Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Landspítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Landspítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

„Hnefar hans voru eins og stungu­skólfur. Ég hef aldrei séð slíka hnefa og þetta var eng­inn venju­legur beljaki sem var ákveð­inn í því að drepa mig,“ segir Hrafn Jök­uls­son rit­höf­undur í sam­tali við Mannlíf. Hann hefur kært til lög­reglu tvær alvar­legar lík­ams­árásir sem hann varð nýverið fyrir á Land­spít­al­anum.

Hrafn hefur ítekað verið nauð­ung­ar­vi­staður á geð­deild spít­al­ans á árinu og mætir hann fyrir Lands­rétt í dag til að tala máli sínu um lausn frá nauð­ung­ar­vist­un­inni. Þann 9. nóv­em­ber réðst annar vist­maður geð­deildar tví­vegis á rit­höf­und­inn, með þeim afleið­ingum að Hrafn rot­að­ist í fyrra skiptið og í síð­asti árásinni var honum bjargað af starfs­manni deild­ar­innar. „Þetta voru mjög grófar lík­ams­árásir, í tvígang. Í seinna skiptið kastaði starfs­maður sér fyrir höggið, líkt og sannur líf­vörður Banda­ríkja­for­seta, en það var helj­ar­högg,“ segir Hrafn.

„Hann fékk næði til að und­ir­búa sig fyrir báðar árás­irnar. Ég furða mig á því að það virð­ast engir verk­ferlar til eða við­bragðs­á­ætlun til að bregð­ast við eftir fyrri árás­ina, sem var mjög alvar­leg. Ég hef aldrei verið stein­rot­aður áður og ég skil ekki hvers vegna mað­ur­inn var ekki færður eitt­hvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árás­ina, þar sem aum­ingj­ans mað­ur­inn hafði bitið það í sig að koma mér af jörð­inni,“ segir Hrafn.

Aðspurður um til­finn­ingar sínar og líðan eftir árás­irnar seg­ist Hrafn hafa það ágætt og allan tím­ann hafi hann ekki verið ótta­sleg­inn. „Ég tel mig þokka­lega hepp­inn. Ég er nátt­úr­lega svo klikk­aður að ég er aldrei hræddur um líf mitt. Það er í Guðs höndum, míns frels­ara. Ég skrifa það alfarið á stjórn­endur spít­al­ans og yfir­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins að skapa þær aðstæður að svona hættu­legir hlutir ger­ast. Atburð­ar­rásin hefði ekki þurft að vera nema örlítið önnur, þá hefði orðið enn eitt dauðs­fallið á geð­deild Land­spít­al­ans,“ segir Hrafn.

Hér fyrir neðan má sjá kæru Hrafn til lög­regl­unnar vegna árásanna á Land­spít­al­anum. Undir hana ritar Reimar Pálsson, lög­maður rit­höf­und­ar­ins:

Kæra til lög­reglu

Umbjóð­andi minn, Hrafn Jök­uls­son, kt. 011165-3709, Kross­nesi, Árnes­hreppi, hefur falið mér að óska eftir lög­reglu­rann­sókn með vísan til 3. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um með­ferð saka­mála á lík­ams­árás sem hann varð fyrir á Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húsi, deild 32C, þann 9. nóv­em­ber sl.

Umbjóð­andi minn sætti nauð­ung­ar­vistun á grund­velli lög­ræð­islaga á sjúkra­hús­inu í greint skipti og atvik munu hafa verið þau að annar sjúk­lingur hafi ráð­ist að honum tví­vegis með stuttu milli­bili og veitt honum áverka, m.a. á höfði. Umbjóð­andi minn hafi rot­ast og orðið fyrir miklu áfalli í tengslum við þennan atburð.

Umbjóð­andi minn beinir kæru þess­ari að stjórn­endum Land­spít­al­ans. Umbjóð­andi hafi sætt nauð­ung­ar­vistun á spít­al­anum og brýnt var að stjórn­endur spít­al­ans tækju allar við­hlít­andi ráð­staf­anir til að tryggja öryggi hans. Hafi það verið brýnt því aðrir sjúk­lingar, sem hann hafi verið vistaður með, hafi einnig sætt nauð­ung­ar­vistun og sumir hverjir vænt­an­lega á þeirri for­sendu að þeir kynnu að reyn­ast öðrum mönnum hættilegir. Þetta hafi stjórn­endum spít­al­ans verið kunn­ugt en samt hafi þeir með öllu van­rækt að setja við­hlít­andi örygg­is­reglur um starf­semi deild­ar­innar og/eða tryggt að þeim væri fylgt eftir með nægj­an­legum fjölda örygg­is­varða og skipu­lögðum vinnu­brögðum. Ekki síst hafi þetta átt við eftir fyrri atlög­una að umbjóð­anda mínum, en óskilj­an­legt er að ekki hafi tek­ist að afstýra þeirri seinni.

Umbjóð­andi minn telur van­rækslu stjórn­enda spít­al­ans í þessum efnum kunna að vera stór­fellda og refsi­verða, sbr. t.d. 132. gr., 141. gr. og 219. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, sbr. og 24. gr. laga nr. 40/2007 um heil­brigð­is­þjón­ustu og 9.-13. gr. reglu­gerðar nr. 786/2007, en sú reglu­gerð mælir m.a. fyrir um fag­legar lág­marks­kröfur við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu.

Umbjóð­andi minn gerir því kröfu um að málið verði tekið til rann­sóknar. Hann tekur þó fram að hann óskar þess sér­stak­lega að rann­sókn verði ekki beint að þeim sem réð­ist að honum, enda sé hann ósak­hæfur,. Eins óskar hann þess að rann­sókn verði ekki beint að þeim almennu starfs­mönnum deild­ar­innar sem voru að störfum í greint sinn, enda telur hann aðbúnað, öryggi og mönnun hafa verið ófull­nægj­andi. Á því beri stjórn­endur ábyrgð en almennum starfs­mönnum verði ekki kennt um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi