Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ása missti manninn í sjóslysi en á von á barni 49 ára: „Ég átti bara eftir að faðma þig og kveðja“

Ása missti manninn í sjóslysi en á von á barni 49 ára: „Ég átti bara eftir að faðma þig og kveðja“

Hún er 49 ára og á von á barni snemma á næsta ári; hún „ætt­leiddi“ fóst­ur­vísi í Lett­landi. Ása Dóra Finn­boga­dóttir grætur nú stundum af gleði en áður grét hún af sorg en hún missti sam­býl­is­mann sinn árið 2015 þegar hann drukkn­aði í sjó­slysi. Hún missti fóstur gengin sjö mán­uði á leið fyrir 20 árum og hún hefur misst marga nátengda sér, bæði fjöl­skyldu­með­limi og vini. Hún gekk á vegg eftir frá­fall sam­býl­is­manns­ins, upp­lifði kulnun, fékk hjálp meðal ann­ars á Heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði og hjá VIRK og seg­ist hafa getað sleppt tak­inu á sam­býl­is­mann­inum þegar hún gekk Jak­obs­veg­inn sem er um 800 kíló­metra ganga.

Ása Dóra Finn­boga­dóttir er 49 ára og er komin 19 vikur á leið. Hún missti fóstur gengin sjö mán­uði á leið fyrir 20 árum síðan með þáver­andi sam­býl­is­manni sínum. Hana dreymir um að verða móðir og er búin að gera nokkrar til­raunir til að verða ófrísk og var jafn­vel orðin opin fyrir því að ætt­leiða barn. Hún fór í gegnum ferli hjá Barna­vernd­ar­stofu upp á að taka að sér fóst­ur­barn, fékk jákvæða umsögn þar en var í raun ekki komin á nógu góðan stað eftir áfallið og ekk­ert varð úr því.

Ósk hennar rætt­ist svo í vor þegar hún hélt til Riga í Lett­landi til að fara í glasa­frjóvgun þar sem hún valdi þá leið að „ætt­leiða fóst­ur­vísi” eins og hún orðar það. Hún var búin að vera í þó nokkurn tíma á lista hér heima í von um að fá gjafa­egg og fara í glasa­frjóvgun en segir að í fyrstu hafi hún fengið synjun þar sem hún var í ofþyngd, var með of háan BMI-stuðul. Hún fór í maga­ermis­að­gerð í fyrra­haust og hefur lést um 30 kíló en segir að hún hafi verið orðin of sein til að fá gef­ins egg hér á landi. „Ég grenj­aði í tvo daga en svo benti læknir sem hafði verið mér til halds og trausts á konu sem hafði farið í frjó­sem­is­með­ferð í Lett­landi og stakk hann upp á að ég færi þangað. Hún hafði sam­band við Medical Travel sem býður meðal ann­ars upp á frjó­sem­is­með­ferðir í sam­starfi við frjó­sem­is­klínik­ina IVF Riga.“

Ása Dóra fór svo í lok maí til Riga þar sem hún fékk settan upp fóst­ur­vísi og varð ófrísk eftir fyrstu til­raun. Hún segir að hún hafi í raun ætt­leitt fóst­ur­vísi. „Par eða ein­hleyp kona hafði valið úr fjölda sæðis- og eggja­gjafa, eign­ast þau börn sem þau eða hún þráðu og ákveðið að gefa þá fóst­ur­vísa sem umfram voru. Á Íslandi býðst þetta því miður ekki en í slíkum til­vikum er fóst­ur­vís­unum eytt.“ Ása Dóra ákvað svo að taka frá annan fóst­ur­vísi ef til þess kæmi að þessi til­raun heppn­að­ist ekki eða ef svo vel tæk­ist til með þá fyrri að hún tæki þá ákvörðun að eign­ast annað barn. Þess má geta að kyn­frum­urnar í þeim fóst­ur­vísi eru úr sömu aðilum og þeim sem settur var upp og yrðu börnin því alsystk­ini.

Hún segir að hún hafi í raun ætt­leitt fóst­ur­vísi.

„Ég vissi strax að þetta væri stelpa af því að fóst­ur­vísir­inn var ski­maður fyrir helstu erfða­göllum en ég mátti samt ekki vita það fyrr en eftir upp­setn­ing­una hvort kynið þetta væri því ekki er leyfi­legt að velja kyn.“ Ása Dór veit að konan og mað­ur­inn sem gáfu kyn­frum­urnar eru bæði ljós­hærð og með græn augu. Hún er um 1.60 m og hann um 1.80 m; hún segir að mögu­leik­arnir hafi verið fjórir – fóst­ur­vísar úr fjórum sæðis- og eggja­gjafa­pörum. Hún seg­ist ekki hafa lagt mikið upp úr vali á útlitsein­kennum þar sem ein­göngu er hægt er að sjá fimm atriði: Hæð, þyngd, augn- og hára­lit ásamt blóð­flokki. Þar sem hún hafði lengi séð fyrir sér að eign­ast hávax­inn mann þá varð því sá sem er 1.80 m og hæstur sæð­is­gjaf­anna fyrir val­inu. Hún veit að gjaf­ar­arnir eru frá Lett­landi,en hún segir að klínikin sé nú farin að nota kyn­frumur úr fólki frá fleiri löndum.

Ása Dóra segir að hér á landi sé upp­setn­ing á fóst­ur­vísi ekki leyfi­leg nema til 49 ára ald­urs en í Lett­landi er miðað við 55 ár og jafn­vel meira ef konan er hraust.

„Ég hvet konur til að gefa egg eða að skoða það að gefa egg. Listinn sem ég var á hér heima mjak­að­ist varla en ég var á honum í eitt og hálft ár og var ennþá númer 28 þegar ég varð loks­ins nógu létt til að mega fara í með­ferð – en þá var það of seint þar sem ég hefði aldrei náð að fá egg fyrir afmæl­is­dag­inn minn, 18.júní í sumar.“

Hún segir að með­gangan hafi gengið vel. „Ég er búin að vera mjög hraust fyrir utan að ég svaf mikið í nokkrar vikur og er núna fyrst að hress­ast og ég hef varla fundið fyrir ógleði. Ég hef hins vegar lést út af maga­ermis­að­gerð­inni sem þykir ekki vera æski­legt á með­göngu. Svo þarf ég að passa upp á blóð­syk­ur­inn en ég fékk með­göngu­syk­ur­sýki síð­ast.“

Ása Dóra segir að hér á landi sé upp­setn­ing á fóst­ur­vísi ekki leyfi­leg nema til 49 ára ald­urs en í Lett­landi er miðað við 55 ár og jafn­vel meira ef konan er hraust.

Magnús Björnsson

Ása Dóra fædd­ist og ólst upp á Dalvík. Fóst­ur­faðir hennar lést þegar hún var níu ára og lést móð­ur­amma hennar dag­inn sem hann var jarð­aður. Móðir hennar flutti ári síðar með dætur sínar tvær til höf­uð­borg­ar­innar þar sem hún fór í nám þar sem mæðgurnar bjuggu í þrjú ár. Þaðan fluttu þær norður og lauk Ása Dóra síð­ustu þremur grunn­skóla­ár­unum í Varmar­hlíð. Hún kláraði stúd­ents­próf frá Mennta­skól­anum á Akureyri og lauk síðar BS-prófi í lands­lags­arki­tektúr/umhverf­is­skipu­lagi árið 2010 frá Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. „Þetta var rétt eftir hrun og þá var eng­inn að skipu­leggja neitt í kringum sig. Ég ákvað þess vegna að kíkja á ferða­bans­ann og fékk sum­ar­vinnu á Bíldudal við að reka Skrímsla­setrið.“

Hún kynnt­ist ást­inni sinni á Bíldudal. Hún heyrði mikið talað um Magga Björns áður en hún hitti hann fyrst. „Hann var brott­fluttur Bíl­dæl­ingur en greini­lega mikið tengdur staðnum ennþá.“ Svo var haldið þorra­blót vet­ur­inn 2011 og hún dans­aði við Magga Björns. Hún varð skotin. „Við héldum reyndar bæði að hitt hefði engan áhuga og létum þar við sitja.“ Þau fóru svo að hitt­ast í tengslum við vinnu hennar en hann hafði aðgang að flutn­inga­bíl vegna vinnu sinnar og aðstoð­aði hana við að ná í aðföng fyrir fjöl­skyldu­há­tíð­ina Bíldu­dals grænar sem haldin var um sum­arið. „Hann var að hjálpa mér og ég bauð honum í kaffi og upp úr því bauð hann mér á deit.“

Við héldum reyndar bæði að hitt hefði engan áhuga og létum þar við sitja.

Hún segir að Magnús Björns­son hafi verið frá­bær maður. „Allir sem þekktu hann vita það”. Hann var svo mik­ill karakter. Hann var ein­hvern veg­inn svo mik­ill hluti af Bíldudal og Bíldu­dalur hluti af honum. Hann var svo­lítið af gamla skól­anum; en alltaf á skemmti­legan hátt. Hann borð­aði til dæmis sel og mikið af hangi­kjöti. Hann var líka rosa­lega dug­legur og vildi allt fyrir alla gera. Börnin hans fjögur – ríki­dæmið hans – áttu stóran hluta í hjarta hans og lífi.“

Þau náðu fjórum árum saman, sem Ásu fannst þó frekar eins og tutt­ugu ár, svo mikið bröll­uðu þau saman á þessum tíma. Magnús bjó á Selfossi fyrstu þrjú árin en flutti svo vestur í tengslum við vinnu og ást­ina og bjuggu þau þá saman í eitt ár „Áður en hann flutti vestur hitt­umst við stundum á miðri leið ef tæki­færi var til þess.“

Síðasta kveðjan

Júlí­mán­uður árið 2015 var eins og júlí­mán­uðir eru oft: Stundum sól. Og stundum dregur ský fyrir sólu þótt blíð­skap­ar­veður sé. Öldur hafs­ins geta verið svo sterkar að bátar fara niður.

Magnús fór nokkra túra þetta sumar og Ása Dóra var ósátt við það.

„Hann lagði af stað í enn einn túr­inn á sunnu­degi í blíð­skap­ar­veðri og ég hafði allt á hornum mér og var rosa­lega reið inni í mér yfir að hann væri að fara. Það var ekki endi­lega út af því að ég væri hrædd um hann heldur var svo mikið í gangi hjá okkur í sam­bandi við alls kyns fram­kvæmdir sem við stóðum í varð­andi gisti­heim­ili sem hann aðstoð­aði mig við að koma upp og svo vildi ég bara hafa hann hjá mér.

Ég var því í rosa fýlu þegar hann var að fara til að fara á sjó­inn, stóð úti og var að sópa stétt­ina fyrir framan húsið þar sem við bjuggum. Allt í einu snéri hann svo bílnum við og ók upp að hús­inu og varð ég mjög hissa og spurði hvað væri nú í gangi. Hann kom upp tröpp­urnar og sagði: „Elskan mín, ég átti bara eftir að faðma þig og kveðja.“ Hann tók utan um mig og kvaddi mig en bætti svo við að hann hefði reyndar gleymt síma­hleðslu­tæk­inu sínu og var að ná í það. Ef ég hefði ekki þessa minn­ingu eða upp­lifun þá hefði ég örugg­lega átt erf­ið­ara ef ég hefði skilið við hann í reiði.“

Elskan mín, ég átti bara eftir að faðma þig og kveðja.

Þetta var nefni­lega í síð­asta skipti sem Ása Dóra sá og tal­aði við Magnús. Fiski­bát­ur­inn sem hann var á, Jón Hákon, sökk undan Aðalvík tveimur dögum síðar.

„Við rákum gisti­heim­ili í bænum og dag­inn sem sjó­slysið varð var ég að ganga frá eftir morg­un­mat­inn þegar ég sá prest­inn og lög­reglu­stjór­ann koma inn, ég hélt þau væru að vill­ast.“ Og Ásu Dóru var til­kynnt að Magnús hefði drukknað. „Sem betur fer fannst hann og náð­ist með bátnum sem bjarg­aði skips­fé­lögum hans þannig að við gátum kvatt hann og jarðað”.

Reiði, pirringur og viðkvæmni

Við tóku erfið ár.

„Mér fannst vera erfitt að vera komin í þau spor að vera konan sem missti mann­inn sinn í þessu litla þorpi.“

Þögn.

„Það er svo skrýtið hvaða til­finn­ingar koma upp við svona áfall og hvað maður bítur í sig”. Hún fór suður fyrir jarð­ar­för­ina og keypti bláan kjól og gular sokka­buxur en Magnús var jarð­aður í bláum jakka­fötum og með gult bindi.

„Mig lang­aði svo til að vera rosa­lega fín til að sýna hvað Maggi átti sæta konu.“ Hún kímir. „Hann var 18 árum eldri en ég og þetta var ein­hver til­finn­ing sem ég upp­lifði.“

Lagið fal­lega „Ég er kom­inn heim“ var sungið í jarð­ar­för­inni og segir Ása Dóra að síðan eigi hún það til að bresta í grát þegar hún heyrir það sem og önnur lög sem voru þá spiluð og sungin. „Seinna um sum­arið var ég á Fiskideg­inum mikla á Dalvík og ég fór að hágráta þegar lagið var sungið á meðan aðrir voru voða glaðir að syngja með.“

Það var fagur júlí­dagur þegar Jón Hákon fórst og segir Ása Dóra að stundum þegar er sól og blíða þá hellist yfir sig óþæg­inda­til­finn­ing.

„Ég fann strax fyrir miklum ein­mana­leika eftir að ég missti Magga, jafn­vel þó ég væri í kringum fólk; mér fannst ég ein­hvern veg­inn alltaf vera ein sama hver var hjá mér. Svo fannst mér fólk fæl­ast mig eftir að hann dó. Ég er í sam­tök­unum Ljóns­hjarta sem er fyrir ungt fólk sem hefur misst maka og fleiri þar hafa upp­lifað þetta; það er eins og fólk sem hefur ekki upp­lifað sorg­ina forð­ist að tala um dauð­ann og viti ekki hvernig það á að vera í kringum þá sem hafa misst. Það er eins og það eigi svo erfitt með að nálg­ast mann. Mér fannst þetta mjög erfitt.“

Ég fann strax fyrir miklum ein­mana­leika eftir að ég missti Magga, jafn­vel þó ég væri í kringum fólk; mér fannst ég ein­hvern veg­inn alltaf vera ein sama hver var hjá mér.

Hún talar um að hafa upp­lifað reiði sem hún fann fyrir eftir að Magnús dó sem hún segir að sé hluti af sorg­ar­ferl­inu. „Ég fann líka stundum fyrir pirr­ingi og það þurfti svo lítið til að pirra mig. Ég varð stundum brjáluð yfir minnstu hlutum. Svo varð ég stundum mjög við­kvæm og brast í grát liggur við hvar sem var.“

Ása Dóra fór í febr­úar 2016 á heilsu­stofn­un­ina í Hvera­gerði þar sem henni var farið að líða svo illa og þá um haustið ákvað hún að ganga Jak­obs­veg­inn á Spáni sem er um 800 kíló­metra ganga. Í byrjun göng­unnar á erf­iðum kafla upp í Pýrena­fjöll­unum gekk hún hágrát­andi í vindi og rign­ingu. Þar í spænskri nátt­úru náði hún að sleppa tök­unum á Magnúsi. Hún seg­ist þó hafa fundið fyrir návist hans á göng­unni. Og það gerir hún enn þann dag í dag.

Eftir að heim kom keypti hún ein 600 hekt­ara jörð í Svarf­að­ar­dal og kom upp heimagist­ingu í hús­inu á jörð­inni. Hún sem hafði gengið meira í Spán­ar­ferð­inni en margur getur fór að líða æ verr þrátt fyrir dásam­legt umhverfi í norð­lenskri nátt­úru. Hún upp­lifði líka þung­lyndi. Og kulnun. Segist hafa lent á vegg. „Ég var þá stundum heima í nátt­föt­unum og gerði ekki neitt. Ég var alger­lega van­virk og lá og grét. Mér fannst ég vera rosa­lega van­máttug. Mér fannst ég ekki geta gert neitt. Ég var ein­hvern veg­inn lömuð. Ég gat ekk­ert gert nema það sem þurfti að gera; taka á móti gest­unum, þrífa her­bergin og gefa gest­unum morg­un­mat. Þó ég ætti pen­ing til að borga reikn­ing­ana þá hafði ég mig ekki í það og lenti jafn­vel í van­skilum út af því.“

Mér fannst ég ekki geta gert neitt. Ég var ein­hvern veg­inn lömuð.

Hún seldi jörð­ina og fór að vinna í Menn­ing­ar­hús­inu á Dalvík. Fyrst í fullri vinnu en svo í hluta­starfi. Ása Dóra var í ofþyngd og fékk pláss á Krist­nesi til að reyna að létta sig en henni var gert ljóst að hún yrði að leggj­ast inn í fimm vikur vegna þess prógrams og varð það til þess að hún sætti sig við að hún gæti ekki haldið svona áfram, hætti í vinn­unni og fékk síðan til­vísun í VIRK. „Með aðstoð starfs­manns þar fundum við leiðir til þess að láta mér líða betur. Ég fór til dæmis til sál­fræð­ings og í sjúkra­þjálfun og nudd en aðal­lega fékk ég tíma til að jafna mig í næði. Þetta virk­aði mjög vel og smátt og smátt fór ég að bragg­ast.“

Lífið tók að brosa við henni á ný.

Lífið getur verið æðislegt

Ása Dóra segir að fyrir síð­ustu jól hafi sér allt í einu fund­ist hún vera til­búin til þess að taka aftur á móti ham­ingj­unni í lífi sínu. „Það tók mig fimm og hálft ár að ná mér eftir frá­falls Magga af því að þegar hann dó þá ein­hvern veg­inn valt allt upp á yfir­borðið sem ég hafði gengið í gegnum í líf­inu alveg frá því ég var krakki; missir fjöl­skyldu­með­lima og ætt­ingja.

Ég er að eðl­is­fari jákvæð og bjart­sýn og það held ég að hafi bjargað mér í gegnum allar þessar hremm­ingar. Það má segja að árin 2020 og 2021 séu búin að vera bestu ár ævi minnar. Mér hefur aldrei liðið jafn­vel með sjálfa mig. Ég barð­ist við van­líðan og þung­lyndi af og til frá því ég var barn og ég held að áfallastreituröskun, eins og þetta er kallað, sé van­met­inn áhrifa­valdur á heilsu þeirra sem lent hafa í áföllum í líf­inu. Maður fór ein­hvern veg­inn í gegnum lífið á hnú­unum og beit á jaxl­inn þegar eitt­hvað kom fyrir og hélt áfram. Svo safn­að­ist þetta upp og þegar Magnús dó þá sprakk þetta ein­hvern veg­inn.“

Hún seg­ist vera ótrú­lega ham­ingju­söm í dag. „Það er allt búið að ganga upp sem mig lang­aði til að gerð­ist; nema kannski að eign­ast nýjan mann. Ég er ennþá ein. En ég er líka slök gagn­vart því og held að hann birt­ist þegar minnst varir. Mér líður miklu betur með sjálfri mér heldur en ég hef gert hingað til þegar ég hef verið ein­hleyp – er sann­ar­lega ham­ingju­söm, enda hef ég mik­ils að hlakka til þegar ég fæ dóttur mína í fangið.“

Ása Dóra seg­ist oft finna fyrir Magnúsi eins og þegar hefur komið fram og hann hafi verið nálægur í gegnum frjó­sem­is­ferlið og það sem af er með­göng­unnar. „Honum fannst dýr­mætt að upp­lifa að eign­ast börn og vildi að ég upp­lifði það líka.“ Hún talar um stórar og heitar hendur hans sem hún seg­ist fundið fyrir í jarð­ar­för­inni á bak­inu á sér eins og hann væri að hugga hana og hún seg­ist enn stundum finna fyrir þeim. Hlýjunni. „Ég finn stundum þennan hita á bak­inu á mér, eins og hann leggi hend­urnar þar; maður er  stundum svo skrýt­inn.“ Hún kímir. „Ef ég er ekki viss hvort ég sé að gera rétt eða ekki og ef ég finn þessa til­finn­ingu þá finnst mér ég vera að gera rétt. Þegar maður upp­lifir svona mikla sorg þá koma upp alls konar skrýtnar til­finn­ingar.“

Hún segir að það sé óyf­ir­stíg­an­lega erfitt þegar fólk missir ást­vin en að það sé mik­il­vægt að fólk nái að verða heilt aftur. „Það er ömur­legt þegar fólk er fast í sorg­inni alla ævi, bæði fyrir það sjálft og fólk í kringum það. Það er eitt­hvað sem ég ætl­aði aldrei að láta ger­ast. Það er búið að vera mis­erfitt að kom­ast í gegnum þetta en það hafð­ist. Eftir allar þessar hremm­ingar er mik­il­vægt að muna að það er líka til feg­urð og að lífið getur verið æðis­legt. Maður þarf svo­lítið að ákveða að verða ham­ingju­samur og að hlut­irnir gangi vel. Það skiptir máli hvernig maður kemur sér út úr áföllum og hvernig maður höndlar þau,“ segir verð­andi móð­irin sem hefur und­an­farna mán­uði oft grátið úr gleði. Nýtt líf er á leið­inni. Litla dóttirin sem verður senni­lega ljós­hærð og með græn augu.

Það er búið að vera mis­erfitt að kom­ast í gegnum þetta en það hafð­ist.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur