Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Jóhanna Guðrún sár út í Smartland: „Hef aldrei séð fjöl­miðil gera þetta og fannst mér það ljótt“

Jóhanna Guðrún er stórkostleg söngkona – hreinlega í heimsklassa.
Jóhanna Guðrún er stór­kost­leg söng­kona – hrein­lega í heimsklassa.

Stórsöng­konan Jóhanna Guð­rún Jóns­dóttir segir í við­tali við Vísi að henni hafi brugðið mjög að sjá frétt þess efnis að hún væri ó­létt; hún hafði ekki einu sinni verið búin að segja dóttur sinni að hún væri að fara að eignast nýtt syst­kin.

Jóhanna Guð­rún skildi við eiginmann sinn og barns­föður fyrr á árinu; var greint frá því að hún væri komin í sam­band með Ólafi Frið­riki Ólafs­syni – en hann var áður kærasti hennar.

Jóhanna Guðrún segir að það hafi verið erfitt að sjá frétt á

mbl.is

um að hún ætti von á barni. Og hún er ekki sátt:

„Ef það er eitt­hvað sem ég hef lært, því miður, að í þessum geira sem ég er í þá verður maður svo­lítið bara að kyngja því að maður á sér ekkert „priva­cy“. Þetta var samt alveg pínu á­fall fyrir mig, að þetta skyldi vera til­kynnt án þess að ein­hver reyndi einu sinni að hafa sam­band við mig. Ég var ekki einu sinni búin að segja dóttur minni þetta,“ sagði Jóhanna Guð­rún í áður­nefndu viðtali við Vísi.

Marta María Jón­as­dóttir rit­stjóri Smartlands.

Jóhanna Guð­rún hafði ætlað að bíða eftir að 20 vikna sónar, til að segja börnunum sínum gleði­fréttirnar:„Ég þurfti að hringja í frí­stunda­heimilið hjá dóttur minni og segja henni þetta í símanum af því að fólk var byrjað að blaðra um þetta út um allt. Þetta finnst mér ljótt. Ég skildi fréttirnar um mig og Óla, ég vissi að það kæmi fyrr eða síðar. En ég hef aldrei séð áður fjöl­miðil gera þetta. Ég varð leið. Ég er ekki mjög hörunds­ár en þetta fannst mér inn­rás inn í mitt einka­líf. Meira heldur en það sem maður á að þurfa að þola. Líka bara af því að börnin eru í nýjum aðstæðum, með nýjan stjúppabba og á nýju heimili. Maður er því kannski ekki að segja þetta nema maður viti að allt sé í lagi,“ segir Jóhanna Guðrún og bætir við:

Jóhanna og Ólafur.

„Ég er alveg nokkuð viss um að þessi blaða­maður sem setti þessa frétt inn, hún hefur pottþétt ekki gert sér grein fyrir því að ég á tvö börn. Ég á sex ára barn í skóla, þar sem fólk talar. Hún vissi ekki að ég væri ófrísk svo þetta gerði mig mjög reiða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt