Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í fréttum var þetta helst: Barinn Hrafn, Matartips, sár Jóhanna Guðrún og Einar Ágúst

Í fréttum var þetta helst: Barinn Hrafn, Matartips, sár Jóhanna Guðrún og Einar Ágúst

Hrafn Jök­uls­son tví­vegis bar­inn alvar­lega á Land­spít­al­anum: „Hann ætl­aði að drepa mig“

„Hnefar hans voru eins og stungu­skólfur. Ég hef aldrei séð slíka hnefa og þetta var eng­inn venju­legur beljaki sem var ákveð­inn í því að drepa mig,“ segir Hrafn Jök­uls­son rit­höf­undur í sam­tali við Mannlíf. Hann hefur kært til lög­reglu tvær alvar­legar lík­ams­árásir sem hann varð nýverið fyrir á Land­spít­al­anum.

Hrafn hefur ítekað verið nauð­ung­ar­vi­staður á geð­deild spít­al­ans á árinu og mætir hann fyrir Lands­rétt í dag til að tala máli sínu um lausn frá nauð­ung­ar­vist­un­inni. Þann 9. nóv­em­ber réðst annar vist­maður geð­deildar tví­vegis á rit­höf­und­inn, með þeim afleið­ingum að Hrafn rot­að­ist í fyrra skiptið og í síð­asti árásinni var honum bjargað af starfs­manni deild­ar­innar. „Þetta voru mjög grófar lík­ams­árásir, í tvígang. Í seinna skiptið kastaði starfs­maður sér fyrir höggið, líkt og sannur líf­vörður Banda­ríkja­for­seta, en það var helj­ar­högg,“ segir Hrafn.

„Hann fékk næði til að und­ir­búa sig fyrir báðar árás­irnar. Ég furða mig á því að það virð­ast engir verk­ferlar til eða við­bragðs­á­ætlun til að bregð­ast við eftir fyrri árás­ina, sem var mjög alvar­leg. Ég hef aldrei verið stein­rot­aður áður og ég skil ekki hvers vegna mað­ur­inn var ekki færður eitt­hvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árás­ina, þar sem aum­ingj­ans mað­ur­inn hafði bitið það í sig að koma mér af jörð­inni,“ segir Hrafn.

Sjá alla frétt­ina hér: Hrafn Jök­uls­son tví­vegis bar­inn alvar­lega á Land­spít­al­anum: „Hann ætl­aði að drepa mig“

Logar allt á Mat­ar­tips! eftir heim­sókn Rakelar á Stokks­eyri: „Mjög óspenn­andi og dýrt“

Rakel var ekki sátt með varn­ing­inn og verð­lagið í sjopp­unni á Stokks­eyri eftir nýlega heim­sókn þangað. Ekki bara var mat­ur­inn að hennar sögn mjög óspenn­andi heldur einnig dýr.

Rakel segir frá upp­lifun sinni í fjöl­mennum hópi mat­gæð­ina á Facebook, Mat­ar­tips!. Þar segir hún:

„Mæli alls ekki með fjöl­skyldutil­boð­inu á ham­borg­ur­unum í sjoppuni á Stokks­eyri. 6.900 kr fyrir 4 ham­borg­ara með milli­stærð af frönskum og 2l pepsi. Ekkert nema sósa, ostur og smá kál á borg­ur­unum. Mjög óspenn­andi og dýrt.“

Óhætt er að segja að allt logi í hópnum eftir færsl­una þar sem skiptar skoð­anir koma fram. Sumir verja sjopp­una á meðan aðrir virð­ast hafa upp­lifað svipað. Birna er ein þeirra síð­ar­nefndu. „Hahahaha var einmitt að koma þaðan. Fyrir 2 ham­borg­ara með sósu, osti og örlitlu káli, 2 ham­borg­ara með tómats­sósu, frönskum sem þær meira að segja gleymdu fyrst, 2l. Pepsí og 2×200 krónur bland í poka borg­aði ég 7530. Þeir voru alls ekki góðir, hund­ur­inn fékk barna­borg­ar­ana því börnin vildu þá alls ekki. Fáránleg verð­lagn­ing og gæðin hræði­leg,“ segir Birna.

Sjá alla frétt­ina: Logar allt á Mat­ar­tips! eftir heim­sókn Rakelar á Stokks­eyri: „Mjög óspenn­andi og dýrt“

Jóhanna Guðrún sár út í Smartland: „Hef aldrei séð fjöl­miðil gera þetta og fannst mér það ljótt“

Stórsöng­konan Jóhanna Guð­rún Jóns­dóttir segir í við­tali við Vísi að henni hafi brugðið mjög að sjá frétt þess efnis að hún væri ó­létt; hún hafði ekki einu sinni verið búin að segja dóttur sinni að hún væri að fara að eign­ast nýtt syst­kin.

Jóhanna Guð­rún skildi við eig­in­mann sinn og barns­föður fyrr á árinu; var greint frá því að hún væri komin í sam­band með Ólafi Frið­riki Ólafs­syni – en hann var áður kær­asti hennar.

Jóhanna Guðrún segir að það hafi verið erfitt að sjá frétt á

mbl.is

um að hún ætti von á barni. Og hún er ekki sátt:

„Ef það er eitt­hvað sem ég hef lært, því miður, að í þessum geira sem ég er í þá verður maður svo­lítið bara að kyngja því að maður á sér ekk­ert „priva­cy“. Þetta var samt alveg pínu á­fall fyrir mig, að þetta skyldi vera til­kynnt án þess að ein­hver reyndi einu sinni að hafa sam­band við mig. Ég var ekki einu sinni búin að segja dóttur minni þetta,“ sagði Jóhanna Guð­rún í áður­nefndu við­tali við Vísi.

Sjá alla frétt­ina: Jóhanna Guðrún sár út í Smartland: „Hef aldrei séð fjöl­miðil gera þetta og fannst mér það ljótt“

Popp­stjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu“

Einar Ágúst Víðisson tón­list­ar­maður hefur marga fjör­una sopið. Hann hefur tek­ist á við þung­lyndi og kvíða frá því að hann var barn og í dag er hann öryrki og hugsar reglu­lega um dauð­ann. Í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni talar hann meðal ann­ars um þung­lyndið, grófa fram­komu sumra karla gagn­vart konum, hand­tök­urnar og him­in­inn.

„Ég er með dauða­hugs­anir á hverjum degi og langar bara að deyja,“ segir Einar Ágúst Víðisson sem seg­ist hafa tek­ist á við þung­lyndi og kvíða frá því að hann var krakki. Ótta. Hræðslu. Óöryggi. „Ég nenni þessu ekki. Ég er bara kom­inn með nóg. Ég er mjög brot­inn og er ekki á besta stað í líf­inu, en ég næ edrú­tímum og ég næ flugi og svo grípur kvíð­inn og þung­lyndið inn í sem og verkirnir og ég fer niður brekku. Svo endar það með því að ég fæ mér Baileys í kaffið eða reyki eina jónu og svo upp á vagn­inn aftur. Það er þessi leið­inda­hringur í lífi mínu sem ég er orð­inn svo þreyttur á. Ég er búinn að éta allan and­skot­ann, svo sem þung­lynd­is­lyf, og ég er búinn að reyna svo margt. Ég fór á Reykja­lund; ég fór í langa end­ur­hæf­ingu og ég virð­ist ekki finna minn stað ein­hvern veg­inn.“

Langvar­andi sárs­auki er ofboðs­lega erf­iður

Hann er spurður hve lengi svona þung­lynd­is­tíma­bil standi yfir. „Vikur. Mánuði. Ár. Ég hef alveg tekið nokkur ár. Þetta er bara við­bjóður.

Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu and­lega og má við rosa­lega litlu. Ég veikt­ist svo­lítið alvar­lega fyrir nokkrum árum. Þegar maður verður full­orð­inn verða þessir veik­leikar eins og athygl­is­brestur, þung­lyndi og kvíði – hlutir sem maður gat hrækt úr sér í gamla daga – miklu erf­ið­ari viður­eignar, sér­stak­lega athygl­is­brest­ur­inn, og maður er hættur að geta bitið á jaxl­inn. Maður fattar að þetta er eins og fíknin og alkó­hól­ism­inn. Þetta eru krónískir sjúk­dómar.“

Sjá allt við­talið: Popp­stjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi