Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Poppstjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekkert á sérstaklega góðum stað í lífinu“

Poppstjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekkert á sérstaklega góðum stað í lífinu“

Einar Ágúst Víðisson tón­list­ar­maður hefur marga fjör­una sopið. Hann hefur tek­ist á við þung­lyndi og kvíða frá því að hann var barn og í dag er hann öryrki og hugsar reglu­lega um dauð­ann. Í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni talar hann meðal ann­ars um þung­lyndið, grófa fram­komu sumra karla gagn­vart konum, hand­tök­urnar og him­in­inn.

„Ég er með dauða­hugs­anir á hverjum degi og langar bara að deyja,“ segir Einar Ágúst Víðisson sem seg­ist hafa tek­ist á við þung­lyndi og kvíða frá því að hann var krakki. Ótta. Hræðslu. Óöryggi. „Ég nenni þessu ekki. Ég er bara kom­inn með nóg. Ég er mjög brot­inn og er ekki á besta stað í líf­inu, en ég næ edrú­tímum og ég næ flugi og svo grípur kvíð­inn og þung­lyndið inn í sem og verkirnir og ég fer niður brekku. Svo endar það með því að ég fæ mér Baileys í kaffið eða reyki eina jónu og svo upp á vagn­inn aftur. Það er þessi leið­inda­hringur í lífi mínu sem ég er orð­inn svo þreyttur á. Ég er búinn að éta allan and­skot­ann, svo sem þung­lynd­is­lyf, og ég er búinn að reyna svo margt. Ég fór á Reykja­lund; ég fór í langa end­ur­hæf­ingu og ég virð­ist ekki finna minn stað ein­hvern veg­inn.“

Langvar­andi sárs­auki er ofboðs­lega erf­iður

Hann er spurður hve lengi svona þung­lynd­is­tíma­bil standi yfir. „Vikur. Mánuði. Ár. Ég hef alveg tekið nokkur ár. Þetta er bara við­bjóður.

Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu and­lega og má við rosa­lega litlu. Ég veikt­ist svo­lítið alvar­lega fyrir nokkrum árum. Þegar maður verður full­orð­inn verða þessir veik­leikar eins og athygl­is­brestur, þung­lyndi og kvíði – hlutir sem maður gat hrækt úr sér í gamla daga – miklu erf­ið­ari viður­eignar, sér­stak­lega athygl­is­brest­ur­inn, og maður er hættur að geta bitið á jaxl­inn. Maður fattar að þetta er eins og fíknin og alkó­hól­ism­inn. Þetta eru krónískir sjúk­dómar.“

Er Einar Ágúst hættur að drekka?

„Nei, ég fell. Ég hef náð ein­hverjum tíma og svo kemur í bakið á mér kvíð­inn og þung­lyndið og svo er ég mik­ill verkja­sjúk­lingur og það er ofboðs­lega erfitt að díla við hluti eins og þung­lyndi, kvíða og alla sína bresti ef maður finnur til. Langvar­andi sárs­auki er ofboðs­lega erf­iður. Ég hef stúd­erað mikið þennan mann­lega breysk­leika. Einhver sak­aði mig um að vera nar­k­iss­isti en ég finn svo ofboðs­lega til með öðrum þannig að ég krossa ekki í það box. Ég hef verið að reyna að finna sjálfan mig. Bróðir minn er sál­fræð­ingur og hann sagði að ég væri með dass af öllu og það tals­vert. Ég hef spurt sjálfan mig hvort ég sé geð­veikur, sækópati, sið­blindur eða nar­k­iss­isti.“

Ég hef verið að reyna að finna sjálfan mig.

Hann hefur setið hjá sál­fræð­ingi og lamið í kodda.

„Ég er búinn að prófa Dale Carnegie og allt þetta dótarí. Það eina sem hefur hjálpað mér í líf­inu með mína bresti eða mína veik­leika eru 12 sporin og und­ir­með­vit­und­ar­fræði sem ég hef lært hjá Kára Eyþórs­syni í Ráð­gjafa­skóla Íslands. Og það eru þeir hlutir sem hafa komið mér mest að gagni í líf­inu.“

Ég er ekk­ert á sér­stak­lega góðum stað í líf­inu and­lega og má við rosa­lega litlu. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Mínu nafni hefur verið hent upp

Nei, lífið hefur ekki verið dans á rósum.

„Ég kynni mig oft sem Einar ógæfu­mann og fólki bregður við,“ segir Einar Ágúst og segir síðan að hann hafi notið gæfu í sínu lífi en að hann hafi ein­stakt lag á að klúðra hlut­unum.

„Ég ofhugsa allt og díla við ekki nógu sterka sjálfs­mynd.“
Hann við­ur­kennir að hafa ekki einu sinni verið með sterka sjálfs­mynd þegar hann söng með Skíta­móral sem var ein vin­sælasta hljóm­sveitin á land­inu á sínum tíma.

Ég ofhugsa allt og díla við ekki nógu sterka sjálfs­mynd.

„Ég geri þetta af lífs og sálar kröftum og geri þetta af fyllstu ein­lægni – flyt músík, skemmti fólki og sem lög. Ég get ekki samið um myrkrið, dópið, ógæf­una og skiln­að­ina en ég get ein­hvern veg­inn fundið mig í því hlut­verki að gleðja fólk.“

Og hann barð­ist við sviðs­skrekk. „Maður bara steig inn í ótt­ann. Það er kannski þetta að geta ekki sagt „nei“ og þá var maður kom­inn í hlut­verkið og varð bara að láta sig hafa það.“

Og margir líta upp til söngv­ara. Og áheyr­endur verða sumir skotnir í þeim.

„Ég segi stundum að ég sé strákur sem hafi ekki átt séns í stelpur nema af því að ég var í hljóm­sveit. Maður er eng­inn herra Ísland og maður fékk áður óséða athygli. Mér fannst gott að ég þurfti aldrei að taka ábyrgð á því; ef konur voru að horfa á mig eða karlar þá þurfti ég aldrei að akta á það. Ég gat farið bak­sviðs, lokað dyr­unum og læst. Ég lét þar við sitja.“

Einar Ágúst er spurður hvort hann hafi aldrei verið skammaður fyrir að ganga of langt gagn­vart konum.

„Jú, sér­stak­lega núna nýverið hefur mínu nafni alveg verið hent upp og allt í góðu með það. Ég er ekki ofbeld­is­maður eða kyn­ferð­is­af­brota­maður en í seinni tíð hef ég átt auð­veld­ara með að grípa til ofbeldis en ég gerði áður. Ég hef aldrei kunnað að slást og ég hef alltaf verið lít­ill í mér.“

Jú, sér­stak­lega núna nýverið hefur mínu nafni alveg verið hent upp og allt í góðu með það.

Einar Ágúst er spurður hvort hann hafi aldrei verið skammaður fyrir að ganga of langt gagn­vart konum. Hvað finnst honum um umræð­una í dag um ein­stak­linga sem það hafa gert?

„Án þess að maður hendi undir lest­ina ein­hverjum nöfnum þá er þessi umræða löngu tíma­bær, það er löngu tíma­bært að gera eitt­hvað í þessum málum og það er löngu tíma­bært að skera upp herör gegn þess­ari ógeðs­legu nauðg­un­ar­menn­ingu sem karl­pen­ing­ur­inn hefur haft á kven­þjóð­inni frá upp­hafi mann­kyns­sög­unnar. Þá höfum við verið níð­ingar. Og þegar þessi umræða fór af stað nýverið, þá sagði ég „yes, nú er þetta að ger­ast“. Svo fer umræðan út um allt og maður veit ekki hvar maður hefur fólk.

Ég hef sjálfur þurft að upp­lifa það í gegnum tíð­ina að hafa mikið að segja, en ég hef kannski skemmt rosa­lega mikið fyrir sjálfum mér með skap­inu. Ég get gert fólk frá­vita af hræðslu með lýs­ing­ar­orða­notkun. Ef menn eru skap­miklir eins og ég og það kemur upp vanda­mál og maður æsir sig þá hef ég upp­lifað að maður sé þá búinn að taka svo­lítið það frá sjálfum sér að fólk taki eins mikið mark á manni. Þá er maður meira eins og vit­leys­ingur eða bjáni. Ég held að fólk verði að passa sig svo­lítið á umræð­unni í dag. Ég átti erf­ið­ara með að rök­ræða og ræða málin í gamla daga. Ég var það lít­ill í mér að ef ein­hver kom að mér þá bara fraus ég. Svo fór ég heim og hugs­aði að ég hefði átt að segja þetta eða hitt. Ég átti erfitt með að tjá mig langt fram á þrí­tugs­aldur. Að standa fyrir mínu. Setja mörk.“

Ég held að fólk verði að passa sig svo­lítið á umræð­unni í dag.
Ég hef sjálfur þurft að upp­lifa það í gegnum tíð­ina að hafa mikið að segja en ég hef kannski skemmt rosa­lega mikið fyrir sjálfum mér með skap­inu. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Handtökur og dómur

Einar Ágúst þekkir Bakkus og svo þekkir hann líka önnur vímu­efni. Hann tekur fram að honum þyki samt miklu skemmti­legra að syngja og spila þegar hann er edrú.

Hann seg­ist einu sinni hafa fengið dóm; það var fyrir vörslu á 55 grömmum af amfetamíni.

„Ég var hand­tek­inn í sam­bandi við dóperí 2004. Og svo árið 2005 með öll þessi skot­vopn í Vogum á Vatns­leysu­strönd; 50 stolin skot­vopn og ég fékk 40 löggur í heim­sókn. Það hvarf byssu­safn á Húsavík og félagi minn var staddur erlendis og hafði unnið í því fyrir eig­and­ann sem hann þekkti að finna byss­urnar. Það átti að senda þær úr landi og selja þær, skild­ist mér, og hvort að eig­and­inn fékk veður af því að félagi minn hefði bara stolið byss­unum, og þá fékk hann lög­regl­una til að koma heim til okkar og ég var þarna einn að passa tvo hunda.“ Einar Ágúst seg­ist ekk­ert hafa haft með þessar byssur að gera. „Hvað á ég að gera með skot­vopn? Ég er reyndar mjög góð skytta. Ég fór á rjúpu og gæs. Höfum það á hreinu að eig­and­inn missti á end­anum öll byssu­leyfin og missti safnið; það var tekið af honum. Og við vorum ekki einu sinni ákærðir.

50 stolin skot­vopn og ég fékk 40 löggur í heim­sókn.

Ég var einnig hand­tek­inn árið 2004 í tengslum við hið svo­kall­aða Detti­foss­mál sem var inn­flutn­ingur á 11 kílóum af amfetamíni. Þeir vissu af 25 kílóum af hassi skilst mér sem þeir náðu aldrei, löggan, en ég var þá að versla eit­ur­lyf og var hand­tek­inn með þessu fólki,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn en hann var að kaupa eit­ur­lyf á heim­ili eins sak­born­ings­ins í Detti­foss­mál­inu þegar lög­reglan gerði áhlaup og hand­tók alla við­stadda. „Ég var ekki einu sinni ákærður í því máli.“ Það breytt­ist þó margt í kjöl­farið. „Ég sagði mig strax úr hljóm­sveit­inni, hætti hjá útvarps­stöð­inni FM þar sem ég vann og sagði upp hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu, þar sem ég vann einnig, og fór í langa með­ferð en hef ekki notið sann­mælis síðan.“

Ég sagði mig strax úr hljóm­sveit­inni, hætti hjá útvarps­stöð­inni FM þar sem ég vann og sagði upp hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu, þar sem ég vann einnig, og fór í langa með­ferð en hef ekki notið sann­mælis síðan. (Mynd: Róbert Reyn­is­son.)

Sveimhugi

Hann, sem hefur opnað svona á sál sína og veik­leika, seg­ist hafa átt góða æsku en hann ólst upp í nágrenni nátt­úr­unnar í Nes­kaup­stað.

„Ég byrj­aði á því ungur að detta alls konar snið­ugir hlutir í hug. Var svo­lítið trúð­ur­inn. Var svo­lít­ill sveim­hugi – ef kenn­ar­arnir voru of lengi að tala um algebruna þá var ég kom­inn út í glugga að hugsa um eitt­hvað annað. Bara strax í barna­skóla.“

Hann byrj­aði ungur að leika í leik­ritum í skól­anum og upp­lifði mik­inn sviðs­skrekk. Það er eitt­hvað sem hefur fylgt honum síðan.

„13 eða 14 ára var ég vélaður í ein­hverja söngv­ara­keppni. Þá var þar bassa­guð­inn sjálfur Guðni Finnsson. Þeir voru með hljóm­sveit sem spil­aði undir og ég man að ég tók þátt með lag­inu Stand by Me og vann þetta og var þá vélaður í hljóm­sveit með eldri frænda mínum og bekkj­ar­fé­laga hans. Við byrj­uðum strax að fá að spila á 17. júní og á upp­á­komum fyrir austan. Það var alltaf ofboðs­lega mikið tón­list­ar­líf og það voru engin bíl­skúrs­bönd heima á Norð­firði. Bærinn redd­aði hús­næði, það voru alltaf til græjur og þetta voru rosa for­rétt­indi.“

Boltinn var byrj­aður að rúlla.

Árin liðu og Einar Ágúst skemmti æ fleirum og varð fræg­ari.

Svo var það Eurovi­son en Einar Ágúst og Telma Ágústs­dóttir kepptu í Eurovision fyrir Íslands hönd árið 2000 með lag­inu Tell Me! Hann við­ur­kennir að það hafi verið mikið ævin­týri en þau Telma höfðu stofnað hljóm­sveit­ina Einar Ágúst & Telma árið 2000.

„Mig dreymdi aldrei um pen­inga, kerl­ingar eða frægð og frama. Bara að fá að skemmta fólki og vera með. Það er þráin. Ég hélt ég hefði ekki það sem þyrfti til að bera en svo gerð­ist það með vinnu- og elju­sem­inni. Alveg sama hversu lít­ill maður var í sér; alltaf steig maður upp aftur. Ég á tugi af lögum sem hafa floppað. Ég á tugi tæki­færa sem hafa farið úrskeiðis eða ekki farið vel, en það sem hefur gengið hefur gengið þokka­lega upp. Allt í einu var hljóm­sveitin orðin þetta vin­sæl og allt í einu var ég kom­inn í Eurovision.“

Mig dreymdi aldrei um pen­inga, kerl­ingar eða frægð og frama.

Hann sem hefur gengið grýttan veg seg­ist vera kom­inn til að vera. „Ég er tón­list­ar­maður og ég ætla að vera tón­list­ar­maður. Ég ætla að verða á himn­inum með þeim stærstu án þess að álíta mig ein­hvern snill­ing eða ein­hvern betri en annan. Ég ætla að vera þarna uppi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ