Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lokayfirlýsing DV: Jón Ósmann sakaður um rangfærslur og áreitni

Lokayfirlýsing DV: Jón Ósmann sakaður um rangfærslur og áreitni

Um hádeg­is­bil í dag sendi DV frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls sem hefur verið í hámæli und­an­farna daga. Mál þetta varðar hraða afgreiðslu Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á svoköll­uðu liprunar­bréfi vegna ferðar ólög­ráða barns til föður síns, sem búsettur er erlendis, fyrir til­stilli Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar. Þetta átti sér stað í byrjun árs 2020, þegar heims­far­ald­ur­inn var fyrst að fara af stað af fullum þunga.

Jakob Frímann er náinn vinur föð­ur­ins og fyrrum starfs­maður Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en hann sendi beiðn­ina á ráðu­neytið og óskaði eftir hraðri afgreiðslu máls­ins, sem tók á end­anum ein­ungis nokkrar klukku­stundir. Að sögn móður barns­ins, sem fór með lög­heim­ili þess, hafði hún ekki heim­ilað að ferðin yrði farin á þessum tíma­punkti. DV sendi frá sér aðra yfir­lýs­ingu á dög­unum þar sem blaða­menn lýstu tveggja sól­ar­hringa áreitni, hót­unum og and­legu ofbeldi frá fólki nákomnu Jakobi Frímanni, sem að sögn þeirra hófst eftir að blaða­maður hafði hringt í Jakob til að gefa honum færi á að tjá sig um málið. Mannlíf tók frétt­ina, yfir­lýs­ingar og fyr­ir­liggj­andi gögn saman og skýrði út hér.

Sjá einnig: Furðu­legt frétta­mál: Jakob Frímann, liprunar­bréfið, barnið og DV

Loka­yf­ir­lýs­ing DV

Í nýrri yfir­lýs­ingu DV, sem jafn­framt er sögð sú síð­asta, er nýlegri yfir­lýs­ingu föður barns­ins sem liprunar­bréfið sner­ist um svarað. Það er rit­stjóri DV, Björn Þor­finns­son, sem er skrif­aður fyrir grein­inni.

Þar segir meðal ann­ars að ástæða þess að DV hafi ekki viljað birta yfir­lýs­ingu föð­ur­ins, Jóns Ósmanns Arasonar, sé sú að með yfir­lýs­ingu sinni hafi Jón Ósmann óbeint opin­berað nafn sonar síns, drengs í við­kvæmri stöðu. Auk þess segir að yfir­lýs­ing Jóns hafi inni­haldið rætnar ásak­anir í garð móður drengs­ins.

DV áréttar að dreng­ur­inn hafi verið fjórtán ára þegar upp­haf­lega málið, er varðar umtalað liprunar­bréf, kom upp. Hann hafi orðið fimmtán ára síð­asta vor og sé því ekki tæp­lega sextán ára, eins og fað­ir­inn talar um í skrifum sínum.

Upphafleg frétt snerist ekki um fjölskylduharmleik

Í yfir­lýs­ingu blaðs­ins segir sömu­leiðis að upp­haf­leg frétt hafi ekki á nokkurn hátt snú­ist um harm­leik og erf­ið­leika þess­arar fjöl­skyldu og drengs­ins, heldur hafi fréttin verið um meint óeðli­leg afskipti Jakobs Frímanns af útgáfu liprunar­bréfs­ins og sam­skipti hans við Utan­rík­is­ráðu­neytið – einkum og sér í lagi sú stað­reynd að Jakob Frímann hafi fengið að því er virð­ist flýti­með­ferð á útgáfu bréfs­ins og athuga­semda­lausa úrvinnslu þess. Það sjá­ist best á því að ráðu­neytið hafi síðar fundið sig knúið til að aft­ur­kalla bréfið og biðja móður drengs­ins afsök­unar á því að hafa ekki rann­sakað mála­vexti og full­yrð­ing­arnar sem fram komu í erindi Jakobs Frímanns til ráðu­neyt­is­ins. Sömu­leiðis er áréttað að DV hafi eftir fremsta megni reynt að hlífa drengnum við gerð frétt­ar­innar. Talað hafi verið um barn en ekki dreng og ekki gefið upp hvar í heim­inum fað­ir­inn væri búsettur. Ekkert í fyrstu frétt­inni hafi verið rekj­an­legt til hans í augum almenn­ings.

Hvers vegna kom Jakob að málinu?

Líkt og Mannlíf velti upp í lok nýlegrar frétta­skýr­ingar um málið, segir í yfir­lýs­ingu DV að það skjóti skökku við að bæði Jakob Frímann og Jón Ósmann geri lítið úr útgáfu liprunar­bréfs­ins og aðkomu Jakobs. Þar segir að ef hver sem er hefði sann­ar­lega getað fengið slíkt liprunar­bréf jafn hratt og auð­veld­lega og raun ber vitni í þessu máli, þá hefði Jón Ósmann sann­ar­lega getað sent beiðn­ina sjálfur án allrar aðkomu Jakobs Frímanns.

Rit­stjór­inn ítrekar að ljóst sé að menn­irnir tveir hafi nýtt sér stöðu og sam­bönd Jakobs Frímanns, sem þjóð­þekkts ein­stak­lings og fyrrum starfs­manns Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, til að fá liprunar­bréfið útgefið og stimplað á aðeins nokkrum klukku­stundum, athuga­semda­laust. Fullyrt er að á þessum tíma, í byrjun veiru­far­ald­urs­ins, hafi verið afar mikið álag á Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og að um 2000 liprunar­bréf hafi verið gefin út á þessum tíma.

Rit­stjóri DV bendir á að Jakob Frímann hafi lagt ríka áherslu á það við blaða­mann að upp­haf­lega fréttin færi ekki út fyrr en eftir kosn­ingar. Það hefur Jakob sjálfur sagt í sinni eigin yfir­lýs­ingu.

Jón Ósmann sakaður um áreitni og rangfærslur

Í yfir­lýs­ingu DV segir að Jón Ósmann hafi byrjað að áreita starfs­fólk DV aðeins stuttu eftir að blaða­maður hafði sam­band við Jakob Frímann vegna máls­ins. Einnig segir að strax eftir að fyrsta frétt DV um málið kom út hafi Jón Ósmann og sonur hans byrjað að skrifa athuga­semdir við frétt­ina á vefnum. Fréttin hafi sann­ar­lega ekki fjallað um fjöl­skyldu­harm­leik eða for­ræð­is­mál. Þar með hafi nöfn þeirra beggja verið opin­beruð, en Jón Ósmann hefur sakað DV um að hafa opin­berað feðgana.

Björn segir þá ákvörðun að loka athuga­semda­kerf­inu hafa verið tekna til að hlífa mætti drengnum við nafn­birt­ingu.

Enn­fremur segir að Jón Ósmann hafi ítrekað reynt að fá blaðið til að fjalla um for­sjár­deilu for­eldr­anna og þar með son hans sem yrði þannig nafn­greindur, beint eða óbeint. Það hafi DV ekki viljað gera.

Rit­stjór­inn segir blaðið ekki hafa byggt hina upp­runa­legu frétt á túlkun móð­ur­innar, eins og Jón Ósmann sagði í sinni yfir­lýs­ingu. Blaðið hafi fengið gögn máls­ins frá fjöl­skyldu og aðstand­endum móð­ur­innar og einu beinu sam­skipti DV við móð­ur­ina hafi verið í formi sím­tals þar sem hún var spurð hvort hún setti sig upp á móti umfjöll­un­inni. Það var gert vegna þess að fréttin byggði að hluta til á gögnum um sam­skipti lög­fræð­ings móð­ur­innar við Utan­rík­is­ráðu­neytið. Jakobi Frímanni hafi sömu­leiðis verið gefið tæki­færi til að bregð­ast við og segja frá sinni hlið máls­ins.

Símtöl og „viðurstyggileg skeyti“

Um sam­skipti og sím­töl Jóns Ósmanns við DV segir meðal ann­ars:

„Í fyrsta sím­tali Jóns við Erlu Hlyns­dóttur, aðstoð­ar­rit­stjóra DV, þá má heyra Jón Ósmann vaða til , banka kröftu­lega á hurð sonar síns og krefj­ast þess að hann tal­aði við blaða­mann sem hann full­yrðir að móðir hans hafi sigað á hann. Sú staða sem sak­laus dreng­ur­inn var settur í var í meira lagi ógeð­felld og lýsir sjúku hug­ar­á­standi. Hver myndi ekki hlífa barn­inu sínu við slíku?“

Jón Ósmann sagði í yfir­lýs­ingu sinni að hann hefði ein­ungis einu sinni talað við blaða­mann­inn Erlu Hlyns­dóttur í síma. Í yfir­lýs­ingu DV er það sagt und­ar­leg stað­hæf­ing hjá Jóni, því sím­tölin hafi verið mun fleiri. Sömu­leiðis eru „við­ur­styggi­leg skeyti“ sögð hafa verið send á Erlu Hlyns­dóttur og yfir­menn fyr­ir­tæk­is­ins í nafni son­ar­ins. Björn segir son­inn hafa verið skráðan með tölvu­póst­fang í fyr­ir­tæki föð­ur­ins.

Að lokum segir rit­stjór­inn að það hafi síð­ast í gær­kvöldi gerst að skeyti bár­ust blaða­manni DV í nafni son­ar­ins, en það hafi inni­haldið hót­anir um lík­am­legt ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina