Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Elísa upplifði áfall þegar framkalla þurfti fæðingu: „Tók náttúrlega mikið á andlega og líkamlega“

Elísa upplifði áfall þegar framkalla þurfti fæðingu: „Tók náttúrlega mikið á andlega og líkamlega“
Elísa Katrín Guð­munds­dóttir

„Þetta tók nátt­úr­lega mikið á and­lega og lík­am­lega; það var rosa­legt fyrir lík­amann að fara í gegnum þetta. Öll starf­semi lík­ama nýbak­aðrar móður byrj­aði þótt maður hafi misst þar sem með­gangan var hálfnuð,“ segir Elísa Katrín Guð­munds­dóttir um sína fyrstu með­göngu árið 2016. Þar sem fæð­ing­ar­galli kom í ljós var ákveðið að fram­kalla fæð­ingu. „Hormónin voru nátt­úr­lega á fullu og þetta sat í manni í langan tíma. Maður reynir bara að lifa með þessu. Það er í raun­inni ekk­ert sem maður getur gert. Við bara unnum í okkar málum sjálf.“

Elísa og eig­in­maður hennar, Gísli Ólafur, eign­uð­ust svo son árið 2019. Hún segir að fyrri reynsla hennar hafi haft áhrif á and­lega líðan hennar á þeirri með­göngu sem og nýj­ustu með­göng­unni, en hjónin eign­uð­ust annan son í byrjun des­em­ber í fyrra. „Ég hafði miklar áhyggjur á báðum með­göng­unum; það voru alltaf þessar und­ir­liggj­andi áhyggjur um að eitt­hvað myndi ger­ast þótt að allt liti eðli­lega út og allt gengi vel.“

Hjónin kusu heima­fæð­ingu í fyrra og voru það ljós­mæður á vegum Lífsins – heima­fæð­ingar sem tóku á móti yngri syni hjón­anna. Elísa segir að nokkrar ástæður liggi að baki því að þau völdu þennan kost. Í fyrsta lagi var það erfið reynsla af fyrstu fæð­ing­unni, í öðru lagi hröð og stressandi fæð­ing þegar þau eign­uð­ust eldri son sinn og svo spil­aði heims­far­ald­ur­inn inn í, en vegna hans hafa margir feður ekki mátt mæta í skoð­anir og ein­ungis fengið að vera við­staddir virka fæð­ingu. Þá vildu hjónin ein­fald­lega hafa meiri ró og næði í fæð­ing­unni og hafa stjórn á hlut­unum og svo nefnir Elísa að ekki hefði þurft að vekja son þeirra ef hún hefði þurft að fara á sjúkra­hús um miðja nótt.

Ýmislegt getur komið upp á í fæð­ingum og segir Elísa, sem býr á Suð­ur­nesjum, að þar sé HSS í boði fyrir fæð­andi konur og að þar séu engin inn­grip gerð í fæð­ingum þannig að mun­ur­inn sé að konum sem fæða heima sé ekki boðið upp á glað­loft. „Ef það þyrfti inn­grip þá þyrfti konan að fara með sjúkra­bíl til Reykja­víkur og það hefði ekki tekið lengri tíma að aka mér í sjúkra­bíl frá heim­ili mínu til Reykja­víkur. Við vorum með allt und­ir­búið ef ég þyrfti að fara á sjúkra­hús; við vorum með til­búnar töskur.“

Tilfinningarússíbani

Elísa segir að ljós­mæð­urnar hjá Lífinu – heima­fæð­ingum bjóði upp á heima­þjón­ustu síð­ustu vikur með­göng­unnar og þegar hún svo fékk hríðir komu tvær til að skoða hana en fóru svo en komu aftur þegar fæð­ing­ar­ferlið var lengra komið.

„Þegar ég átti á sjúkra­húsi var svo mikið um að ljós­mæður væru að kíkja á mig og ég var ekki alltaf upp­lögð í það að það væri enda­laust margt fólk að koma til mín. Ég fékk hins vegar að vera í friði heima og kom önnur ljós­móð­irin á undan hinni í seinna skiptið og svo sat hún og drakk kaffi með mann­inum mínum og ljós­mynd­ara sem við fengum til að taka myndir þennan dag eða þangað til ég fór í baðið þar sem ég átti barnið. Við fengum að hafa þetta eins og við vildum. Við gátum alveg verið í róleg­heit­unum. Maðurinn minn hefði mátt koma ofan í baðið ef hann hefði viljað.“

Eldri sonur hjón­anna fékk að fylgj­ast með hluta tím­ans en hann var þó ekki við­staddur þegar litli bróðir hans fædd­ist. Hann fékk þó að koma inn fljót­lega eftir það.

„Hann fékk að koma ofan í fyrst til að byrja með eða þar til ég byrj­aði að finna fyrir remb­ingi, en amma hans fór síðan með hann inn í her­bergið hans en hann kom aftur inn þegar litli bróðir hans var fæddur. Þetta var til­finn­inga­rús­sí­bani fyrir hann. Okkur fannst þetta hafa góð áhrif á hann. Á meðan hann var ofan í laug­inni þá var hann alltaf að strjúka bakið á mér og þegar mað­ur­inn minn gerði það sama þá ýtti hann á hönd pabba síns, af því að hann hélt að hann væri að meiða mig. Svo fór hann að hágráta þegar hann kom inn eftir að bróðir hans fædd­ist. Hann fann nátt­úr­lega fyrir öllum til­finn­ing­unum sem voru í gangi; hann hágrét og þurfti að jafna sig í smá­tíma áður en hann fékk að koma til mín. Þá fékk hann að sjá litla bróður sinn og snerta hann. Þá átt­aði hann sig á því hvað var að ske.“

Meiri stjórn

Hvað með lær­dóm af því að hafa átt heima?

„Maður getur meira en maður heldur. Maður hefur á með­göngu yfir­leitt mestar áhyggjur af verkj­unum í fæð­ingu en þegar ég var búin að ákveða að eiga heima þá fann ég að ég varð miklu rólegri og fór und­ir­með­vit­undin að und­ir­búa sig. Í fyrri fæð­ingum var ég með glað­loftið á fullu en núna and­aði ég mig létti­lega í gegnum þetta og var róleg í stað­inn fyrir að vera í panikki þegar hríð­irnar voru. Svo getur maður stjórnað svo miklu sjálfur í heima­fæð­ingu. Það er hægt að und­ir­búa sig, maður getur verið með kerta­ljós og hlustað á tón­list. Svo hef ég verið treg að hringja bjöll­unni þegar ég hef verið á sjúkra­húsi eftir fyrri fæð­ing­arnar tvær, en núna var ég óhrædd við að spyrja. Maður færi meiri þjón­ustu í heima­fæð­ingu og hefur meiri stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina