Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Haukur um Heimskautagerðið: „Verkið er byggt á lík­ani og teikn­ingum frá mér- virða ber rétt minn“

Haukur um Heimskautagerðið: „Verkið er byggt á lík­ani og teikn­ingum frá mér- virða ber rétt minn“

„Það er mér afar þung­bært að aðstand­endur verks­ins vilji sölsa undir sig hug­mynd mína og gera lítið úr og breyta hug­verki mínu. En það er ótækt að vinna með aðstand­endum þegar svona er farið að.

Það verður að ná sáttum og allra fyrsta skrefið í því er að stjórn heim­skauts­gerð­is­ins við­ur­kenni ský­laust að þarna er um mitt höf­und­ar­verk að ræða og að virða beri höf­unda- og sæmd­ar­rétt minn. Við eigum jú sam­eig­in­legt mark­mið, og það er að verkið rísi full­klárað.“

Í frétt á MBL árið 2004 var gerð skil á hug­mynd­inni. Þar segir:

„Hug­myndin er u.þ.b. sex ára gömul, er Erlingur Thorodd­sen, hót­el­stjóri á Hótel Norð­ur­ljósum, fór að velta fyrir sér hvernig hægt væri að fanga sól­ar­ljósið á þessum sér­stæða stað, þar sem sjón­deild­ar­hring­ur­inn er hreinn í 360°. Hann reif­aði þessi mál við nokkra lista­menn og Haukur Hall­dórs­son fékk strax áhuga og kom norður á Rauf­ar­höfn til að skoða aðstæður. Mel­rakka­ás­inn ofan við þorpið var eins og snið­inn fyrir hug­mynd­ina. Þeir Erlingur og Haukur skipt­ust á hug­myndum í nokkur ár. Haukur gerði nokkur líkön og skissur, þar til þeir voru orðnir ásáttir um hvað hug­myndin ætti að ganga langt.“

Heimskautagerðið – Hluti af tímabilum goðanna

Heim­skauts­gerðið er um 50 metrar í þver­mál, 6 metra há hlið vísa til höf­uð­átt­anna.  Í miðju hrings­ins er 10 metra há súla  á fjórum stöplum, sem áform eru uppi um að skarti krist­altoppi sem brýtur sól­ar­ljósið og varpar geislum sólar um allt Gerðið.  Fjórir skúlp­t­úrar eru inní Gerðinu hvert með sínu sniði. Pól­stjörnu­bendir sem vísar á Pól­stjörn­una.  Hásæti sólar þar sem birtan í ákveð­inni stöðu boðar sum­ar­komu. Geisla­kór er rými á milli hárra stöpla þar sem hægt  verður að setj­ast niður, tæma hug­ann og end­ur­nýja orku sína.  Altari elds og vatns sem virkjar frum­kraft­ana.

Inn í Gerðinu verður árhringur dverga, steinar sem hver um sig tákna ákveð­inn dverg.  Þessir dvergar eru alls 72 tals­ins og er getið í íslenskum forn­bók­menntum.  Með þeim fjölda á hver dvergur sitt „vik“ í árinu, ef miðað er við 5 daga viku.  Með því að tengja nöfn dverg­anna við árs­tíðir, eins og til dæmis nafnið Vetr­ar­faðir á fyrsta vetr­ar­dag þá ganga nöfnin upp eftir því hvar í árinu þeir lenda sem myndar 72 vikur.

Árhringur dverga er þannig orð­inn eins­konar alm­anak, þar sem hver dvergur ræður 5 dögum.  Til dæmis Vár­kaldur í viku vors, Bjartur í viku sum­ars þegar nætur eru bjartar og Dvalinn í haust­viku þegar allt leggst í dvala fyrir vet­ur­inn. Enginn hefur getað útskýrt til­urð eða hlut­verk dverg­anna í Völuspá nema þeirra Austra, Vestra, Norðra og Suðra, sem halda uppi himn­inum.

Í hug­mynda­fræði Heim­skauts­gerð­is­ins hefur öllum dvergum verið gefið hlut­verk og þeir verið per­sónu­gerðir.  Þannig er hægt að tengja dverg­ana við afmæl­is­daga og mynda tengsl við þá. Dverg­arnir eru svo hluti af tíma­bilum goð­anna sem eru gömlu mán­uð­irnir.  Þegar á árið er litið sést að það eru 6 dvergar sem til­heyra hverjum (gamla) mán­uði og hver mán­uður til­heyrir ákveðnu goði.

Hliðin, Austri, Vestri, Norðri og Suðri, á milli stöplanna vísa mót höf­uð­átt­unum, þannig að mið­næt­ur­sólin sést frá suð­ur­hliði gegnum miðsúlu og norð­ur­hlið, á sama hátt og sól­ar­upp­rás sést frá vest­ur­hliði í gegn um miðsúlu og aust­ur­hlið.  Samspil ljóss og skugga sýnir eykta­mörkin.
Heim­skauts­gerðið er 50 km frá Kópa­skeri, 54 km frá Þórhöfn og 154 km frá Húsavík. Hér má sjá leið­ina.

Verkið er byggt á lík­ani og teikn­ingum frá mér

Haukur L. Hall­dórs­son, höf­undur að Heim­skauts­gerð­inu á Rauf­ar­höfn, tjáir sig í fyrsta sinn um deilur um höf­undar- og sæmd­ar­rétt á verk­inu í opnu bréfi.

Nú, í byrjun árs 2022 er ég í ákaf­lega und­ar­legri stöðu gagn­vart hug­mynd minni að Heim­skauts­gerð­inu sem er að rísa við Rauf­ar­höfn. Sú hug­mynd tók á sig mynd þegar ég var að gera líkan að Eddu­heimum í kringum árið 2003.

Líkanið var gert í Straumi þar sem ég var með vinnu­stofu, en við Sverrir Örn Sig­ur­jóns­son vinur minn mynd­uðum saman Vík­inga­hring­inn ehf. á þessum sömu árum.

Líkanið var um 10fm með öllum þeim útskýr­ing­um, nöfnum og teng­ingum milli heima sem ég gat upp­hugsað eftir að hafa lesið skrif Snorra, vit­an­lega hið mikla kvæði Völu­spá og rit ann­arra því tengdu. Þetta er efni­viður sem mér hefur verið hug­leik­inn alla mína starfs­tíð.

Haukur við líkan sem hann gerði af vík­inga­þorpi frá 2002 (þarna er þessi hugsun með hlið í höfuð áttir, eins og vé. Mynd: Gunnar Hall­dórs­son

Morg­un­blað birti umfjöllun þann 5. des­em­ber s.l. þar sem blaða­maður talar við dóttur mína Gunn­hildi Hauks­dóttur og við Guð­nýju Hrund Karls­dótt­ur, sem veitir félagi um Heim­skaut­gerðið for­mennsku. Þar lætur sú síð­ar­nefnda í veðri vaka þáttur minn sé minni­hátt­ar. Að stjórn hafi ítrekað reynt að leita sátta og hafi þurft að kalla til verk­fræð­inga og aðra hönn­uði svo verkið gæti orðið að veru­leika, og vilja þess vegna ekki sam­þykkja að ég sé höf­undur verks­ins, og virð­ist vilja gera lítið úr hug­verki mínu.

Ég vil árétta að verkið er byggt á lík­ani og teikn­ingum frá mér, er mitt hug­verk og það hefur aldrei staðið á mér að veita ráð­gjöf um verk­ið. Það hefur hins­vegar aldrei verið haft sam­band við mig.

Heim­ildir:

Kjarninn. Slóð.

Mbl. Slóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil