Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jónas hefur þurft að vera á tánum í faraldrinum: „Þegar börn eiga í hlut þá hleyp ég“

Jónas hefur þurft að vera á tánum í faraldrinum: „Þegar börn eiga í hlut þá hleyp ég“
Jónas Baldur Hallsson.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti strik sitt í reikn­ing ansi margra starfs­stétta og þeirra verk­ferla. Slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn eru meðal þeirra sem far­ald­ur­inn hafði mikil áhrif á, en verk­ferlar þeirra og við­bún­aður þurfti tölu­vert end­ur­skipu­lag.

Allt tekið á jákvæðninni

Jónas Baldur Hallsson, varð­stjóri í Slökkvi­liði Akur­eyrar segir það hafa kallað á mikla vinnu að við­halda öruggu starfs­um­hverfi, en allt hafi gengið merki­lega vel á stöð­inni fyrir norðan og á vinnu­staðnum hafi aldrei komið upp smit. „Það sem hjálp­aði gríð­ar­lega mikið hérna var hvað allir voru jákvæðir og til í þetta.

Menn voru ekk­ert hræddir, þetta var bara verk­efni sem við þurftum að sinna og allir hjálp­uð­ust að við það.

Og mér finnst yfir höfuð land­inn hafa tekið vel á þessu.“

Flækti útköll

Jónas segir mis­mik­inn covid við­búnað hafa verið eftir eðli hvers útkalls.

„Aðalsían sem við vorum að nota var Neyð­ar­línan. Hún var með fjórar spurn­ingar sem hún þurfti að spyrja og út frá því var ákveðið hvaða hlífð­ar­búnað við not­uðum. Ef þær upp­lýs­ingar feng­ust ekki, var það eitt af því fyrsta sem við þurftum að gera á vett­vangi, að spyrja þess­ara spurn­inga.“

Nauð­syn­legur hlífð­ar­bún­aður í covid útköllum.

Segir hann að ef um covid smit var að ræða eða sjúk­ling­ur­inn hafði verið í návígi við covid smit­aðan ein­stak­ling hafi þurft að nota allan hlífð­ar­búnað frá A til Ö, eins og hann orðar það; heil­galla, gler­augu, maska, tvö­falda hanska og stundum plast­hlíf yfir and­litið.

„Við förum alltaf eftir fjög­urra kóða kerf­inu, F1, F2, F3, F4 en F1 er það alvar­leg­asta. Ef það var F1 útkall þurftum við að meta hvað við vorum með, hvort þetta var end­ur­lífgun eða ekki, hvort þetta var eitt­hvað sem gat beðið í tvær mín­útur á meðan við göll­uðum menn og sendum þá eður ei.“

Segir Jónas að alltaf hafi verið reynt að nota eins fáar hendur og mögu­legt var í útköll til að minnka líkur á smiti. „Eins og F1 útköll, við fórum kannski varðir, tveir saman, annar fór inn til að kanna aðstæður, athuga hvort þyrfti hinn mann­inn inn. Ef ekki þá sinnti þessi eini maður þessu, fór svo bara aftur í og sat þar eða sinnti sínum sjúk­lingi ef þurfti en kom aldrei nálægt félaga sínum. Það eru gluggar á milli aft­ur­rýmis og fram­rýmis sem voru þá bara lok­aðir.“

Fjórir stórbrunar á Akureyri

Starfs­lið Slökkvi­liðs­ins á Akureyri var skipt í fjóra aðskilda hópa og ekk­ert sam­neyti á milli til að gæta þess að allur hóp­ur­inn yrði ei óvinnu­fær ef upp kæmi smit á vinnu­staðnum.
Á meðan far­ald­ur­inn hefur geisað hér á landi hafa orðið hvorki meira né minna en fjórir stór­brunar á Akureyri, þar sem allt til­tækt lið slökkvi­liðs­ins var kallað út.

Hvernig gekk það?

„Við þurftum auð­vitað öll að vera með maska og við vorum öll mjög með­vituð um ástandið. Þannig að menn voru ekki mikið að hrúga sér saman á vett­vangi. Það sem hjálp­aði líka  var að þegar þú ert í reykköfun  ertu með aðflutt loft, þá ertu bara með kút, svo þú ert nokkuð vel var­inn. Svo var bara allt þrifið rosa­lega vel.“

Fólk þyrpt­ist að til að berja brun­ann augum, var ekk­ert vanda­mál að stemma stigu við hóp­mynd­unum á vett­vangi?

„Lög­reglan stóð sig gríð­ar­lega vel við að halda fólki frá. Lög­reglan og Slökkvi­liðið hér á Akureyri eru líka með alveg ein­stakt sam­starf,“ segir Jónas og leggur áherslu á orð sín.

„Ætli mesta vandamálið hjá okkur hafi ekki verið í sjúkrafluginu“

Miðstöð sjúkra­flugs fyrir allt Ísland er á Akureyri í umsjá Slökkvi­liðs Akur­eyrar. Síðustu ár hefur sjúkra­flugi farið fjölg­andi en  til að gera fólki grein fyrir fjölda ferða þá voru til dæmis tæp­lega átta hund­ruð sjúkra­flug árið 2019.

Samkvæmt Jónasi var helsta flækju­stigið, þegar kom að kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, í kringum sjúkra­flugið.

Sjúkra­flug­vél Mýflugs sem stað­sett er á Akureyri.

„Ætli mesta vanda­málið hjá okkur hafi ekki verið í sjúkra­flug­inu. Þessi hylki voru svona mis­góð,“ segir hann og á við sér­út­búin hylki sem voru ætluð covid sjúkum. „Nýjasta hylkið pass­aði vel, en venju­lega vorum við ekki að flytja í hylk­inu. Sjúk­lingum var pakkað inn eins og ung­barni, vafið alveg inn í teppi, það var maski og tvö­faldir hanskar sem við settum á sjúk­ling­ana ef þeir gátu. Svo voru mikil þrif alltaf á milli.“

Tímafrekt

Segir hann þó að vissu­lega hafi útköll orðið tíma­frek­ari og mikið púsl fylgt þeim var­úð­ar­ráð­stöf­unum sem þurfti að gera. „Þeir sem voru í flutn­ingnum sáu um að þrífa bíl­inn, svo klæddu þeir sig úr hlífð­ar­bún­aði og settu í poka sem var sendur í brennslu. Þá var farið í sturtu og í hrein föt. Þannig að óhætt er að segja að hvert covid útkall hafi verið mjög langt,“ segir Jónas með áherslu.

„Þrifin á bílnum tók líka í heild yfir klukku­tíma og á meðan var hann ónot­hæfur. En við ákváðum í byrjun að ganga frekar einu skrefi of langt í við­bún­aði og örygg­is­ráð­stöf­unum, heldur en einu skrefi of stutt. Sem klár­lega virk­aði þar sem ekk­ert smit kom upp hér.“

Þá hafi allar vaktir byrjað með þrifum og gera enn. „Öll vakta­skipti byrja á því að við förum í hanska og erum með sápu­lög, ákveðna blöndu, og við förum yfir alla sjúkra­bíla, alla snertifleti, tæki, hand­föng, allt þetta. Svo er eld­húsið, varð­stofan, setu­stofan, þetta er allt strokið hátt og lágt, alltaf.“

Segir Jónas þetta aukna hrein­læti hafi líka haft í för með sér jákvæð áhrif. „Við tókum eftir því að fólk var miklu minna veikt heima. Flensan, það varð eng­inn var við flens­una. Hún hefur varla komið við sögu á þessu covid tíma­bili. Kvef og allt þetta drasl. Covid er búið að gera góða hluti líka,“ segir hann bros­leitur.

Tekið á taugarnar?

Nú er oft mikið í húfi þegar ykkur ber­ast útköll, jafn­vel manns­líf, tók það ekk­ert á taug­arnar að þurfa koma sér í allan þennan hlífð­ar­búnað áður en stokkið var af stað?

„Nei mér fannst menn mjög rólegir yfir þessu. Við vinnum alltaf í að halda okkur rólegum og það var engin und­an­tekn­ing þar á þó hlífð­ar­bún­að­ur­inn bætt­ist við. Hluti af því að halda sér rólegum er að hlaupa ekki og gera allt vit­laust. Þú æsir sjálfan þig upp með því, þú gengur bara rösk­lega, segir Jónas en bætir svo við, „nema þegar börn eiga í hlut, þá hleyp ég.“

Jónas Baldur Hallsson við Slökkvi­stöð Akur­eyrar.

Heilt yfir litið segir Jónas allt hafa gengið afar vel fyrir sig, þó vissu­lega hafi álagið orðið meira. „Maður þurfti að vera vel á tánum, en allt hefur gengið afar vel og má þakka því þeirri jákvæðni og hjálp­semi sem fólk hefur sýnt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur