Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Logar allt á Matartips! eftir heimsókn Rakelar á Stokkseyri: „Mjög óspennandi og dýrt“

Stokkseyri – myndin tengist fréttinni ekki beint
Stokks­eyri – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Rakel var ekki sátt með varninginn og verðlagið í sjoppunni á Stokks­eyri eftir nýlega heimsókn þangað. Ekki bara var maturinn að hennar sögn mjög óspennandi heldur einnig dýr.

Rakel segir frá upplifun sinni í fjölmennum hópi matgæðina á Facebook, Matartips!. Þar segir hún:

„Mæli alls ekki með fjölskyldu­tilboðinu á hamborgurunum í sjoppuni á Stokks­eyri. 6.900 kr fyrir 4 hamborgara með milli­stærð af frönskum og 2l pepsi. Ekkert nema sósa, ostur og smá kál á borgurunum. Mjög óspennandi og dýrt.“

Óhætt er að segja að allt logi í hópnum eftir færsluna þar sem skiptar skoðanir koma fram. Sumir verja sjoppuna á meðan aðrir virðast hafa upplifað svipað. Birna er ein þeirra síðarnefndu. „Hahahaha var einmitt að koma þaðan. Fyrir 2 hamborgara með sósu, osti og örlitlu káli, 2 hamborgara með tómats­sósu, frönskum sem þær meira að segja gleymdu fyrst, 2l. Pepsí og 2×200 krónur bland í poka borgaði ég 7530. Þeir voru alls ekki góðir, hundurinn fékk barna­borgarana því börnin vildu þá alls ekki. Fáránleg verð­lagning og gæðin hræðileg,“ segir Birna.

Inga er ósammála. „Mér finnst það ekki dýrt. Deilt með fjórum um 1700 kr fyrir manninn,“ segir Inga. Arilius ver einnig sjoppuna. „Vitleysa er þetta. Mjög gott grill þarna og pizzurnar virkilega gòðar. Brauðstangirnar sìðan þær bestu sem ég hef smakkað á landinu. Topp­staður,“ segir Arilius ákveðinn.

Guðjóna veit hver vanda­málið er. „Þetta er pínu­lítill staður í pínu litlu bæjar­félagi þar sem traffíkin er engin og flutnings­kostnaður hár og viðskipta­vild hjá birgjum engin.Respect að halda þessu gangandi.Kvarta svo beint í eigendur það virkar allt best,“ segir Guðjóna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli