á þeirri stundu að dofna upp.

„Svo rétti hún mér bara barnið. Ég fann hvað ég varð mátt­laus og gat ekki haldið á barn­inu. Þetta var ekki það sem ég þurfti að heyra þegar ég fékk hann fyrst í fangið. Þarna viltu fá barnið þitt í fangið og fá að sjá hann í fyrsta skipti.“

Læknirinn bauð Helgu róandi

Bergmar Logi fór í sína fyrstu aðgerð rúm­lega þriggja mán­aða gam­all sem Helga segir að hafi verið mjög erfitt. Hún upp­lifði mik­inn van­mátt að geta ekk­ert gert, vit­andi að barnið hennar þyrfti að fara í aðgerðir og ganga í gegnum þessar þján­ingar.

Áður en Bergmar fór í sína fyrstu aðgerð fóru þau til heim­il­is­læknis. Lækn­ir­inn bauð Helgu róandi fyrir aðgerð­ina og sagði það algengt að for­eldrar  sem þurfi að fara með ung börn sína í svona aðgerðir þurfi aðstoð við að róa taug­arnar.

„Það sem er svo merki­legt er að mað­ur­inn minn var aldrei spurður, honum var ekk­ert boðið róandi, bara mér.“

Átakanleg upplifun

Helga segir aðgerð­ina hafa verið það erf­ið­asta sem hún hafi nokkurn tíma upp­lifað.

„Ég mun aldrei gleyma and­lit­inu á barn­inu mínum þegar hann var tek­inn upp og haldið var á honum út gang­inn og inn á skurð­stofu. Hann vissi ekk­ert hvað var í gangi og svo var ein­hver ókunnug mann­eskja að halda á honum og labba með hann í burtu frá okkur for­eldr­unum.“

Hún segir það hafa verið mjög átak­an­legt að sjá son sinn á vöknun eftir aðgerð­ina.

„Í raun­inni var eins og við værum bara búin að eign­ast nýtt barn. Hann leit ekk­ert út eins og hann leit út áður. Búið að loka vör­inni og hann lá þarna bara með alls­konar snúrur. Ég fór strax að hágráta.“

Þó sjokkið hafi verið mikið hjá Helgu var það enn meira hjá Sigmari. Byrjaði hann að hvítna allur upp þegar hann sá Bergmar, en Helga segir starfs­fólk sjúkra­húss­ins hafa verið fljótt að átta sig á að það væri að líða yfir hann, áfallið var slíkt.

Helga undrar sig á því af hverju feður eða makar fái ekki meiri stuðn­ing þegar kemur að svona málum. Hún seg­ist sjálf sjá það núna að hún hefði viljað veita honum betri stuðn­ing.

Draumur sem varð að veruleika

Helgu lang­aði að upp­lýsa börn og full­orðna meira um hvað það þýði fyrir barn að vera með skarð í vör og hvað fylgi því og skrif­aði bók­ina Valur eign­ast systk­ini, sem kom út árið 2019. Segir hún draum sinn þar með hafa ræst.

„Stráknum mínum finnst þetta rosa­lega fal­leg bók og hann segir: „Hann er eins og ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag