Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristrún Frostadóttir er ein skærasta stjarna kosningabaráttunnar: „Ég er svo mikil mamma“

Kristrún Frostadóttir er ein skærasta stjarna kosningabaráttunnar: „Ég er svo mikil mamma“
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

„…eftir á að hyggja hafði það sjálf­sagt tals­verð áhrif á hvernig ég sá hlut­verk kynj­anna, mér fannst eðli­leg­ast í heimi að konur gegndu sömu stöðum og karlar, þó ég hafi eins og margar konur stundum þurft að beita mér sér­stak­lega á karllægum vinnu­stöðum til að ná í gegn.“

Kristrún Frosta­dóttir er ein skærasta stjarna yfr­stand­andi kosn­inga­bar­átt­unnar. En hver er hún? Kristrún segir í Kvöld­við­tali Mannlífs að hún hafi ekki haft mik­inn tíma með dóttur sinni í kosn­inga­bar­átt­unni síð­ustu vikur:

„Ég er svo mikil mamma, finnst hún Maja mín algjör snill­ingur, svo skemmti­leg og sniðug. Hún skilur auð­vitað ekki hvað er í gangi, og lífið stoppar ekk­ert þó maður fari í kosn­ingar. Ég hlakka mikið til þegar hlut­irnir róast aðeins eftir 25. sept­em­ber, fara í sund, hús­dýra­garð­inn, horfa saman á Frozen.“

Kristrún er 33 ára hag­fræð­ingur, alin upp í 108 Reykja­vík, í Fossvogi og síðar Smá­í­búða­hverf­inu. Hún flutti aftur heim til Íslands fyrir fjórum árum eftir nám og vinnu í Banda­ríkj­unum og Bret­landi og hefur mest­megnis feng­ist við efna­hags­mála­grein­ingu hér­lendis og erlendis. Hún býr í dag á Háa­leit­is­braut­inni með mann­inum sínum honum Einar Bergi og tveggja og hálfs árs gam­alli dóttur þeirra Maríu Herdísi.

Hún á eina eldri systur sem er læknir í Svíþjóð og eldri bróður sem er bóka­safns­fræð­ingur og hópur af fríðum börnum sem fylgir. Í dag leiðir hún lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar sem verða 25. sept­em­ber.

„Ég átti ein­stak­lega góða æsku og er mjög mótuð af fjöl­skyldu minni,“ segir Kristrún.

Pabbi hennar var í hluta­starfi á tíma­bili þegar hún var yngri vegna þess að það hent­aði betur for­eldrum hennar.

Kristrún talar um að for­eldrar hennar hafi verið mjög hóf­samt fólk, hafa aldrei eytt um efni fram og ólu börnin sín upp með sann­girni að leið­ar­ljósi.

„Pabbi var líka mjög dug­legur að hvetja okkur til að bera ábyrgð snemma. Við krakk­arnir skrif­uðum undir samn­ing um hvaða heim­il­is­störf við tækjum að okkur, þetta var hengt upp á ísskáp­inn og við reglu­lega minnt á að mik­il­vægt væri að rjúfa ekki gildan samn­ing! Þegar við fengum Stöð 2 í nokkra mán­uði á tíma­bili fór nammi­pen­ing­ur­inn úr 75 kr í 50 kr, svona var pabbi alltaf dug­legur að vekja með­vit­und hjá okkur um að hlut­irnir kost­uðu!“

For­eldrar Kristrúnar voru með for­gangs­röð­un­ina á hreinu, „að vera frekar með okkur og skapa minn­ingar en að teygja sig um of í ver­ald­lega hluti.

Mér er minnistætt þegar þau sett­ust niður með okkur þegar við bjuggum enn þá í Dala­land­inu í lít­illi íbúð, systk­ini mín þá komin á ung­lings­aldur, og báru undir okkur hvort við vildum flytja í stærra hús­næði á kostnað þess að fara eitt­hvað útlanda næstu árin. Og við völdum öll að vera frekar áfram í Dala­land­inu! Eftir að ég eign­að­ist dóttur mína er ég mjög með­vituð um þetta, þó oft hafi verið mikið að gera hjá mér frá því að hún fædd­ist.“

Kristrún og Helga Vala

Það blund­aði lengi í Kristrúnu að fara í stjórn­málin, en hún fór snemma í vinnu þar sem hent­aði henni illa að vera í póli­tísku starfi sam­hliða. Þegar tæki­færið gafst á póli­tíska svið­inu fyrir síð­ustu jól þá þurfti hún í raun að ganga út úr vinn­unni sinni til að fylgja þess­ari nýju veg­ferð eftir.

Hún seg­ist hafa alltaf verið mjög mótuð af efna­hag­skrepp­unni 2008, enda hóf hún nám í hag­fræði haustið 2008. Hún talar um að allt sem hún lærði í námi erlendis tók mið af því að læra af hag­stjórn­ar­mis­tökum erlendis eftir síð­ustu kreppu. Henni datt ekki í hug að við myndum fara í gegnum annað eins áfall á sinni ævi, a.m.k. svona snemma, líkt og COVID varð. Hún var að vinna sem aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka við að greina efna­hags­mál þegar áfallið skall á þar síð­asta vor og það hellt­ist bara yfir hana vilji til að leggja almenni­lega af mörkum til umræð­unnar.

„Ég hef alltaf verið mjög sam­fé­lags­lega hugs­andi, en félags­hyggju­fólki hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að kunna ekki fjár­mál – sem er bara alls ekki rétt. Svona nátt­úrú­ham­fara­á­stand dregur fram hið sanna í sam­fé­lag­inu. Mér fannst svo sjálf­sagt að við sam­tryggðum okkur út úr þessu ástandi, það var svo ósann­gjarnt hvernig áfallið féll á fólk, bæði heilsu­fars­lega en líka efna­hags­lega. Ég hafði tjáð mig mikið sem hag­fræð­ingur bank­ans en fann svo að ég var að detta inn á aðra braut, umræðan sem ég var farin að taka þátt í varð stærri en starfið mitt – mig lang­aði til að leggja meira beint af mörkum til sam­fé­lags­ins“.

Kristrún ákvað svo að gefa kost á sér fyrir Sam­fylk­ing­una eftir að hafa fundið fyrir mik­illi hvatn­ingu.

„Ég stökk ein­fald­lega á það án þess að hugsa það um of. Núna eru bara nokkrir dagar í kosn­ingar en síð­ustu mán­uðir með flokknum og í kosn­inga­bar­átt­unni hafa verið ein­stak­lega gef­andi.“

Kristrín var aðal­hag­fræð­ingur hjá Kviku banka í þrjú ár áður en hún gekk til liðs við Sam­fylk­ing­una í vor. Þar áður hafði hún fyrst og fremst starfað við efna­hags­mála- og fjár­mála­grein­ingu, m.a. hjá Morgan Stanley fjár­fest­ing­ar­bank­anum í Banda­ríkj­unum og London eftir að hún lauk námi í Banda­ríkj­unum við Yale og Boston háskóla.

Und­an­farnar vikur og síð­ustu dagar hafa verið mikil törn en ótrú­lega skemmti­lega að sögn Kristrúnu.

 „Snert­ingar víða við kjós­endur, á förnum vegi og gegnum síma og við­töl.“

Það er ekki enn komin reynsla á þing­störfin, en flokks­starfið í Sam­fylk­ing­unni hefur verið mjög ánægju­legt, segir Kristrún.

,,Það sem hefur lík­lega komið mest á óvart er hversu mikil jákvæð við­brögð ég hef fengið við þess­ari ákvörðun að hverfa af braut úr fjár­mála­geir­anum og inn í stjórn­málin fyrir félags­lega þenkj­andi flokk.

Ein­hverjir héldu að ég væri nett galin að taka þessa ákvörðun, að fara í stjórn­mál, enda mikið áreiti sem fylgir stjórn­mál­unum og stundum nei­kvæðni. En stað­reyndin er sú að yfir­gnæf­andi hluti þeirra skila­boða sem mér hafa borist og snert­ingar hafa verið ótrú­lega jákvæðar.“

Henni finnst á fólki að því þyki gott að það sé alls konar fólk að gefa kost á sér í stjórn­málin, ekki bara ein­stak­lingar sem hafa alist upp í flokkum:

,,Líka finnst mér víða ríkj­andi við­horf að það þurfi meira af yngra fólki inn á þing, fólk með efna­hags­mála­þekk­ingu en eins líka bara fólk sem ætlar ekk­ert endi­lega að gera þetta að ævi­starfi heldur hugsar þetta sem tíma­bil í líf­inu þar sem hægt er að leggja eitt­hvað af mörkum til sam­fé­lags­ins. Svo sjáum við bara hvað setur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina