Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sólveig Anna Jónsdóttir í nærmynd: „Ég er hér, ég er glöð, get used to it.“

Sólveig Anna Jónsdóttir í nærmynd: „Ég er hér, ég er glöð, get used to it.“
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að Sólveig Anna Jóns­dóttir er á förum úr for­manns­stól Eflingar.

Árin sem Sólveig hefur gegnt for­mennsku hjá verka­lýðs­fé­lag­inu hafa verið æði áber­andi og Efling sjaldan rutt sér jafn fram­ar­lega í umræð­una eins og undir stjórn Sól­veigar Önnu.

En hver er Sólveig Anna og hvernig end­aði hún sem for­maður eins stærsta stétt­ar­fé­lags á Íslandi?

Sólveig Anna Jóns­dóttir fædd­ist hjón­unum Jóni Múla Árnasyni og Ragn­heiði Ástu Pét­urs­dóttur þann 29. maí árið 1975.

Hún er aðgerðasinni í húð og hár. Sólveig var for­maður Íslands­deildar Attac-sam­tak­anna og einn níu­menn­ing­anna sem ákærðir voru vegna mót­mæla í Alþing­is­hús­inu 8. des­em­ber 2008 í tengslum við bús­á­halda­bylt­ing­una frægu.

Sólveig var lengi vel starfs­maður á leik­skóla hjá Reykja­vík­ur­borg. Þar starf­aði hún allt þar til hún var kjörin for­maður Eflingar árið 2018.

Sólveig og B-listinn

Kjör hennar til for­manns stétt­ar­fé­lags­ins var um margt merki­legt. Hún til­kynnti fram­boð sitt til for­manns Eflingar ásamt nýrri stjórn sem kall­að­ist B-list­inn. Á þessum tíma hafði for­mað­ur­inn, Sigurður Bessason, til­kynnt að hann hygð­ist ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Sigurður var fyrsti og eini for­maður Eflingar og hafði gegnt stöð­unni í átján ár. Upp­still­ing­ar­nefnd Eflingar hafði til­nefnt Ingvar Vigur Hall­dórs­son sem fram­bjóð­anda til for­manns og Sólveig Anna bauð sig fram á móti honum, ásamt B-list­anum. Þetta var í fyrsta sinn í tutt­ugu ára sögu Eflingar þar sem kosið var um for­mann.

Sigurður Bessason, fyrrum for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Í kosn­inga­bar­átt­unni lagði Sólveig Anna ríka áherslu á aðstæður ómennt­aðra kvenna á vinnu­mark­aðnum, enda hafði hún mikla reynslu af því umhverfi. Hún gaf verka­lýðs­for­yst­unni fall­ein­kunn og sagð­ist ekki hafa orðið vör við að stétt­ar­fé­lagið setti hags­muni verka­lýðs­ins í for­gang, en hún hafði verið með­limur í Eflingu allt frá því hún hóf störf sem leik­skóla­starfs­maður árið 2008.

„Launa­kjör mín eru algjör­lega óásætt­an­leg. Svo á það sama við annað fólk í sömu eða svip­aðri stöðu,“ sagði Sólveig Anna meðal ann­ars í kosn­inga­bar­átt­unni.

Sólveig Anna Jóns­dóttir og Ingvar Vigur Hall­dórs­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Ingvar Vigur, mót­fram­bjóð­andi Sól­veigar, var í yfir­burða­stöðu, enda hafði hann stuðn­ing upp­still­ing­ar­nefndar, stjórnar og trún­að­ar­manna­ráðs Eflingar. Hann tók allt annan pól í hæð­ina en Sólveig hvað stétt­ar­fé­lögin varð­aði:

„Nei, þau eru ekki mátt­laus. Ég tel að stétta­bar­áttan sé í til­tölu­lega góðu lagi. Það sem ég stend fyrir, eða minn listi, er að tefla fram, er traust, reynsla og þekk­ing. Fólkið sem er með mér á list­anum er fólk sem er búið að vera í verka­lýðs­bar­átt­unni mjög lengi,“ sagði Ingvar Vigur.

Svo fór að Sólveig Anna var kjörin for­maður Eflingar með yfir­burða­kosn­ingu, eða 80% atkvæða. B-listi Sól­veigar hlaut 7 af 15 stjórn­ar­mönnum í kjör­inu.

„Verkfall, verkfall og aftur verkfall“

For­mann­s­tíð Sól­veigar Önnu var afar við­burða­rík en einnig um margt storma­söm. Hún lét mikið í sér heyra allan tím­ann, var her­ská og rak rót­tæka rétt­inda­bar­áttu þeirra lægst laun­uðu í land­inu. Sólveig gaf ekk­ert eftir og spar­aði oft ekki gíf­ur­yrðin.

Segja má að átök hafi sann­ar­lega ein­kennt þann tíma sem Sólveig Anna hefur setið í for­manns­stól Eflingar – bæði út á við og inn­byrðis. Deilur á skrif­stofu Eflingar hafa verið áber­andi, en sömu­leiðis verk­föll og kjara­bætur félags­manna.

Það var reyndar í aðdrag­anda kosn­ing­anna til for­manns Eflingar sem tveir ein­stak­lingar lýstu því hvernig starfs­maður á skrif­stofu Eflingar hefði reynt að telja félags­konu ef erlendu bergi brotna á að kjósa A-list­ann, sem var mót­fram­boð B-lista Sól­veigar, með þeim orðum að það eina sem fram­bjóð­endur B-list­ans vildu væri „verk­fall, verk­fall og aftur verk­fall.“

Svo varð að um ári eftir að Sólveig Anna tók við stöðu for­manns Eflingar hófst fyrsta verk­fallið. Verk­fall­inu muna senni­lega flestir eftir, en það voru starfs­menn á hót­elum og starfs­fólk rútu­fyr­ir­tækja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í grennd við það sem riðu á vaðið. Töluvert fjaðrafok var í kringum verk­fallið og bæði ferða­þjón­ustan og Efling fóru mik­inn í fjöl­miðlum.

Í rök­stuðn­ingi Eflingar fyrir verk­falls­boð­un­unum sagði:

„Eigendur fyrirtækja í túristaiðnaði hafa grætt á tá og fingri undanfarin ár, en starfsfólkið sem keyrir rúturnar, þrífur hótelin og sinnir gestum hefur ekki notið góðs af. Þau fá of lág laun, vinna undir mikilli pressu, eru snuðuð um réttindi, og njóta oft ekki virðingar yfirmanna sinna. Krafa Eflingar er sú að lágmarkslaun í landinu verði 425,000 ISK, en þessi krafa hefur ekki verið samþykkt. Þetta verður að breytast og munu verkfallsaðgerðir skapa þrýsting um að kröfum okkar um betri kjör verði mætt.“

Frá verk­fall­inu. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna tók virkan þátt í verk­falls­bar­átt­unni og nýtti hvert tæki­færi til að vekja á henni athygli. Hún var sömu­leiðis dug­leg við að mæta í fyr­ir­tækin til að vakta að þar væri ekki verið að brjóta verk­falls­reglur.

Hún var gagn­rýnd nokkuð meðan á verk­fall­inu stóð, meðal ann­ars fyrir að virð­ast of glöð og spennt yfir jafn alvar­legu máli og verk­fall væri, bæði fyrir atvinnu­rek­endur og starfs­fólk.

Sólveig blés á þær ásak­anir:

„Þær konur sem ég hef hitt og talað við, sem eru sann­ar­lega lág­launa­konur í íslensku sam­fé­lagi, eru mjög glaðar! Þær voru glaðar yfir því að fá tæki­færi til að greiða atkvæði og þær eru glaðar yfir því að fá tæki­færi til að leggja niður störf.“

„Ég er hér, ég er glöð, get used to it,“ sagði Sólveig Anna.

Þrýstingur vegna WOW og Covid-19

Verk­föllin voru fram­kvæmd í lotum. Kjara­við­ræður héldu áfram en þegar stefndi í verk­fall tvö þús­und félags­manna VR, Eflingar, Verka­lýðs­fé­lags Akraness, Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur og Fram­sýnar við Samtök atvinnu­lífs­ins, féll flug­fé­lagið WOW air, í lok mars 2019.

Á end­anum gripu stjórn­völd inn í kjara­deil­una og samið var um Lífs­kjara­samn­ing­ana svoköll­uðu. Fall flug­fé­lags­ins var sagt hafa sett auk­inn þrýst­ing á deilu­að­ila um að ná sam­komu­lagi.

Sólveig Anna greindi frá því í kjöl­farið að henni hefði mis­boðið hröð afgreiðsla samn­ing­anna undir lokin. Enn hafi mik­il­væg mál verið eftir, sem urðu út undan.

Um það bil ári síðar hófst næsta verk­fall. Nú var komið að starfs­fólki í grunn­skólum í Reykja­vík­ur­borg og nokkrum sveit­ar­fé­lögum. Verk­fallið hafði þau áhrif að skólar gátu ekki tekið á móti öllum nem­endum. Meðal starfs­fólks sem fór í verk­fall var starfs­fólk sem starf­aði við ræst­ingar í skól­unum. Þrif voru því víða ófull­nægj­andi og ekki í boði að hafa ákveðna hluta skóla opna, til að mynda mat­sali.

Sólveig var afar ósátt við fram­göngu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga við samn­inga­borðið. Um það sagði hún meðal ann­ars í sam­tali við Vísi:

„Viðlíka vinnu­brögðum og þeim sem að samn­inga­nefnd sveit­ar­fé­lag­anna ástundar hef ég ekki kynnst. Ég er tölu­vert sjokkeruð eftir fram­ferði þeirra á fund­inum þar sem við lögðum fram vel útfært til­boð í sam­an­burði við það sem við höfum þegar samið um bæði við Reykja­vík­ur­borg og ríkið. Þessu til­boði var hafnað sam­stundis.“

Aftur náð­ust samn­ingar undir ákveðnum þrýst­ingi, því að í þetta sinn var kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn far­inn á stjá. Skrifað var undir samn­inga í maí­mán­uði árið 2020. Raunar hafði verk­fall Eflingar átt að hefj­ast þann 9. mars þetta ár, en var frestað til 24. mars vegna far­ald­urs­ins. Verkfall var sam­þykkt að nýju í atkvæða­greiðslu eftir páska og hófst þann 5. maí. Verk­fallið tók enda þegar samn­ingar náð­ust þann 11. maí.

Átökin á skrifstofunni

Nokkuð hefur verið um frétta­flutn­ing af átökum á skrif­stofu Eflingar og innan stjórn­ar­innar. Þannig var skrif­stofu­stjóra sagt upp árið 2018 og nokkrir starfs­menn fóru í veik­inda­leyfi. Meðal þeirra var fjár­mála­stjóri Eflingar, sem var búinn að starfa hjá félag­inu um ára­tuga skeið og var sagður hafa farið í veik­inda­leyfi eftir átök við Sólveigu Önnu og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóra Eflingar.

Viðar Þor­steins­son

Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins áttu þau Sólveig og Viðar að hafa breytt vinnu­and­anum á skrif­stofu Eflingar til hins verra. Þau voru sömu­leiðis sökuð um ofríki og hót­anir í garð starfs­fólks. Þessu vís­uðu þau Sólveig og Viðar á bug og sögðu starfsand­ann á skrif­stof­unni þvert á móti góðan.

Krist­jana Val­geirs­dóttir fjár­mála­stjóri og Elín Kjart­ans­dóttir bók­ari stigu hins vegar fram og stað­festu að þær hefðu farið í veik­inda­leyfi vegna fram­komu for­ystu Eflingar í þeirra garð.

Þær vildu meina að þær hefðu fengið á sig falskar ásak­anir frá for­yst­unni til þess fallnar að hrekja þær úr starfi.

Krist­jana Val­geirs­dóttir og Elín Kjart­ans­dóttir

Þetta voru sann­ar­lega ekki síð­ustu deilu­málin, því um ári síðar var enn fjallað um deilur og ósam­komu­lag á skrif­stofu Eflingar.

Þar var um að ræða fjóra starfs­menn sem töldu félagið hafa brotið á rétt­indum þeirra. Þar á meðal var fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjór­inn; sá sem var sagt upp fljót­lega eftir að Sólveig Anna tók við taumunum. Sá sagði frá því hvernig til­kynnt hefði verið á starfs­manna­fundi að hann yrði ekki áfram skrif­stofu­stjóri, án þess að málið hefði verið rætt við hann áður.

Þessu gat Sólveig Anna ekki neitað, en sagði í stað­inn að hún hefði marg­beðið umræddan skrif­stofu­stjóra afsök­unar á fram­gangi hennar á starfs­manna­fund­inum. Hún varði þó einnig gjörðir sínar með þeim orðum að hún hefði talið sig vera í fullum rétti til að skipta um skrif­stofu­stjóra, sem hún sagði þegar hafa sam­þykkt starfs­loka­samn­ing.

„Ég spyr: Á ég að láta þvinga mig til að gera eitt­hvað sem er gegn minni betri sam­visku, sem lætur mig taka ákvarð­anir sem ganga gegn hags­munum félags­ins, þvingar mig til að sam­þykkja að afhenda fjár­hæðir og end­ur­semja um starfs­lok vegna þess að fólk fer fram með hót­unum og árásum? Átti ég að starfa með manni sem mig lang­aði ekk­ert að starfa með, vegna þess að hann leit svo á að hann ein­fald­lega ætti starf skrif­stofu­stjóra Eflingar?“ sagði Sólveig Anna um málið.

Vantraustsyfirlýsing

Nú er svo komið að starfs­fólk Eflingar fann sig knúið til að senda van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á fjöl­miðla, félagið og Sólveigu Önnu. Í kjöl­farið sagði Sólveig Anna starfi sínu lausu, eftir að hafa haldið starfs­manna­fund þar sem hún bauð tvo kosti: að starfs­fólkið drægi til baka gagn­rýni á stjórn­ar­hætti hennar frá því í sumar, eða að hún viki.

Sólveig Anna vill meina að starfs­fólk Eflingar hafi hrakið hana frá störfum og að Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður Eflingar og með­limur á B-lista Sól­veigar, hafi reynt að koma henni fyrir katt­ar­nef með því að fá ályktun starfs­fólks­ins afhenta og fara með hana í fjöl­miðla.

Guð­mundur Bald­urs­son hefur sagt að Sólveig Anna hafi haldið mik­il­vægum upp­lýs­ingum frá stjórn Eflingar og reynt að hylma yfir van­líðan og umkvart­anir starfs­fólks skrif­stof­unnar. Hann heldur því fram að hann hafi ein­ungis farið fram á upp­lýs­ingar sem ljóst væri að stjórn­ar­með­limir Eflingar ættu fullan rétt á.

Guð­mundur Bald­urs­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Fund­ur­inn sem Sólveig Anna hélt með starfs­fólki Eflingar, þar sem hún kynnti þeim afar­kost­ina tvo, var sagður hafa farið fram að morgni. Hún gaf starfs­mönnum ein­ungis frest til hádegis til að ákveða sig.

Úr varð ályktun þar sem meðal ann­ars var óskað eftir umbótum á starfs­manna­málum Eflingar. Sagt var að alvar­leg vanda­mál væru við­var­andi innan félags­ins og óskað var eftir auknu valdi til trún­að­ar­manna og tíð­ari fund­ar­halda til að ráða fram úr þeim.

Sólveig Anna sagði að um væri að ræða van­trausts­yf­ir­lýs­ingu í hennar garð og allra þeirra sem bæru ábyrgð á starfs­manna­málum Eflingar. Í kjöl­farið sagð­ist hún myndu víkja sem for­maður.

„Ég er full af þakk­læti yfir því að hafa verið treyst af félags­fólki Eflingar til að leiða okkar bar­áttu og er ótrú­lega stolt af þeim magn­aða árangri sem við höfum náð á þeim stutta tíma sem ég hef verið for­maður félags­ins. Barátta Efl­ing­ar­fé­laga und­an­farin ár hefur sýnt og sannað að með krafti og sam­stöðu vinnu­aflsins þá náum við árangri. Með þau vopn í höndum getum við tek­ist á við allan mót­byr sama hversu óheið­ar­legir og ómerki­legir and­stæð­ingar okkar eru, hvar sem þeir leyn­ast.

Ég mun aldrei hætta í bar­áttu fyrir rétt­læti fyrir okkur sem til­heyrum stétt verka- og lág­launa­fólks og þekkja lífið undir oki auð­valds­kerf­is­ins og lág­launa­stefn­unnar,“ sagði Sólveig Anna í til­kynn­ingu sinni.

Sólveig Anna Jóns­dóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður Eflingar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð