Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast“

Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast“

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er Júlía Magn­ús­dóttir, hjá Lifðu til fulls – heilsu­m­ark­þjálfun.

Lifðu til fulls hjálpar konum að öðl­ast breyttan lífs­stíl og finna hvað lík­am­inn getur verið  orku­mik­ill þegar hann er laus við óþarfa syk­ur­þörf allan sól­ar­hring­inn. Þér á að líða vel í eigin skinni og er útkoman fyrir marga þyngd­ar­tap, en það er alls ekki alltaf aðal­mark­miðið.

Góðar aðferðir til að ná hug­anum um borð
Júlía segir okkur að aðal­mark­mið með þess­ari heilsu­m­ark­þjálfun sé ein­fald­lega að hjálpa öðrum að lifa líf­inu til fulls. „Við gerum það með því að setja saman mat­ar­plan fyrir hvern og einn og svo höldum við utan um planið í gegnum net­nám­skeið. Heild­ar­planið er svo sann­reynt með mat­seðlum, inn­kaupa­listum og aðferðum til að ná hug­anum um borð í þessa syk­ur­lausa veg­ferð. Mik­il­vægt er að skapa venjur sem þú tekur með þér áfram til þess að ná var­an­legum breyt­ingum.“

Upp­á­halds­réttur Júlíu er svo­kallað Vetr­ar­salat með graskeri, linsu­baunum og grænkáli – sjúk­lega gott, ein­falt og fljót­legt.

„Vikulega elda ég ind­verskan mat og einu sinni í viku baka ég æðis­lega pítsu með möndlu­mjöli, graskeri, möndlu ricotta-osti, basil, ólífum, kúr­bít og tómötum …ohh, hvað hún er góð!“

Júlía hefur menntað sig í hrá­fæði og fær mik­inn inn­blástur til mat­ar­gerðar á ferða­lögum sínum. „Nýjar upp­skriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferð­ast og fer á nýjar slóðir og kynn­ist nýjum mat­ar­heimi. Ég borða líka reglu­lega hrá­fæði og finnst gott að borða súr­kál, kombucha, gerjaða kókosjó­gúrt, hrákökur og granóla, svo ein­hver dæmi séu nefnd. Og til þess að hámarka nær­ing­ar­upp­tök­una legg ég hnet­urnar og fræin í bleyti.“

Júlía seg­ist leggja mikið upp úr góðu mat­ar­skipu­lagi og þær konur sem sækja nám­skeiðin hjá henni þekkja það vel. Með því að skipu­leggja sig vel er hægt að ná fram hollum rétti á núll einni. „Að halda úti mat­ar­skipu­lagi er líka svo mikið atriði til að halda okkur við breytt matar­æði og svo við „dettum ekki í það“ þegar við komum heim eftir langan vinnu­dag og endum á því að panta okkur pítsu.

Það er hægt að nálg­ast upp­skrifta­bók­ina mína hér og skoða nám­skeiðin hér.

Ég legg mikið upp úr því að upp­skrift­irnar bragð­ist vel, séu barn­vænar, henti fjöl­skyldu­fólki og fólki sem er vant því að borða skyndi­bita. Upp­skrift­irnar eru ein­faldar, krefj­ast ekki mik­ils umstangs og inni­halda ekki óþarfa hrá­efni. Þær eiga að veita lík­am­anum aukna orku, ljóma og hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfum sér og lifa til fulls.“

Vetrarsalat með graskeri, linsubaunum og grænkáli

1 skammtur, þú getur auð­veld­lega tvö­faldað upp­skrift­ina og borið fram fyrir tvo

Grænmeti:

½ eða minna af miðl­ungs­stóru graskeri

3-4 miðl­ungs­stórar gul­rætur

½ rauð paprika (val­frjálst)

1 skalott­laukur (eða ann­ars konar laukur, en skalott­laukur gefur góða sætu)

Ólífu­olía eftir smekk

Krydd að eigin vali: Ég hef notað 1 tsk. græn­metiskrydd­blöndu og ½ tsk. reykta papriku frá Krydd­hús­inu. Einnig má nota ½ tsk. rós­marín, ½ tsk. papriku, svartan pipar, himala­ja­salt, og rautt chili-krydd.

Linsu­baunir:

1 bolli soðnar brúnar linsu­baunir (um það bil 1/4 bolli þurrk­aðar linsu­baunir, soðnar í vatni eða notið í kringum 1/3 linsu­baunir sem eru for­soðnar í dós)

Sal­at­botn:

3-5 grænkáls­blöð, fjar­lægðu stilk­inn (ef grænkál fæst illa, notið spínat eða kletta­salat)

⅓ af gúrku (í kringum 100 g, það er ráð­lagt magn, en ekki hika við að bæta við það)

1 tómatur (ráð­lagt magn, ekki hika við að bæta við það)

Dressing:

1-2 msk. af majónesi (vertu viss um að það sé ekki við­bættur sykur. Ég nota gjarnan avókadó-majónes sem fæst í Costco)

1-2 msk. kreistur sítrónu­safi (notið meira fyrir þynnri dress­ingu)

Svartur pipar eftir smekk (ég set nóg af svörtum pipar)

Ofan á, skreyt­ingin er það sem gerir þetta salat full­komið:

50 g ristaðar, ósalt­aðar pistasíu­hnetur (ekki hika við að setja meira ef þú vilt)

30 g geita­ostur (ég hef bæði notað rif­inn geita­ost og íslenskan geita feta-ost frá Jóhönnu sem fæst m.a. í versl­un­inni Gott og blessað í Hafn­ar­firði)

Fersk mynta eða stein­selja

Aðferð:

1. Linsu­baunir: Til að elda linsu­baunir settu 1/4 bolla þurrk­aðar, ósoðnar linsu­baunir í pott. Bættu a.m.k.  þrisvar sinnum meira vatni en linsum (1:3) eða 3/4-1 bolla af vatni í pott­inn. Láttu sjóða og lækk­aðu hit­ann í lága suðu. Bættu meira vatni út í ef þörf er á, horfðu bara á pott­inn af og til til að sjá hvort linsu­baun­irnar þurfa meira vatn. Láttu malla í u.þ.b. 15-20 mín­útur eða þar til þú getur auð­veld­lega kreist eina linsu! Ef þú ert að nota for­soðnar linsu­baunir í dós þarftu ekki að elda þær, hit­aðu þær aðeins ef þú vilt.

2. Grænmeti eldað: Skerðu graskerið og gul­ræt­urnar í ca 2 sentí­metra bita. Ef þú vilt elda í bök­un­arofni, settu á bök­un­ar­pappír, kryddið og setju olíu yfir og eld­aðu í ofni á 180-200 °C í u.þ.b. 25-30 mín­útur, hrærðu í öðru hverju svo græn­metið eld­ist jafnt.
Ef þú vilt grilla græn­metið á úti­grilli mæli ég með að græn­metið sé soðið í vatni fyrst. Fylltu þá pott upp að 3/4 af vatni og láttu sjóða, settu græn­metið í pott­inn í u.þ.b. 10 mín­útur eða þar til þú nærð að stinga gaffl­inum auð­veld­lega í gegn. Taktu græn­metið úr vatn­inu og settu í skál. Kryddaðu og settu olíu yfir. Settu græn­meti á grill­bakka og grill­aðu í ca 15 mín­útur eða þar til það fer að verða stökkt og ristað.

3. Salatið: Rífðu grænkáls­blöðin, kreistu 1/2 sítrónu yfir, skerðu gúrku, tómata og settu ofan á grænkálið. Setja til hliðar.

4. Dressing: Blandaðu mæj­ónesið og sítrónusafa saman og settu til hliðar.

5. Borið fram: Núna ættu linsu­baun­irnar að vera til­búnar! Kryddaðu með salti og pipar eftir smekk og settu linsu­baun­irnar og því næst græn­metið yfir sal­atið. Skreyttu með pistasíu­hnetum, stein­selju og geita­osti. Njóttu!

Hér er hægt að sjá heima­síð­una.

Facebook 

Instagram

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una