Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Setið um heimili Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í hruninu: „Ég skildi alveg reiðina“

Setið um heimili Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í hruninu: „Ég skildi alveg reiðina“

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, rifjar hér meðal ann­ars upp reið­ina í hennar garð í kjöl­far hruns­ins þar sem stundum var setið um heim­ili hennar. Hún hafði greinst með brjóstakrabba­mein ári áður og það hjálp­aði að hafa nóg að gera í vinn­unni þegar hún gekk í gegnum það. „Maður er alltaf með smáá­hyggjur,“ segir hún um áhrif þess að hafa greinst á sínum tíma. Birna svarar meðal ann­ars þeirri spurn­ingu í við­tal­inu hvernig sé að kom­ast af í þessum harða heimi og nefnir hún til dæmis það að hafa gott fólk í kringum sig og vera auð­mjúk. Banka­stjór­inn seg­ist halda að allir séu sam­mála um að pen­ingar skipti máli, sér­stak­lega ef fólk hefur ekki nóg af þeim, og hún segir að í dag ríki önnur við­horf en í hrun­inu. Eða fyrir hrun. Svo er það heims­far­ald­ur­inn sem hefur leikið mörg fyr­ir­tæki grátt og nefnir Birna nýsköpun sem hún telur að verði fjórða sterka stoðin undir efna­hags­lífið. „Alltaf þegar eru áföll, þá koma út úr því ein­hver tæki­færi og ég held að það sé mik­il­vægt að við grípum þau.“

„Ég skildi alveg reið­ina og hún braust svona út. Þetta var óþægi­legt; ég átti unga dóttur. En ég skildi að þetta var útrás fyrir reiði sem var alveg rétt­læt­an­leg,“ segir Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­son þegar rifjað er upp að reiði almenn­ings í hrun­inu beind­ist meðal ann­ars að banka­stjórum og var setið um heim­ili hennar.

Var hún aldrei hrædd?

„Jú, örugg­lega. Það fennir sem betur fer vel yfir þennan tíma.“

Birna, sem var banka­stjóri Glitnis á þessum tíma, óskaði eftir því haustið 2008 við Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) að það tæki kaup einka­hluta­fé­lags í hennar eigu á hluta­bréfum í Glitni banka hf., sem reyndar aldrei voru fram­kvæmd, til skoð­unar en þetta kom fram í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér vegna umfjöll­unar fjöl­miðla um málið. Í yfir­lýs­ing­unni sagði Birna meðal ann­ars: „Ég hef ekk­ert að fela í þessu máli og upp­lýsti stjórn­ar­for­mann bank­ans um málið áður en starfs­samn­ingur var und­ir­rit­aður. Engin laun­ung þarf að vera í þessu máli – hvorki af minni hálfu né ann­arra.“

Á heima­síðu Íslands­banka segir um feril Birnu: „Á árunum 1998 til 2004 starf­aði Birna sem vöru­stjóri hjá Royal Bank of Scotland. Birna starf­aði jafn­framt sem fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs Íslands­banka en hafði áður gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­mála, úti­bús­stjóra og mark­aðs­stjóra hjá Íslands­banka. Hún hefur jafn­framt starfað sem mark­aðs­stjóri Íslenska útvarps­fé­lags­ins, Stöðvar 2 og Íslenskrar get­spár. Birna hefur einnig, meðal ann­ars setið í fram­kvæmda­stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráðs Íslands. Birna er með Cand.Oecon.-gráðu í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Háskól­anum í Edinborg.“

Það var verið að stilla bank­anum upp aftur eftir hrun o

Það var í októ­ber 2008 sem Birna var ráðin banka­stjóri Íslands­banka; þegar reiðin kraum­aði í land­anum svo stundum sauð upp úr, hlutum var kastað í Alþing­is­húsið og Stjórn­ar­ráðið og fólk barði á potta og pönnur í bús­á­halda­bylt­ing­unni, en hvorki kraum­aði né sauð upp úr pott­unum sjálfum í það skiptið. „Það var verið að stilla bank­anum upp aftur eftir hrun og til þess að taka við hluta af þessum efna­hags­reikn­ingi sem Glitnir var með og ég var bara beðin um að taka það að mér. Ég bjóst ekki við að það yrði í svona mörg ár; ég hélt að það yrði bara tíma­bundin ráð­stöfun. En við unnum úr þessu og þetta hefur gengið vel og síðan eru liðin 13 ár.“

Birna fór í við­tal hjá Inga Frey Vil­hjálms­syni blaða­manni á DV, en blaðið hafði fjallað um kúlu­lán sem hún hafði fengið. „Ég hafði ekk­ert að fela í neinum af þeim málum sem voru til umræðu. Ingi gerði þetta vel og við áttum gott spjall og náðum að vera á per­sónu­legum nótum. Ég held að þegar verið er að taka að sér svona starf eins og ég var í, á mjög erf­iðum tíma, þá þarf svo­lítið að gefa af sér og það þarf að sýna hvernig karakter maður er. Ég var að reyna að gera það í þessu við­tali.“ Birna tal­aði í því við­tali meðal ann­ars um stráka­klúbb­inn og slag­inn við að gera sig gild­andi. Birna talar um, nú á nýju ári í við­tali við Mannlíf, hve mikið hefur breyst. Hve við­horf og and­rúms­loftið í atvinnu­líf­inu hefur breyst mikið. „Við vorum á sér­stökum stað þegar ég ræddi við Inga en það hefur samt mikið breyst.“ Í við­tal­inu í DV útskýrði Birna að það hafi ekk­ert annað verið í boði en að taka kúlu­lán. „Þetta var hluti af því að vera í fram­kvæmda­stjórateymi á þeim tíma og auð­vitað þáði maður það og gerði það. Þetta var kúlt­úr­inn og hefur hann mikið breyst? Ég veit það ekki. Ég held að fólk skoði þetta með aðeins öðrum hætti núna og hugsi um afleið­ing­arnar af því.“

Brjóstakrabbamein

Birna greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2007, 45 ára gömul. Ári fyrir hrun. Ári áður en hún tók við banka­stjóra­stöð­unni. Hún segir að það hafi verið áskorun að glíma við það á þeim tíma að henda sér bara beint í djúpu laug­ina.

„Töl­fræðin segir að 10% kvenna geti lent í því, þannig að við erum heppnar, konur á Íslandi, að þetta hefur gengið svo vel og lífslík­urnar eru svo miklar að við verðum að horfa fram á það og vera með bjart­sýn­ina að leið­ar­ljósi þegar er verið að eiga við svona. Mér tókst það nokkuð vel og ég var heppin. Þetta gekk allt vel. En auð­vitað er maður reynsl­unni rík­ari eftir svona reynslu.

Það var auð­vitað skelfi­legt að fá þessa frétt – að vera með brjóstakrabba­mein.

„Þegar maður fær svona fréttir þá á maður bara eina ósk: Að maður lækn­ist. Áður átti maður svo margar óskir, en allt í einu átti maður bara eina. Maður eign­að­ist aftur þessa drauma þegar maður komst í gegnum það; auð­vitað gerði maður sér grein fyrir mik­il­væg­inu, en það var gott að finna það að aftur komu draumar og óskir um ýmis­legt þegar maður var kom­inn yfir þetta að mestu leyti.“

Maður er alltaf með smáá­hyggjur. Það er það sem ger­ist þegar maður fær svona fréttir, þetta fer aldrei frá manni.

Birna talar um hve vinnan var henni mik­il­væg. „Það sem var að ger­ast kom mér svo­lítið í gegnum þetta af því að maður var upp­tek­inn í öðru en bara að hugsa um sjálfan sig. Kannski er það þess vegna sem ég er enn þá á þessum stað; ég lærði að meta það hvað vinnan er mik­il­væg og hvað hún gefur manni mik­inn kraft.“

Birna missti hárið vegna lyfja­með­ferðar og það var erfitt. Þá grét hún.

„Ég var að vinna og að reyna að kom­ast í gegnum dag­inn og ég var alltaf með hár­kollu. Ég sé þegar við erum að tala um aukið sjálf­stæði og sjálfs­ör­yggi kvenna að nú eru fáar að nota hár­kollu. Þær ganga um með ekk­ert hár. Mér fannst það ekki koma til greina á þeim stað sem ég var á á þeim tíma. Þetta er kannski eitt merki um hvernig sjálfs­traust kvenna hefur auk­ist í atvinnu­líf­inu.“

2007. Það eru 15 ár á þessu ári síðan Birna greind­ist.

„Maður er alltaf með smáá­hyggjur. Það er það sem ger­ist þegar maður fær svona fréttir, þetta fer aldrei frá manni. En ég er ekki að hugsa um þetta á hverjum degi, fjarri því, og bara held áfram.“

Gufugatið

Birna Ein­ars­dóttir er stúd­ent frá Verzlunarskóla Íslands og síðan lauk hún námi í við­skipta­fræði og  er með MBA-gráðu eins og þegar hefur komið fram.

„Þetta er ein­hver for­múla. Ég byrj­aði fljót­lega í banka­geir­anum og heill­að­ist af því. Mér finnst sá geiri mjög spenn­andi. Ég hélt síðan út og vann hjá Royal Bank of Scotland í sex ár og lærði þar nátt­úr­lega heil­mikið. Svo kom ég aftur heim.

Ég segi oft við þessar ungu konur að þær þurfi að vera við gufugatið.

Ég var heppin á þessum tíma, þegar ég var að útskrif­ast og var að koma úr námi, en þá voru tæki­færi fyrir menntað fólk fjöl­mörg og þau voru á góðum stað í skipu­ritum fyr­ir­tækj­anna. Ég held að fólk sem er að koma úr master­námi núna þurfi að sætta sig við að byrja kannski á enn lægra þrepi, sem við höfum öll gott af, þannig að ég var á réttum tíma og fékk tæki­færi. Svo var ég að vinna með góðu fólki sem gaf mér tæki­færi og sem ég lærði af. Þegar ég er að mentora ungar konur, sem ég geri tölu­vert af og gef mér tíma í, þá segi ég oft að tæki­færin komi ekk­ert af sjálfu sér og að þær þurfi að hafa fyrir þessu. Og það er alveg mín reynsla. Ég segi oft við þessar ungu konur að þær þurfi að vera við gufugatið og það fyndna er að þær vita ekk­ert hvað það þýðir; það er að maður þarf að vera þar sem eitt­hvað er að ger­ast og maður þarf að vera við­bú­inn að grípa tæki­færin og koma sér á fram­færi. Ég held að það sé enn þá mjög mik­il­vægt fyrir ungar konur að vera með­vit­aðar um að þær þurfa að hafa fyrir því að sækja sér þau störf sem þær langar til.“

Birna var ráðin fram­kvæmda­stjóri hjá Íslenskum get­raunum eftir nám, sem hún segir að hafi verið svo­lítið grín af því að hún kunni ekk­ert í fót­bolta.

„Ég held að 14 hafi sótt um og ég var eina konan; þarna var bara fram­sýnt fólk sem hugs­aði hvort það væri ekki bara gaman að breyta til þannig að ég fékk skemmti­legt tæki­færi þar. Ég var þar í ein­hver ár og fór síðan í banka­geir­ann. Ég fór til Vals Vals­sonar í Iðn­að­ar­bank­anum og tók þátt í sam­ein­ingu fjór­bank­anna, sem var afar spenn­andi; það er ótrú­lega langt síðan, en maður er búinn að vera svo lengi í brans­anum. Síðan fór ég til Skotlands og svo kom ég hingað aftur í Íslands­banka sem þá var.“

Karlar og konur

Birna er spurð hvernig hún fari að því að kom­ast af í þessum harða heimi.

„Með því að hafa gott fólk í kringum mig og vera svo­lítið auð­mjúk og vinna bæði með starfs­fólki og við­skipta­vinum. Ég held að það sé leiðin í þessu.“

Konur versus karlar í þessum harða heimi.

„Þetta hefur nátt­úr­lega mikið breyst en töl­fræðin sýnir okkur eðli­lega að það eru ekki margar konur sem stjórna fyr­ir­tækjum á Íslandi í dag; ekki bara á Íslandi heldur alþjóð­lega líka. Auðvitað er þetta að breyt­ast smám saman, en ég held að við eigum eftir að sjá breyt­ingar og hvers vegna held ég það? Því að ég sé í fram­kvæmda­stjóra­lag­inu í flestum fyr­ir­tækjum í dag að þar er orðin nokkuð góð blanda, þannig að þetta á eftir að skila sér upp. Ég er sann­færð um það.“

Banka­stjór­inn er spurður hvort munur sé á körlum og konum í stjórn­enda­stöðum.

Það er eins og konur séu aðeins sterk­ari í fram­kvæmd­inni en karl­menn gefa út að þeir séu sterk­ari í stefn­unni.

„Þetta er góð spurn­ing og ég hef velt þessu heil­mikið fyrir mér. Við gerum starfs­manna­könnun á hverju ári þar sem við mælum alla leið­tog­ana inn­an­húss, alla sem eru stjórn­endur hjá okkur og hvernig þeir standa sig sem stjórn­endur, og ég hef aðeins látið gefa mér nið­ur­stöður milli kynj­anna. Það er eig­in­lega eng­inn munur á þeim. Það er eins og konur séu aðeins sterk­ari í fram­kvæmd­inni en karl­menn gefa út að þeir séu sterk­ari í stefn­unni. Það er nán­ast hægt að segja að það sé ekki neinn munur. Mér finnst þetta vera áhuga­vert, en það gæti haft eitt­hvað með fyr­ir­tækja­menn­ing­una hjá okkur að gera, þannig að ég veit ekk­ert hvernig þetta er almennt. En þetta er eitt­hvað sem væri áhuga­vert að skoða.

Ég held að karl­stjórn­and­inn sé líka að breyt­ast þannig að hann er að taka upp gildi sem hafa tölu­vert breyst líka. Þannig að ég held að það verði minni munur og að við verðum búin að finna leið­ina í þessu.

Þetta er á réttri leið. En þetta ger­ist nátt­úr­lega afar hægt. Ég held að allir séu nú sam­mála um það.“

Peningar

„Money makes the world go round“ söng Liza Minelli í söng­leikja­mynd­inni Cabaret. Hvað finnst banka­stjór­anum um pen­inga?

„Ég held að allir séu sam­mála um að pen­ingar skipta máli, sér­stak­lega ef fólk hefur ekki nóg af þeim, og auð­vitað upp­lifa þeir það sem eru í vand­ræðum, en það hefur mikil áhrif á líf þeirra. Það er sýn Íslands­banka að vera hreyfi­afl til góðra verka. Það er kannski þess vegna sem mér finnst vera gaman að vera í banka og mér finnst fjár­mála­geir­inn vera áhuga­verður, því mér finnst við oft ná því að láta svona drauma ræt­ast; bæði varð­andi atvinnu­lífið og varð­andi það að ungt fólk er að kaupa sér fast­eignir og svo fram­vegis. Ég lít á pen­ing­ana svo­lítið þannig hvað þeir geta verið mikið hreyfi­afl til góðra verka bæði fyrir sam­fé­lagið í heild sinni og síðan fyrir fjöl­skyldur og fyr­ir­tæki.“

Hvað ráð­leggur svo banka­stjór­inn ungu fólki sem er að koma sér fyrir í líf­inu og byggja upp eigin efna­hag?

„Það þarf að gera sér svo­lítið raun­hæf mark­mið, en ég verð líka að segja að það verður líka að vera aðeins kjarkað; að hafa hug­rekki til að stíga skrefið.“ Hún talar um þegar ungt fólk veltir fast­eigna­kaupum fyrir sér, sem sé stór og mikil ákvörðun, sé gott að banki fái að taka þátt í því. „Það þarf að sýna ákveðið hug­rekki. En skyn­semi að sjálf­sögðu.“

Það er bara allt betur und­ir­búið, bank­arnir gera líka meiri kröfur um upp­lýs­inga­gjöf og svo fram­vegis og fyr­ir­tækin eru þar líka.

Birna er spurð hvort eitt­hvað hafi breyst síðan í hrun­inu, hvort sama brjál­æðið sé í gangi eða jafn­vel hvort það séu önnur við­horf.

„Það eru allt önnur við­horf. Það er bara allt betur und­ir­búið, bank­arnir gera líka meiri kröfur um upp­lýs­inga­gjöf og svo fram­vegis og fyr­ir­tækin eru þar líka. Varðandi heim­ilin þá er neyt­enda­lög­gjöf sem gerir það að verkum að fólk þarf nákvæm­lega að vita hvað það þarf að greiða mikið. Þannig að það er bæði laga­legt umhverfi og almennt við­horf hefur líka breyst mikið. Margir spyrja núna hvort þetta sé ekki að fara í sama farið, en nei, ég er ekki þar. Mér finnst vera enn þá meiri hugsun í þessu og það er meira eigið fé í verk­efnum sem verið er að fara í en var þá. Og það hjálpar svo mikið þessum verk­efnum.“

Nýsköpun

Covid 10. Heims­far­ald­ur­inn. Hvað segir Birna um horf­urnar? Efna­hags­horf­urnar?

Þegar þessi heims­far­aldur kemur yfir okkur erum við á betri stað en þegar við berum þetta saman til dæmis við þegar við lentum í síð­asta stóra áfalli, sem var 2008.

„Covid er búið að vera mjög erfitt, fyrir ferða­þjón­ust­una sér­stak­lega, og við erum með marga slíka kúnna. 9% af lána­safni okkar er til ferða­þjón­ust­unnar. Mér finnst kúnn­arnir okkar hafa staðið sig ótrú­lega vel, sýnt ótrú­lega getu í að kom­ast í gegnum þetta með útsjón­ar­semi og bjart­sýni, í sjálfu sér. En auð­vitað er þetta búið að vera mjög erfitt tíma­bil. Rík­is­stjórnin og ríkið hefur líka stutt mjög vel við fyr­ir­tækin og það sem var kannski gott í þessu var að staðan í íslensku efna­hags­um­hverfi var með þeim hætti að bæði gat ríkið komið inn með stuðn­ing, fyr­ir­tæki voru minna skuld­sett en áður og heim­ilin voru líka minna skuld­sett. Þegar þessi heims­far­aldur kemur yfir okkur erum við á betri stað en þegar við berum þetta saman til dæmis við þegar við lentum í síð­asta stóra áfalli, sem var 2008. Við vorum á allt öðrum stað, en auð­vitað er þetta búið að vera mjög erfitt hjá mörgum fyr­ir­tækjum og við þurfum nátt­úr­lega að sjá ferða­þjón­ust­una dafna og við þurfum að fá ferða­menn­ina aftur til þess að efna­hags­líf Íslend­inga verði aftur á þeim stað sem við viljum sjá það. En ég held á sama tíma, eins og alltaf þegar við lendum í áföllum, að þá bygg­ist upp eitt­hvað nýtt; það kemur eitt­hvað nýtt út úr því líka; eins og ferða­þjón­ustan kom upp úr síð­ustu áföllum þá held ég að núna sé það þessi nýsköpun – ég held að við séum að fara að búa til fjórðu sterku stoð­ina undir efna­hags­lífið. Alltaf þegar eru áföll þá koma út úr því ein­hver tæki­færi og ég held að það sé mik­il­vægt að við grípum þau.“

Hlað­varps­við­tal við Birnu er að finna hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi