Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birna bankastjóri Íslandsbanka – greindist með krabbamein: „Maður er alltaf með smááhyggjur.“

Birna bankastjóri Íslandsbanka – greindist með krabbamein: „Maður er alltaf með smááhyggjur.“

Í helg­ar­við­talið Mannlífs ræðir Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mannlífs við Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka. Í við­tal­inu rifjar hún upp þegar hún greind­ist með brjóstakrabba­mein ári fyrir banka­hrunið. Hún segir að það hafi hjálp­aði að hafa nóg að gera í vinn­unni þegar hún gekk í gegnum það. „Maður er alltaf með smáá­hyggjur.“

Birna greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2007, 45 ára gömul. Ári áður en hún tók við banka­stjóra­stöð­unni. Hún segir að það hafi verið áskorun að glíma við það á þeim tíma að henda sér bara beint í djúpu laug­ina.

„Töl­fræðin segir að 10% kvenna geti lent í því, þannig að við erum heppnar, konur á Íslandi, að þetta hefur gengið svo vel og lífslík­urnar eru svo miklar að við verðum að horfa fram á það og vera með bjart­sýn­ina að leið­ar­ljósi þegar er verið að eiga við svona. Mér tókst það nokkuð vel og ég var heppin. Þetta gekk allt vel. En auð­vitað er maður reynsl­unni rík­ari eftir svona reynslu.

Það var auð­vitað skelfi­legt að fá þessa frétt – að vera með brjóstakrabba­mein.

„Þegar maður fær svona fréttir þá á maður bara eina ósk: Að maður lækn­ist. Áður átti maður svo margar óskir, en allt í einu átti maður bara eina. Maður eign­að­ist aftur þessa drauma þegar maður komst í gegnum það; auð­vitað gerði maður sér grein fyrir mik­il­væg­inu, en það var gott að finna það að aftur komu draumar og óskir um ýmis­legt þegar maður var kom­inn yfir þetta að mestu leyti.“

Maður er alltaf með smáá­hyggjur. Það er það sem ger­ist þegar maður fær svona fréttir, þetta fer aldrei frá manni.

Birna talar um hve vinnan var henni mik­il­væg. „Það sem var að ger­ast kom mér svo­lítið í gegnum þetta af því að maður var upp­tek­inn í öðru en bara að hugsa um sjálfan sig. Kannski er það þess vegna sem ég er enn þá á þessum stað; ég lærði að meta það hvað vinnan er mik­il­væg og hvað hún gefur manni mik­inn kraft.“

Birna missti hárið vegna lyfja­með­ferðar og það var erfitt. Þá grét hún.

„Ég var að vinna og að reyna að kom­ast í gegnum dag­inn og ég var alltaf með hár­kollu. Ég sé þegar við erum að tala um aukið sjálf­stæði og sjálfs­ör­yggi kvenna að nú eru fáar að nota hár­kollu. Þær ganga um með ekk­ert hár. Mér fannst það ekki koma til greina á þeim stað sem ég var á á þeim tíma. Þetta er kannski eitt merki um hvernig sjálfs­traust kvenna hefur auk­ist í atvinnu­líf­inu.“

2007. Það eru 15 ár á þessu ári síðan Birna greind­ist.

„Maður er alltaf með smáá­hyggjur. Það er það sem ger­ist þegar maður fær svona fréttir, þetta fer aldrei frá manni. En ég er ekki að hugsa um þetta á hverjum degi, fjarri því, og bara held áfram.“

Hægt er að nálg­ast við­talið í heild sinni hér.

Setið um heim­ili Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra Íslands­banka í hrun­inu: „Ég skildi alveg reið­ina“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við