Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þóranna ekkja með tvö ung börn eftir að maðurinn var myrtur: „Núna þá kvíði ég fyrir öllum kvöldum“

Þóranna ekkja með tvö ung börn eftir að maðurinn var myrtur: „Núna þá kvíði ég fyrir öllum kvöldum“
Mynd af Þórunni Helgu / Skjáskot Stöð 2.

Þóranna Helga Gunn­ars­dóttir, unnusta Armando Bequiri, bar í dag vitni fyrir dómi en hún var heima við í Rauða­gerði þegar Armando var myrtur þann 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. DV segir frá vitn­is­burð­inum.

Frásögnin tók á Þórönnu

Frá­sögnin tók mikið á Þórönnu en rödd hennar brast annað slagið í rétt­ar­salnum. Hún sagð­ist hafa farið inn með son sinn til að svæfa hann en sofnað með honum. Hún hafi svo vaknað rétt fyrir klukkan 23 og fattað að hún ætti eftir að setja föt í þurrkar­ann. Hún hafi því sent Armando skila­boð og beðið hann að taka úr þurrkar­anum þegar hann kæmi heim. Svaraði hann með orð­unum „ekk­ert stress,“ og lof­aði að gera það.

Vaknaði við skarkala

Hún hafi svo vaknað síðar um kvöldið við smá skarkala, en lýsti því þannig að þetta hafi hljó­mað „að mér finnst meira eins og ein­hver hafi dottið á hurð­ina í bíl­skúrnum svo ég hugsa bara – Ok Armando er kom­inn heim.“ Sagði hún að þetta væri ekk­ert óðli­legt því Armando átti það til að læð­ast þegar hann kæmi seint heim. Eilitlum tíma síðar kom nágranni hennar hlaup­andi upp stig­ann hjá henni og sagði henni að hringja í sjúkra­bíl. Á meðan Þóranna hringdi náði hún að koma sér í slopp, grípa son sinn og koma sér út. Þegar hún kom út sá hún að það var verið að reyna að end­ur­lífga Armando, „þá sé ég þegar ég er kom­inn út að strák­arnir eru við Armando.“ Fjórum mín­útum síðar var sjúkra­bíll­inn kom­inn. Í fyrstu töldu við­bragðs­að­ilar að um stungu­árás væri að ræða en það var ekki fyrr en lög­reglan fann skot­hylki á staðnum að Þóranna vissi að um skotárás væri að ræða.

Ein með tvo ung börn

Aðspurð um það hvernig henni liði í dag sagði hún að þetta væru alls ekki þær aðstæður sem hún hefði kosið, hún hafi verið ólétt þegar Armando dó en nú sé hún ein með tvö börn undir tveggja ára ald­ur­inn, „þetta er eitt­hvað sem ég hefði aldrei valið mér, og hvað þá að eign­ast tvö börn undir tveggja ára og vera ein. Núna þá kvíði ég fyrir öllum kvöldum því þau fara að sofa á sitt hvorum tíma sem er erfitt því þau þurfa bæði mömmu sína.“ Þá sagði hún að morðið og umfjöllun fjöl­miðla um málið hefði tekið mjög á hana. Hún hafi einnig þurft að selja bíl Armando og hafi reynt að selja íbúð hans án árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina