Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var með Bounty-þráhyggju – þóttist fara í þvottahúsið en hljóp út í sjoppu að kaupa súkkulaði

Var með Bounty-þráhyggju – þóttist fara í þvottahúsið en hljóp út í sjoppu að kaupa súkkulaði

Borg­ar­full­trú­inn Hildur Björns­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Hildur er lög­fræð­ingur að mennt, en skip­aði annað sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ingum til borg­ar­stjórnar árið 2018 og hefur setið í borg­ar­stjórn Reykja­víkur síðan.
Áður hafði hún meðal ann­ars starfað fyrir lög­manns­stof­una LOGOS í London, verið pistla­höf­undur í Frétta­blað­inu og skip­aði stöðu for­manns Stúd­enta­ráðs HÍ um tíma, þegar hún var þar í námi.
Það er ekki ofsögum sagt að Hildur sé mögnuð kona, því hún hefur áorkað ansi mörgu á sinni 35 ára ævi. Hildur er þriggja barna móðir, með glæsi­legan starfs- og náms­feril á bak­inu og sigr­að­ist á eitla­frumu­krabba­meini árið 2017, eftir að hafa greinst með sjúk­dóm­inn aðeins sjö dögum eftir fæð­ingu yngri dóttur sinnar.
Mannlíf komst að því að Hildur er bjart­sýn, óþol­in­móð og man enn þá stund er hún eign­að­ist sína fyrstu hæla­skó, 9 ára gömul.

Fjöl­skyldu­hagir? Móðir barn­anna Björns Helga (11), Krist­ínar Sól­veigar (7) og Katrínar Ólafar (5). Í sam­búð með Jóni Skafta­syni lög­fræð­ingi. Nýjasti fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn er svo hund­ur­inn Philip.

Menntun/atvinna? Er í dag borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn en starf­aði áður við lög­mennsku.
Lauk BA í lög­fræði (2009), BA í stjórn­mála­fræði (2009) og MA í lög­fræði (2011) frá Háskóla Íslands. Hlaut svo hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 2012.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Lang­bestu þættir sem ég hef séð eru Young Pope/New Pope eftir Paolo Sor­rentino. Stór­kost­legt lista­verk. Svo er ég líka mik­ill Bachelor-aðdá­andi. Það er ýmist í ökkla eða eyra hjá mér.

Leikari? Christoph Waltz er í miklu upp­á­haldi, sér­stak­lega frammi­staðan í kvik­myndum Tar­antinos. Kristín Þóra Har­alds­dóttir finnst mér alveg mögnuð og eng­inn fer betur með gam­an­mál en Edda Björg­vins­dóttir.

Rit­höf­undur? The Choice eftir Edith Eger er besta og áhrifa­rík­asta bók sem ég hef lesið. Halldór Armand, vinur minn, er rísandi stjarna og sér­lega skemmti­legur höf­undur.

Bók eða bíó? Hvort tveggja betra. Fer eftir aðstæðum og til­efni.

Besti matur? Á ferða­lögum þefa ég alltaf uppi per­úska mat­ar­gerð en hér­lendis er föstu­dag­spítsan best.

Kók eða pepsí? Hvorugt. Bláan kristal eða upp­á­hell­ing fyrir mig, takk.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Ég hef aldrei verið jafn frá mér numin af nátt­úru­feg­urð líkt og á hálend­inu, á toppi Löð­mundar. Svo þykir mér alltaf sér­lega vænt um Oddagötu 15 á Akureyri, fyrr­ver­andi heim­ili ömmu og afa.

Hvað er skemmti­legt? Ég hef þrá­látan áhuga á því að gera upp fast­eignir. Fjöl­skyldu minni til þó nokk­urs ama.

Hvað er leið­in­legt? Nei­kvæðni og svart­sýni.

Hvaða flokkur? Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, því hann stendur fyrir ein­stak­lings­frelsi og jöfn tæki­færi.

Hvaða skemmti­staður? Hósiló í mat, Röntgen í drykk.

Kostir? Metn­að­ar­full, skipu­lögð og bjart­sýn. Treysti fólki.

Lestir? Óþol­in­móð og stundum örlítið sein, sem er afleið­ing bjart­sýni.

Hver er fynd­inn? Katrín Ólöf, 5 ára dóttir mín, er fjöl­skyldu­trúð­ur­inn.

Hver er leið­in­legur? Ban­an­anammi. Svaka­lega, leið­in­lega vont.

Trúir þú á drauga? Ég er frekar myrk­fælin. Ætli það sé ekki vegna þess að ég trúi á drauga?

Stærsta augna­blikið? Þegar ég fékk fyrstu hæla­skóna 9 ára gömul. Var svo ánægð að ég svaf með þá á nátt­borð­inu. Þannig gat ég virt þá fyrir mér áður en ég sofn­aði og aftur þegar ég vakn­aði. En auð­vitað eru fæð­ingar barn­anna minna stór­merki­leg­ustu augna­blikin.

Mestu von­brigðin? Að vera ekki heila­skurð­læknir.

Hver er draum­ur­inn? Að vera heila­skurð­læknir.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Ég hef lifað við ára­langa og við­var­andi fóbíu fyrir lík­ams­rækt­ar­stöðvum. Eftir fjögur ár af áskor­unum frá vin­konu mætti ég loks á crossfit-æfingu. Það var per­sónu­legt afrek en mjög skemmti­legt. Hef mætt reglu­lega síðan.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Ætli ég muni nokkurn tím­ann ná öllum mínum mark­miðum? Ég er ein þeirra sem þarf sífellt að setja markið hærra eða stefn­una annað.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Leik­skóla­vand­inn í Reykja­vík er sorg­legur brand­ari.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég var ólétt að eldri dóttur minni var ég búsett í London. Við bjuggum í agn­arsmáu húsi á þremur hæðum. Stofan efst en þvotta­húsið neðst. Ég var sólgin í Bounty en mað­ur­inn minn ekki, enda ein­hvers konar raun­heima íþrótta­álfur. Ég skamm­að­ist mín svo­lítið fyrir þessa þrá­hyggju. Á kvöldin þótt­ist ég því reglu­lega fara niður í þvotta­hús en hljóp svo laumu­lega í sjopp­una á horn­inu og keypti XXL Bounty og gleypti í snar­hasti. Hann tók aldrei eftir neinu. Frekar vand­ræða­leg hegðun af minni hálfu.

Sorg­leg­asta stundin? Að missa ást­vin er alltaf sorg­leg­ast. Fyrsta sorgin var hins vegar frá­fall hamst­urs­ins Kalla þegar ég var um 8 ára gömul. Það var mikil drama­tík, ekki síst í útför­inni sem fram fór í blóma­beð­inu heima.

Mesta gleðin? Hlát­ur­skast með börn­unum mínum.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Góð heilsa. Fjöl­skylda og vinir. Að elska og vera elsk­aður. Lakkrís og súkkulaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina