Kjartan Örn Þórðarson, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu hf. – sem Apótekarinn er hluti af – hefur enn ekki svarar fyrirspurnum Mannlífs er varða ofskammt sýklalyfs sem lyfjafræðingur í Apótekaranum í Mosfellsbæ er sagður hafa blandað fyrir sautján mánaða gamalt barn.

Barnið endaði á bráðamóttöku Barnaspítalans í eitrunarprófi í kjölfarið.
Mannlíf fjallaði um málið á dögunum og ræddi við móður barnsins.
Of stór skammtur sýklalyfs sem endaði með ferð á bráðamóttöku
Í stuttu máli hafði sautján mánaða stúlkubarn þurft að fara á sýklalyfjakúr vegna eyrnabólgu. Flaskan sem hún fékk í Apótekaranum í Mosfellsbæ dugði ekki fyrir þeim skömmtum sem hafði verið skrifað upp á fyrir hana og þegar móðirin fór undrandi í apótekið að spyrjast fyrir um þetta kom í ljós, við eftirgrennslan lyfjafræðings sem þá var á vakt, að í raun kæmi ekkert annað til greina en að lyfjafræðingurinn sem blandaði lyfið hefði gert það rangt – og stúlkan því fengið næstum þrefaldan skammt af sýklalyfinu í fjóra daga.
Haft var samband við eitrunardeild og móðirin beðin um að fara umsvifalaust með dóttur sína á bráðamóttöku Barnaspítalans í eitrunarpróf.
Stúlkan slapp blessunarlega við eitrun, en þeim var gert að hætta strax inntöku lyfsins, þrátt fyrir að henni væri ekki batnað af eyrnabólgunni.
Nokkrum dögum síðar fékk stúlkan svæsna sveppasýkingu í tannholdið sem var afleiðing þess að hafa fengið of stóran skammt af sýklalyfjunum. Hún var afar kvalin, gat ekki borðað svo dögum skipti og léttist hratt.
Móður stúlkunnar var ráðlagt að tilkynna málið til Lyfjastofnunar og ræða málið svo við lyfjafræðinginn sem gerði þessi vítaverðu mistök. Þegar í apótekið kom, með lyfjaglasið meðferðis, mætti henni allt annað viðmót en hún bjóst við. Hún segir að lyfjafræðingurinn hafi tekið á móti henni með skilningsleysi, rökræðum og kæruleysi og að hún hafi að lokum þurft að stöðva samtalið og yfirgefa apótekið.
Markaðsstjóri hafði samband eftir umfjöllun
Móðir stúlkunnar, Karen Þórhallsdóttir, segir í samtali við Mannlíf að í kjölfar umfjöllunar um málið hafi markaðsstjóri Lyfja og heilsu, Aðalbjörg Eggertsdóttir, haft samband við hana. Hún hafi sagt að þau ætluðu sér að skoða verklag sitt en svo hafi Karen ekkert meira heyrt frá þeim um þær aðgerðir.
„Mér fannst fyrst jákvætt að Lyf og heilsa hefði samband við mig vegna málsins en á sama tíma var ég frekar hissa á því að það væri markaðsstjóri sem fengi það hlutverk, sem var fyrst að heyra af málinu þegar það birtist á samfélagsmiðlum, tveimur mánuðum eftir að atvikið átti sér stað, frekar en þá framkvæmdastjóri eða einhver annar yfirmaður lyfjafræðinganna,“ segir Karen.
Karen vildi vita hvar málið stæði og hafði því aftur samband við Aðalbjörgu en illa hefur gengið að fá svör frá henni.
„Ég hef hringt og skrifað til hennar í tvo daga en ekki enn fengið svör við spurningu minni um framgang mála hjá apótekinu,“ segir Karen.
Karen furðar sig mjög á afgreiðslu málsins. Fyrst viðbrögðum lyfjafræðingsins sem blandaði lyfið og svo samskiptunum við markaðsstjóra fyrirtækisins.
Hún segist þó vona að Lyf og heilsa taki málinu alvarlega og að það verði til þess að verklag fyrirtækisins verði lagað svo að svona lagað komi ekki fyrir aftur, enda sé um að ræða grafalvarlegt mál er varði líf og heilsu barns, sem hafi verið stefnt í hættu.































Athugasemdir