Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar Smári sleginn yfir frásögn í Bolholtinu: „Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta?“

Gunnar Smári sleginn yfir frásögn í Bolholtinu: „Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta?“
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, er sleg­inn yfir frá­sögn kunn­ingja síns af tann­lækna­kostn­aði dóttur hans. Gunnar Smári vekur máls á þessu í pistli á Facebook-síðu Sós­í­alista­flokks­ins.

„Þegar ég var að labba upp í Bolholt til að taka upp Rauða borðið hitti ég kunn­ingja minn og dóttur hans á rölt­inu. Hann var eins og sleg­inn út af lag­inu, hafði orðið fyrir áfalli í tíma hjá tann­rétt­inga­fræð­ing sem tjáði honum að reiknað væri með að með­ferð fyrir dóttur hans kost­aði eina og hálfa milljón.

Hann sagð­ist hafa spurt fræð­ing­inn hvað fátækir for­eldrar gerðu? Ekkert, þeir koma ekki hingað. Það er hægt að fá styrk frá Sjúkra­trygg­ingum upp á 150 þús. kr. en þá standa eftir 1.350 þús. kr. sem fólk ræður ekki við. Börn fátækra for­eldra fá ekki tann­rétt­ingar.

Þegar kunn­ingi minn var kom­inn heim sendi hann mér sms, sagð­ist hafa kannað hvernig þetta væri í Svíþjóð. Þar kosta tann­rétt­ingar barna ekki neitt. Tann­rétt­ingar fyrir full­orðna kosta 200 þús. kr.“

Gunnari Smára er ber­sýni­lega nóg boðið.

„Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta? Höldum við að Íslend­ingar eigi allt vont skilið?“

Við­brögðin við pistl­inum láta ekki á sér standa og aug­ljóst að fleirum en Gunnari Smára er nóg boðið yfir háum tann­lækna­kostn­aði hér­lendis.

„Fara til Póllands með stúlk­una. Marg borgar sig,“ segir Guðbjörg, en annar mælir heldur með Búdapest.

Þetta rímar við umfjöllun Mannlífs nýverið um mikla ásókn Íslend­inga í tann­lækna­þjón­ustu erlendis, þá sér­stak­lega í Austur-Evrópu. Ung­verja­land og Pólland eru þar gjarnan efst á blaði.

„Hér er græðg­i­svæð­ing og óeðli­legt verð­lag farið að þvæl­ast fyrir sjálfu sér. Íslenskir tann­læknar láta eins og þeir eigi ekki í sam­keppni við erlenda tann­lækna.

Ég mun í náinni fram­tíð þurfa að fá eins og 2-3 krónur. Hver ein­asta tönn myndi lík­lega kosta mig u.þ.b. milljón hérna heima. Eða ég get farið til Ung­verja­lands t.d. og látið gera þetta fyrir marg­falt minni kostnað og þá er utan­lands­ferðin og allt umstang tengt henni einnig reiknað inn,“ segir Svein­björn.

Helga segir frá sinni reynslu sem for­eldri drengs sem er að ljúka tann­rétt­inga­ferli. Sonur hennar er 16 ára. „Við for­eldr­arnir erum búin að borga c.a. 25.000 kr í hverjum mán­uði síðan hann var 13. ára. En við vorum kvödd með 140.000 kr reikn­ing sem við fengum náð­ar­sam­leg­ast að skipta í tvennt, 1.des og 1.jan. Það verður meira lagt upp úr stemn­ingu en efn­is­legu flippi þessi jólin.“

„Ég bý í Danmörku og heil­brigð­is­kerfið er í skött­unum til rík­is­ins. Þannig það er ekki ókeypis, við borgum í gegn um skatt­ana, enda eru skatt­arnir mjög háir hér. Hér borga ég ekki krónu fyrir lækn­is­heim­sóknir og rann­sóknir.

Skóla­tann­læknar sjá um krakk­ana og það er greitt af rík­inu. Svo já, hærri skatta og þá er eins og það sé hægt að við fáum “ókeypis”. Mjög gott að búa hér þrátt fyrir háa skatta, hef t.d aldrei borgað fyrir stíla­bækur eða náms­bækur allan grunn­skól­ann hjá mínum stelpum,“ segir Lára. Ágúst bendir þá á að skattar séu „ekki mikið hærri í Noregi og Danmörku. Fjarri því.“

Þór­bergur bendir á nokkuð umhugs­un­ar­vert í sam­hengi við skatta og vel­ferð­ar­kerfi hér á Íslandi: „Við borgum líka fyrir þetta allt með okkar sköttum. Hins vegar erum við að keyra mun dýr­ara stjórn­sýslu­kerfi miðað við mann­földa en er í Skand­in­avíu auk þess sem stjórn­völd hafa haldið fast utan um það að sposlur innan stjórn­sýsl­unnar eru veru­lega mikið hærri og umsvifa­meiri hér en þar. Það leiðir til þess að við þurfum að greiða alls kyns auka­gjöld umfram það sem ger­ist á hinum norð­ur­lönd­unum.

Skattar hér eru hins vegar ekk­ert lægri en hjá ykkur.“

„Þetta er svo sorg­legt. Stétta­skipt­ing end­ur­spegl­ast í tann­heilsu og ég gæti vel trúað að það hafi áhrif á atvinnu­tæki­færi hvort mann­eskja er með beinar og fínar tennur eða skakkar og skemmdar,“ segir Guðný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina