Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ásdís fasteignasali: „Elskar litríkan og hollan mat“

Ásdís fasteignasali: „Elskar litríkan og hollan mat“
Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Ásdís Ósk Vals­dóttir, fast­eigna­sali og lífs­stíls­gúrú, gjör­breytti mat­ar­venjum sínum og borðar nú 90% „clean“. Ásdís er mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una og fengum við að skyggn­ast aðeins inn í hennar dag­lega líf.

„Ég set reglu­lega mat­seð­il­inn minn inn á Instagram-síð­una mína til að gefa fólki hug­myndir að dags­plan­inu. Ég átt­aði mig á því að ef ég setti ekki upp mat­seðil fyrir allar mál­tíðir þá færi skipu­lagið alltaf út um glugg­ann.“

Ásdís vaknar í kringum kl. 5 á morgn­ana, æfir mikið og borðar 5 mál­tíðir yfir dag­inn.

„Hádeg­is­mat­ur­inn minn er yfir­leitt afgangur frá kvöld­inu áður, þannig spara ég tíma og minnka mat­ar­sóun.“

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Hrifnari af fiski
Ásdís segir okkur að hún sé mikið fyrir kjöt og fisk og hafi síð­ustu ár orðið hrifn­ari af fiski. Hún bætir við: „sell­erí er hins vegar án efa eitt það versta sem ég hef borðað. Ég hef mikið reynt að bæta því við matar­æðið, það gengur hins vegar ekk­ert. Lands­lægur skortur á sell­eríi var því ekk­ert vanda­mál hjá mér.“

Hún elskar lit­ríkan og hollan mat og breytti matar­æð­inu fyrir rúmu ári af heilsu­fars­á­stæðum þegar hún kynnt­ist Clean-matar­æði hjá Greenfit.

„Það gjör­breytti mat­ar­venjum mínum og sem bónus þá er hægt að borða meira af réttu fæði. Eftir að hafa kynnst Clean-matar­æði var ekki aftur snúið og ég hef það að mark­miði að borða svona 90% „clean“ sem þýðir að ég sleppi mjólk­ur­vörum, korn­vörum, sykri, áfengi og kaffi.“

Ásamt syni sínum, Axel Vali, hefur hún þróað upp­skrifta­vef sem heitir www.cleanlife.is og á sér marga upp­á­halds­rétti þar.

„Á vefnum höfum við lagt áherslu á ein­falda, fljót­lega og umfram allt hollan mat sem upp­fyllir skil­yrði Clean og er einn af mínum upp­á­halds­réttum rækjur með græn­meti.“

Nýlega byrjuð að elda aftur
Vikulega pantar hún mat­ar­kassa frá Aust­ur­land Food Company og fær megnið af græn­met­inu og ávöxt­unum þaðan. Það kemur líka alltaf eitt­hvað óvænt og spenn­andi með mat­ar­kass­anum, eitt­hvað sem hún hefur ekki notað áður, sem eykur á fjöl­breytn­ina, segir Ásdís áhuga­söm.

Ásdís og sonur hennar, Axel Valur. Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

„Ég er nýlega byrjuð að elda aftur. Fyrr­ver­andi mað­ur­inn minn er góður kokkur og þegar við skildum tók við mjög ein­falt og áreynslu­laust matar­æði. Ég er svo heppin að elsti sonur minn, Axel Valur, er ástríðu­kokkur og hann tók við eld­hús­inu. Núna stefnir í að hann flytji að heiman á næsta ári og því hefur hann verið að þjálfa mömmu sína í eld­hús­inu síð­asta ár. Mark­miðið með vefnum okkar er einmitt að mamman geti orðið sjálf­bær í eld­hús­inu og séð um sig sjálf. Ég hefði aldrei náð svona góðum tökum á matar­æð­inu án Axels Vals.“

Þegar Ásdís var að byrja að elda seg­ist hún hafa verið alveg sér­stak­lega nákvæm, en svo heyrð­ist reglu­lega: „Axel, hvað settir þú nákvæm­lega mikið af X-hrá­efni í rétt­inn og svarið sem ég fékk alltaf til baka var: Ég setti nú bara dass eða slump, og svo bætti hann við: Mamma, bakstur er vís­indi, elda­mennska er list.“

Strák­arnir hennar segja að hún sé viðutan skipu­lags­kokkur, af því að hún gleymi reglu­lega að kveikja á hell­unni, ofn­inum eða stilla tím­ann á ofn­inum.

Í dag nýtur Ásdís þess að breyta upp­skriftum og aðlaga þær Clean-matar­æð­inu, hún segir að það sé oft mjög mikið af sætu í upp­skriftum, t.d. síróp, og notar hún þá gjarnan í stað­inn döðlur og möndlu­smjör.

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Ásdís elskar að hafa döðlur, macademiu-hnetur og þess háttar í veisl­unum.

„Það er til gíf­ur­legur fjöldi góðra eft­ir­rétta með döðlum, sem ég er aðeins byrjuð að leika mér með og ég ætla fljót­lega að setja hnetuköku á vef­inn, þegar hún er full­komin. Að skera niður epli, döðlur og macademiu-hnetur er til dæmis full­komið sjón­varps­snarl.“

Rækjur í álp­appír

Virki­lega góður og fljót­legur réttur.

„Ég blanda ýmsu græn­meti með rækj­unum þannig að rétt­ur­inn er alltaf lit­ríkur og fal­legur.“

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

FYRIR EINN

INNIHALD

  • 10-12 risa­rækjur
  • 1/4 kúr­bítur, skor­inn í þunnar sneiðar – líka gott að nota aspas
  • 2 gul­rætur, skornar í þunnar sneiðar
  • 4 kirsu­berjatómatar
  • 1/2 vor­laukur, skor­inn í sneiðar
  • 1 rif hvít­laukur, smátt saxaður
  • 1 cm engi­fer, smátt saxað
  • safi úr hálfri sítrónu
  • mat­ar­olía, salt, pipar
  • furu­hnetur til að dreifa yfir ef vill

Aðferð:

  • Und­ir­bún­ings­tími: 10 mín. / Eld­un­ar­tími: 10 mín.
  • Ofninn er hit­aður í 180 °C. Vasi búinn til úr álp­appír og settur á ofn­plötu.
  • Rækjunum er raðað í tvær raðir. Kúrbítur er settur á 1/3 af vas­anum sem er eftir, síðan kirsu­berjatómatar og loks gul­rætur.
  • Olíu dreift yfir, salt, pipar, sítrónu og loks hvít­lauk og engi­fer. Mér finnst mjög gott að setja svo furu­hnetur yfir allt saman.
  • Vasanum lokað og bakað í 10 mín­útur.

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina