Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Draugagangurinn á Saurum: „samtímis fór ískaldur gustur um baðstofuna…“

Draugagangurinn á Saurum: „samtímis fór ískaldur gustur um baðstofuna…“

Vorið 1964 skók meintur drauga­gangur íslenskt sam­fé­lag og fjöl­miðlar slógu hér um bil upp búðum á sveita­bænum þar sem ósköpin áttu sér stað.

Saura-undrin

Það var sveita­bær­inn Saurar í Austur-Húna­vatns­sýslu sem öðl­að­ist skyndi­lega frægð þegar fréttir tóku að ber­ast þaðan af und­ar­legum og, að því er virt­ist, óút­skýr­an­legum aðburðum. Í Þjóð­vilj­anum árið 1983 er sagt svo frá því sem átti sér stað á Saurum:

„Þar köst­uð­ust borð og stólar til, leir­tau hrundi út úr skápum, rúm hreyfð­ist og skápar fóru um koll. Hér gat tæp­ast verið um að ræða nátt­úru­legar ham­farir heldur miklu fremur yfir­nátt­úru­legar. Dögum saman voru blöð og útvarp und­ir­lögð fréttum frá Saurum, þangað flykkt­ust frétta­menn, for­ystu­menn Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lags­ins, miðlar, jarð­fræð­ingar, og ver­ald­leg sem and­leg yfir­völd.“

Þessir dul­ar­fullu atburðir voru oft kall­aðir Saura-undrin og mörk­uðu ákveð­inn lokakafla í hrynu reim­leika­mála á öld­inni.

Segja má að bær­inn á Saurum hafi verið hið full­komna leik­svið fyrir vel heppn­aða drauga­sögu.

Jafnvel þó komið hafi verið vel inn á sjö­unda ára­tug­inn voru aðstæður þar enn nokkuð frum­stæðar. Þetta var torf­bær, með timb­ur­stafni og bæj­ar­húsin klædd að innan með timbri, á afskekktum stað, þar sem öldruð hjón bjuggu ásamt tveimur full­orðnum börnum sínum. Sonurinn var á fer­tugs­aldri og dóttirin á þrí­tugs­aldri.

Það var Páll Jónsson, frétta­rit­ari Tímans og skóla­stjóri á Skaga­strönd, sem fór að bænum í mars­mán­uði árið 1964, þegar leikar stóðu hvað hæst, og skrif­aði um það sem hann varð vís­ari. Þá höfðu atburð­irnir átt sér stað í nokkra sól­ar­hringa. Hjónin á bænum, Guð­mundur Ein­ars­son og Margrét Bene­dikts­dóttir, tóku á móti Páli og Jóni syni hans.

Páll Jónsson skrif­aði eft­ir­far­andi um atburða­rás­ina, eftir Guðmundi bónda:

Undrin byrj­uðu 18. marz síð­ast­lið­inn kl. 1:20, og vakn­aði Guð­mundur þá við að borð, sem stendur út við stofu­glugg­ann, fór á hreyf­ingu og einn metra fram á gólfið frá glugg­anum.

Borð þetta er gam­alt og upp­runa­lega vel gert, með spor­öskju­lag­aðri plötu og renndum fótum. Borð þetta keypti Guð­mundur hjá Sigurði Sölva­syni kaup­manni á Skaga­strönd fyrir all­nokkrum árum. Á mið­viku­dag­inn kom svo hreyf­ing á borðið eins og fyrst, og var þá settur stóll út að glugg­anum. Stól þennan er hægt að leggja saman, og er hann ekki mjög veiga­mik­ill. Þeyttist stóll­inn fram á mitt stofu­gólfið á mið­viku­dag­inn og brotn­aði.

Á fimmtu­dag­inn var hús­freyjan Margrét Bene­dikts­dóttir að skilja mjólk í búr­inu, og hafði hún byttu með mjólk í á borði hjá sér. Allt í einu kom hreyf­ing á bytt­una og kastað­ist hún í gólfið og fór öll mjólkin úr henni. Það ein­kenni­lega var að konan fann ekki neina óeðli­lega hreyf­ingu, hvorki á gólf­inu né borð­inu. Aðeins byttan steypt­ist í gólfið. Var því ekki um að ræða jarð­skjálfta.

Bærinn á Saurum.

Vangaveltur um skipbrot og erlenda drauga

Íbúar á bænum urðu varir við atvik af svip­uðum toga daga á eftir. Sama dag og Pál og son hans bar að garði hafði Sig­ur­borg, dóttirin á bænum, lent í því að skápur féll án þess að hægt væri að finna nokkra orsök þar á. Það sem þótti merki­legt við fall skáps­ins var að tveir mat­ar­diskar sem voru í efstu hillu skáps­ins, duttu ekki úr honum, heldur aðeins það sem var í neðstu hill­unum.

Guð­mundur bóndi fór að velta vöngum yfir því hvaða árar gætu verið þarna á ferð. Hann rifj­aði það upp þegar bátur fórst frá Saurum árið 1914. Þar höfðu fimm eða sex menn verið taldir af. Báturinn fannst mar­andi í hálfu kafi á Drang­eyj­ar­sundi, en hið und­ar­lega var að menn­ina rak aldrei á fjörur. Því var á sínum tíma velt upp hvort hvalur hefði getað hvolft bátnum og menn­irnir þar með horfið djúpt í vota gröf. Báturinn var gerður upp og seldur til Sauð­ár­króks, en eftir að róið hafði verið á honum í nokkur ár fórst hann aftur og fannst aldrei eftir það. Var þar maður sagður hafa farist með.

Guð­mundur bóndi vildi ekki meina að hreyf­ing hús­gagna á bænum hefði á nokkurn hátt líkst jarð­skjálftum, sem hann hafði þó áður fundið. Hann sagði til dæmis að borðið hefði „hristst í höndum sér, verið eins og það væri lif­andi, og sprikl­aði.“ Jarð­fræð­ing­ur­inn Guð­mundur Kjart­ans­son heim­sótti bæinn og sagð­ist ekki geta gefið neina vís­inda­lega skýr­ingu á atburð­unum.

Í grein Tímans er það sagt að munn­mæli séu um að Frakkar eða Spán­verjar nokkrir hafi verið grafnir (heygðir í dysi) á Framnesi, sem er skammt sunnan við Saura. Björgvin, elsti sonur hjón­anna á Saurum sem búsettur var á Skaga­strönd, sagð­ist hafa tekið steina úr dys­inu árið áður, þegar hann hafði verið að búa í hag­inn fyrir æðar­fugl. Þvertók fjöl­skyldan fyrir að þau hefðu orðið vör við eitt­hvað furðu­legt á þeim tíma.

Prestar, fjölmiðlamenn, miðlar og listamenn

Eins og fyrr sagði var mik­ill gesta­gangur á bænum í tengslum við atburð­ina. Til að mynda kom þangað sjö manna hópur frá Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Íslands laug­ar­dag­inn 21. mars.

Meðal þeirra var for­seti félags­ins, séra Sveinn Víkingur, og Haf­steinn Björns­son mið­ill. Blaða­menn frá hinum ýmsu miðlum létu sig ekki heldur vanta. Lista­maður að nafni Baltazar kom með blaða­manni Fálkans, Jökli Jak­obs­syni. Hann var spænskur og feng­inn sér­stak­lega á stað­inn sem túlkur, ef ske kynni að draug­arnir væru hinir hugs­an­legu Spán­verjar sem grafnir væru á Framnesi. Sókn­ar­prest­ur­inn, séra Pétur Ingj­alds­son, og sýslu­mað­ur­inn á Blöndu­ósi, Jón Ísberg, létu sig ekki vanta.

Þetta laug­ar­dags­kvöld var hald­inn helj­ar­innar mið­ils­fundur á bænum. Fjöl­miðlar fengu ekki að vera við­staddir hann, en séra Sveinn Víkingur lét þó hafa eftir sér að loknum fund­inum að þarna hefði ákveð­inn grunur orðið sterk­ari; að þarna væri um að ræða hulin öfl eða hina fam­liðnu.

Skyggnilýsing Láru og svokallað beinamál

Lára Ágústs­dóttir mið­ill kom að Saurum dag­inn eftir og var þar með skyggni­lýs­ingu. Að henni lok­inni full­yrti hún að um væri að ræða fram­liðið fólk og gekk svo langt að segja að þarna væru sjó­drukkn­aðir menn að láta að sér kveða.

Frásögn Láru var birt orð­rétt í Tímanum þann 9. apríl, stuttu eftir atburð­ina. Þar segir hún meðal ann­ars að hún hafi stutt oln­boga á borð, þar sem hún sat ásamt hús­ráð­endum og föru­neyti sínu. Skyndi­lega hafi hún fundið borðið kipp­ast til með hröðum sveiflum. Hún sagði það hafa verið eins og ein­hver hrein­lega lyfti borð­inu upp „með herð­unum. Mér brá mjög við og öllum sem inni voru. Mér varð litið á Guðmund og varð hann alveg náhvítur, lík­ast og það ætl­aði að líða yfir hann, og sam­tímis fór ískaldur gustur um bað­stof­una…“

Lára sagð­ist einnig hafa skynjað mann sem hún sagði enskan. Hún sagði að mann­inum fylgdi stór hundur og að hún teldi hann hafa verið myrtan. Hún taldi miðað við útgang­inn á mann­inum að hann hefði verið skip­stjóri.

Í grein Tímans segir:

„Við þessa frá­sögn Láru er ekki laust við að hug­ur­inn hvar­fli að danska skip­inu sem rak á Hjalta­bakka­fjörur árið 1802 en skip­stjór­inn og hundur hans hurfu þá með und­ar­legum hætti og varð út af því stór­fellt saka­mál, svo­kallað beina­mál.“

Bærinn á Saurum, kom­inn í eyði.

Blaðamenn með dólgslæti

Athygl­is­vert er að allur sá fjöldi blaða­manna sem komu til að rann­saka málið urðu almennt ekki varir við drauga­gang­inn, fyrir utan að Grétar Oddsson blaða­maður Alþýðu­blaðs­ins sagði dívan sem hann sat á hafa hreyfst eitt­hvað undir sér.

Samkvæmt frá­sögnum voru blaða­menn raunar með nokkur dólgs­læti á bænum; drukku mikið og heimt­uðu að sjá draug. Svo fór að blaða­manni Vísis var vísað á dyr.

Jón Ísberg sýslu­maður sagði á sínum tíma við blaða­mann Þjóð­vilj­ans að hann teldi ekki ástæðu til að rengja fram­burð heim­il­is­fólks­ins. Hann taldi atburð­ina ekki vera af manna­völdum. Í því sam­tali sagði hann fjöl­skyld­una vera orðna hvekkta af öllum gesta­gang­inum og sím­hring­ing­unum. Taldi hann að því ætti að linna á þeim tíma­punkti.

Í fjöl­miðlum var bent á að aldrei hefðu tveir eða fleiri sjón­ar­vottar séð atvikin ger­ast. Ástæða þótti einnig til að til­greina að flest atvikin hefðu gerst í kringum kon­urnar á bænum.

Fóturinn

Ótal myndir voru teknar í heim­sóknum fjöl­miðla­mann­anna. Þegar ljós­mynd­ari Alþýðu­blaðs­ins er síðan að skoða myndir á filmu hjá sér, sem höfðu þá ekki birst opin­ber­lega, tekur hann eftir mynd af skápnum með leir­tauinu sem dottið hafði fram fyrir sig. Skáp­ur­inn stendur þar þétt upp við dívan­inn sem Grétar Oddsson, blaða­maður Alþýðu­blaðs­ins, hafði setið á og á mynd­inni mátti sjá fót sem stutt var við skáp­inn hinum megin.

Myndin var birt í fjöl­miðlum þann 24. mars og því haldið fram að drauga­gang­ur­inn hlyti því allur að vera af manna­völdum. Enn frétt­ist þó af svip­uðum atburðum á Saurum eftir þetta, allt fram í apríl, þegar nágrannar voru sagðir hafa slegið þagn­ar­múr um bæinn og ekki væri lengur hægt að fá fréttir þaðan.

Blaða­maður Þjóð­vilj­ans kom að bænum árið 1983 til að kanna aðstæður. Þá bjó þar sonur hjón­anna, Benedikt Guð­munds­son. Hann hafði verið ein­búi á bænum allt frá því stuttu eftir hina dul­ar­fullu atburði.

Hann vildi ekki ræða málið við blaða­mann Þjóð­vilj­ans þegar hann bar að garði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag