Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Ásdís Rán fraus algjörlega þegar Bruce Willis fór að daðra við hana

Ásdís Rán fraus algjörlega þegar Bruce Willis fór að daðra við hana

Ísdrottn­ingin Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Ásdísi Rán þarf vart að kynna fyrir neinum, enda ein fræg­asta fyr­ir­sæta lands­ins. Á síð­asta ári flutti Ásdís til Búlgaríu og býr hún þar enn ásamt kærasta sínum.
Mannlíf komst að því að Ásdís er góð í flestu og hræð­ist fátt og hún elskar íslenskt lamba­kjöt.

Fjöl­skyldu­hagir? Í sam­búð í Búlgaríu

Menntun/atvinna? Hitt og þetta. Hár­greiðslu­kona, háskóla­gráða í við­skipta­fræði og stjórnun, lög­giltur einka­þjálf­ari ásamt fleiri diplómum í heilsu­fræðum, þyrlu­flug­maður og svo atvinnu fyr­ir­sæta og fram­leið­andi af bæði vörum og sjón­varps­efni.

Upp­á­halds sjón­varps­efni?  Ég hef lítið eytt tíma í sjón­varp á minni lífs­leið en eftir að ég lenti í stóru slysi og var hálf rúm­liggj­andi í tvö ár þá upp­götv­aði ég Netflix og ég þarf ekk­ert mikið meira en það ef ég vil eyða tíma í sjón­varpið.

Leikari? Ég á nokkra en engan upp­á­halds – don’t ask me why! Charlize Theron, Bruce Willis, Nicolas Cage, Angelina Jolie, Cameron Diaz, Johnny Depp, Robert Downey. Man ekki fleiri akkúrat núna.

Rit­höf­undur? Jónas Reynir Gunn­ars­son, litli bróðir minn sem er svo ótrú­lega hæfi­leik­a­ríkur rit-lista­maður.

Bók eða bíó? Bíó frekar því ég er með of mik­inn athygl­is­brest.

Besti matur? Íslenska lamba­kjötið toppar flest allt.

Kók eða Pepsí? Ég drekk ekki gos og hef aldrei gert, þannig ég segi vatn fram yfir bæði.

Fal­leg­asti stað­ur­inn?  Úff erfitt að segja feg­urðin er svo stór­brotin á svo marga vegu. Ég hef verið það heppin að hafa búið og unnið út um allan heim og nátt­úran hefur öll sinn sjarma á ein­stakan en öðru­vísi hátt í sínu landi, þannig ég get ekki valið….

Hvað er skemmti­legt?  Lang skemmti­leg­ast að fljúga um loftin blá í þyrlu, alveg ótrú­leg til­finn­ing, sólin, sjór­inn, fjöllin, snjór­inn, vinir, veislur, ferða­lög, feg­urð, list, góður matur, gott vín og ýmis­legt fleira.

Hvað er leið­in­legt? Flest allt leið­in­legt, nei­kvæðni, dimma, kuldi, leið­in­legt fólk, ást­ar­sorg, rifr­ildi og ýmis­legt fleira.

Hvaða flokkur?  Ég er lítið inn í íslenskum stjórn­málum þar sem ég bý ekki á land­inu. En kannski ég skelli mér í þetta áhuga­mál fljót­lega eða fari í fram­boð ég er fljót að læra… 😉

Hvaða skemmti­staður? Heim­ur­inn er stærsti skemmti­stað­ur­inn 😉 Ég er ekki mikið fyrir þessa „almennu skemmti­staði“.

Kostir? Góð í flestu og hræð­ist ekki margt.

Lestir? Það er auð­veld­lega hægt að spilla mér og ég er mik­ill sæl­keri á flestum sviðum lífs­ins.

Hver er fynd­inn? Jahhh það eru ekki margir sem fá mig til að hlæja en börnin mín og dóttir mín á sér­stak­lega metið, ég grenja oft með hlát­urs tárum og get ekki hætt, sem er alveg pricelessss!

Hver er leið­in­legur? Fólk sem lifir í sjálfs­vor­kunn og þarf endi­lega að vera pósta væli eða nei­kvæðni stans­laust á sam­fé­lags­miðlum.

Trúir þú á drauga? Já algjör­lega.

Stærsta augna­blikið? Svo mörg að það væri bara asna­legt að setja lista í þessa spurn­ingu…

Mestu von­brigðin?  Fullt af þeim! Þau koma í ævi­sög­unni.

Hver er draum­ur­inn? Að elska og vera ham­ingju­söm, að börnin mín fái að upp­lifa heil­brigt líf, ást og frama, að fá að sjá barna­börnin mín vaxa úr grasi…

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Ætli það sé ekki að hafa náð mér í kærasta þrátt fyrir miklar covid lok­anir hér í Búlgaríu og svo náði ég loks­ins að ferma dóttur mína eftir enda­lausar covid frest­anir. Fékk covid og fatt­aði það ekki, ann­ars hefur ekki verið mikið að ger­ast í afrekum annað en covid!!!

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Já það má segja það að mér hafi tek­ist allt sem ég óskaði mér frá unga aldri, en ég er í smá vand­ræðum núna að vinna í nýjum forty plus mark­miðum sem þurfa að halda mér upp­tek­inni næstu árin 😊

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég fatt­aði að gaur­inn sem var að daðra við mig var Bruce Willis og ég fraus algjör­lega og kom ekki upp stöku orði, stam­aði bara og klúðr­aði þessu momenti algjör­lega.

Læsti mig óvart úti, þegar ég var í sótt­kví, á stiga­gangi, á tómu hót­eli, síma­laus, á brjósta­hald­ar­anum, ný komin úr sturtu með blautt hárið, á tás­unum og ómáluð í síð­ustu ferð til Íslands! Gerist varla betra.

Sorg­leg­asta stundin? Úff þær hafa verið svo margar og ég er bara fer­tug.

Mesta gleðin? Fæðing barn­anna, ástin og fjöl­skyldan saman komin.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Börnin, heilsan og geð­heilsan sér­stak­lega, ekki taka hlut­unum of alvar­lega eða eins og mamma kenndi mér frá unga aldri „þetta redd­ast“ og það merki­lega við það er að allt redd­ast ein­hvern veg­inn, þannig ekki eyða of miklum tíma í óþarfa áhyggjur!

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag