Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Hildur í Vestmannaeyjum: „Ábyrgðarleysi að tjá sig með þessum hætti“

Hildur í Vestmannaeyjum: „Ábyrgðarleysi að tjá sig með þessum hætti“

Nýlega sagði Andrés Þor­steinn Sig­urðs­son yfir­haf­sögu­maður Vest­manna­eyja­hafnar starfi sínu lausu og kvart­aði undan því að hafa verið lagður í ein­elti af bæj­ar­stjóra Vest­manna­eyja, Írisi Róberts­dóttur, sem hafn­aði með öllu ásök­unum Andrésar.

Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum telur að mál­inu sé hvergi nærri lokið:

Nýlega sak­aði „Umfjöllun landsmiðla um meint ein­elti gagn­vart starfs­manni Vest­manna­eyja­bæjar hefur eðli máls­ins sam­kvæmt vakið mikla athygli og umræðu og valdið und­ir­rit­aðri áhyggjum. Engar upp­lýs­ingar um málið hafa verið veittar und­ir­rit­aðri þrátt fyrir beiðni um slíkt við for­mann bæj­ar­ráðs og hefur upp­lýs­inga­gjöf því tak­markast við umfjöllun fjöl­miðla þar sem meðal ann­ars er haft eftir bæj­ar­stjóra að þær alvar­legu ásak­anir sem settar séu fram séu „til­hæfu­lausar og órök­studdar með öllu,“ og tengir þær við ráðn­inga­mál og segir enn­fremur: „En í kjöl­far þess að hann fékk ekki starfið virð­ist hann hafa ákveðið að ráð­ast að mér per­sónu­lega með órök­studdum dylgjum sem ég vísa algjör­lega á bug.“

Hvernig sem mál­inu er farið er í það minnsta ábyrgð­ar­leysi af æðsta emb­ætt­is­manni Vest­manna­eyja­bæjar að tjá sig með jafn afger­andi hætti í fjöl­miðl­inum Mannlíf um mál­efni ein­staka starfs­manns og brýtur gegn reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum. Þar kemur skýrt fram í 6. grein að „við með­ferð máls skal atvinnu­rek­andi sýna var­færni og nær­gætni í aðgerðum sínum með virð­ingu og einka­hagi hlut­að­eig­andi starfs­manna í huga, meðal ann­ars með því að veita ekki óvið­kom­andi aðilum upp­lýs­ingar um mál og tryggja að utan­að­kom­andi aðilar sem kunna að koma að með­ferð máls geri slíkt hið sama.“

Hildur nefnir enn fremur að „vellíðan og öryggi starfs­manna er lyk­il­at­riði til að auka afköst, bæta starfsanda, minnka líkur á kulnun og draga úr kostn­að­ar­samri starfs­manna­veltu. Atvinnu­rek­endur geta gripið til ýmissa aðgerða til að auka starfs­á­nægju hjá vinnu­afli sínu með ýmsum umbunum á borð við sveigj­an­legri vinnu­tíma, hrósi, stöðu­hækk­unum, auk­inni ábyrgð í starfi og svo fram­vegis.

Ekki síður mik­il­vægt atriði er að tryggja eftir fremsta megni að upp­lifun starfs­manna af vinnu­stað sínum sé ekki nei­kvæð, þar líð­ist ekki ofbeldi af neinum toga og staðið sé vörð um almenn mann­rétt­indi starfs­manna, á borð við tján­ing­ar­frelsi.“

Og bætir við:

„Það er eðli­leg krafa að þegar starfs­maður upp­lifir sig sem þol­anda að tekið sé skjótt á mál­inu, af auð­mýkt og með virð­ingu fyrir hlut­að­eig­andi aðilum en ekki með sleggju­dómum af meintum ger­anda. Enda segir í 7. grein fyrr­greindrar reglu­gerðar að „atvinnu­rek­andi skal bregð­ast við eins fljótt og kostur er þegar honum berst kvörtun eða ábend­ing um ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni eða ofbeldi á vinnu­stað sem og verði hann var við slíka hegðun eða aðstæður á vinnu­staðnum sem líkur eru á að leitt geti til slíkrar hegð­unar verði ekki gripið til aðgerða. Skal atvinnu­rek­andi þá meta aðstæður í sam­vinnu við vinnu­verndar­full­trúa vinnu­stað­ar­ins, eftir því sem við á, og utan­að­kom­andi aðila ef með þarf.“ Það hlýtur að vera vilji allra hlut­að­eig­andi aðila að fá nið­ur­stöðu og sátt í málið sem fyrst, ekki síst til að draga megi lær­dóm af því til að koma megi í veg fyrir að aðrir starfs­menn sveit­ar­fé­lags­ins þurfi að búa við slíka upp­lifun.“

Hildur vekur máls á því að „það sem kemur svo fram í aðsendri grein meints þol­anda er ekki síður alvar­legt þegar látið er í veðri vaka að hugs­an­lega hafi aðrir starfs­menn hrak­ist úr störfum sínum hjá sveit­ar­fé­lag­inu á und­an­förnum árum.  Fyrr á kjör­tíma­bil­inu flutti und­ir­rituð bókun þar sem meiri­hluti H- og E- lista var minntur á að virða skoð­ana­frelsi starfs­manna Vest­manna­eyja­bæjar þar sem starfs­menn höfðu upp­lifað skammir frá yfir­mönnum fyrir að setja fram skoð­anir sínar meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum en tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna er tryggt með 41. grein stjórn­sýslu­laga. Til að setja hlut­ina í sam­hengi  þá voru starfs­menn Vest­manna­eyja­bæjar yfir 500 árið 2020 og því ansi stór hluti sam­fé­lags­ins sem ekki mætti tjá sig ef tján­ing­ar­frelsi starfs­manna væri ógnað. Í þessu ljósi telur und­ir­rituð mik­il­vægt að farið verði í heild­ræna og hlut­lausa athugun á vinnu­staða­menn­ingu á skrif­stofum sveit­ar­fé­lags­ins til að tryggja vellíðan og öryggi starfs­manna, koma í veg fyrir að ein­elti eða annað form ofbeldis fái þrif­ist og leiða í ljós hvort ásak­anir sem þessar eigi við rök að styðj­ast eða ekki.“

Hún segir að „ráðs­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa óskað eftir að málið verði tekið form­lega fyrir hjá fram­kvæmda- og hafn­ar­ráði en þeirri beiðni hefur verið hafnað og hefur und­ir­rituð ítrekað mik­il­vægi þess að fjallað verði með form­legum hætti um jafn alvar­legar ásak­anir sem snúa meðal ann­ars að vinnu­vernd starfs­manna. Það hlýtur að vera vilji meiri­hlut­ans að taka af allan vafa opin­ber­lega um það að vellíðan og öryggi starfs­manna er for­gangs­mál og að vinnu­vernd sé sinnt sam­kvæmt reglu­gerðum og óskað verði aðstoðar Vinnu­eft­ir­lits­ins hið fyrsta við málið sem væri eðli­leg fram­vinda.

Við hljótum öll að vilja búa í sam­fé­lagi þar sem allir íbúar sama hvaða störfum þeir gegna eða hópum þeir til­heyra hafi það frelsi að mega viðra skoð­anir sínar og leita réttar síns, jafn­vel þó það sé ekki öllum að skapi.“

Heimild: Eyja­fréttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag