Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lífssýn föður Svandísar lifir með henni í störfum hennar: „Mikilvægast af öllu að gera gagn“

Lífssýn föður Svandísar lifir með henni í störfum hennar: „Mikilvægast af öllu að gera gagn“
Svandís Svav­ars­dóttir henti sprengju inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Svandís Svav­ars­dóttir, nýskip­aður sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra, var við­mæl­andi Guðna Ágústs­sonar, fyrr­ver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra, í hlað­varpi hans Land­bún­að­ar­ráð­herra Mannlífs á dög­unum. Þau fóru um víðan völl; töl­uðu um líf og upp­vöxt Svan­dísar, föður hennar heit­inn sem lést á síð­asta ári og áskor­anir sem eru framundan í nýju ráðu­neyti.

Man ennþá lyktina úr mjólkurbúinu

Svandísi er land­bún­aður í blóð bor­inn. Þótt hún hafi alist upp í Reykja­vík voru báðir for­eldrar hennar utan af landi.

„Pabbi var alinn upp í Dölum, mest­an­part, og var ætt­aður úr Borg­ar­firði og Dölum. Mamma var alin upp á Selfossi en var ættuð úr Breiða­firði og af Ströndum. Þannig að þetta eru svona mínar rætur og ég hef sótt í þær heil­mikið í gegnum tíð­ina. Ég var í sveit fyrir vestan; bæði í Dölum og svo líka á Ströndum. Svo hef ég heil­mikið verið í Breiða­firði og kynnst eyja­líf­inu þar. Ég var heil­mikið hjá afa og ömmu á Selfossi sem krakki, afi vann í Flóa­bú­inu og amma vann í kaup­fé­lag­inu Höfn, eða í hafn­ar­sjopp­unni sem svo var kölluð. Þannig að ég hef líka miklar teng­ingar við Suð­ur­land, þar sem mamma og hennar systk­ini ólust upp og Gummi frændi minn spil­aði í Mánum, sem þótti nú flott­ast af öllu á þeim tíma.“

Svandís rifjar upp veru sína hjá ömmu sinni og afa á Selfossi. „Ég man ennþá lykt­ina, af því að ég fór stundum með afa í mjólk­ur­búið sem stelpa. Ég man þessa súru mysu­lykt sem var inni, sér­stak­lega í osta­gerð­inni. Þar var nátt­úru­lega mikil áhersla á hrein­læti og óskap­lega mikið vandað til verka. Afi sagði alltaf að það kynnu engir að búa til osta nema Flóamenn. Hann lagði mikið upp úr því að eiga góða osta.“

Svandís segir að þegar hún hafi tekið við hinu nýja ráðu­neyti og sett þau gler­augu á sig, hafi hún séð hversu djúpt hennar eigin rætur tengj­ast land­bún­aði.

„Auðvitað hefur land­bún­aður lifað með þjóð­inni allt frá land­námi. Þetta hefur alltaf verið partur af dag­legu lífi fólks í land­inu og alþýð­unnar hér.“

Guðni Ágústs­son og Svandís Svav­ars­dóttir

Kýrnar með heimspekilegt yfirbragð

Svandís fór tölu­vert í sveit sem krakki og vann þar hin ýmsu verk, til dæmis að sækja kýrnar og hjálpa til við hvað það sem féll til, bæði inn­an­húss og utan. Hún telur sig hafa verið hinn ágætasta kúasmala.

„Mér fannst alltaf dálítið gaman að kúnum. Þær hafa svona ákveðið heim­speki­legt yfir­bragð. Svo var auð­vitað ekk­ert sem jafn­að­ist á við það að vera krakki í stórum krakka­hópi í hey­skap, þegar allir voru rifnir upp og hent út af því að það var von á rign­ingu og það þurfti að koma öllu í hús, einn, tveir og þrír.“

Svandís Svav­ars­dóttir

Fór í táknmálsfræði en ætlaði sér ekki í pólitík

Svandís kláraði stúd­ents­próf sitt frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð, meira og minna utan skóla.

„Tvö heil ár var ég utan skóla. Ég fór þá fljót­lega að eign­ast börn upp úr því og lærði svo í Háskól­anum almenn mál­vís­indi, sem svo voru kölluð. Síðan íslenska mál­fræði byggt á því og fór svo í íslenskt tákn­mál. Ég var í masters­námi í íslenskri mál­fræði og eftir að ég hætti þar í háskól­anum þá fór ég að vinna á Sam­skipta­mið­stöð heyrna­lausra, þar sem ég vann við alls­konar frum­kvöð­ulsverk­efni í raun og veru, með sam­fé­lagi þeirra sem nota tákn­mál sem sitt fyrsta mál, í því skyni að byggja upp tákn­máls­menntun við Háskóla Íslands. Tákn­máls­fræði og tákn­mál­stúlkun svo seinna. Svo var ég kenn­ari við þá deild í all­nokkur ár eftir að hafa byggt hana upp með fleira góðu fólki.“

Svandís hafði framan af aldrei sér­stakan metnað fyrir því að fara í pólítík – enda hafði hún ber­sýni­lega í nógu að snú­ast.

„Ég byrja til­tölu­lega seint í póli­tík, því það var aldrei planið. Ég er 42 ára þegar ég fer í borg­ar­stjórn. Ég hef alltaf brunnið mikið fyrir sam­fé­lags­málum og hafði gaman af þess­ari rétt­inda­bar­áttu heyrn­ar­lausra, fyrir stöðu tákn­máls­ins og aðgengi að túlkum. En við pabbi töl­uðum alveg stans­laust um póli­tík og gerðum það frá því ég man eftir mér. Ég held að ég hafi vakað mína fyrstu kosn­inga­nótt 1971. Þá er ég sjö ára. Svo skýst pabbi þarna inn í þingið og beint í ráð­herra­stól­inn árið 1978.“

Pabbinn, pólitíkin og símtölin

Faðir Svan­dísar var Svavar Gestsson, alþing­is­maður og ráð­herra. Fyrst fyrir Alþýðu­banda­lagið og svo Sam­fylk­ing­una þegar hún var stofnuð. Seinna varð hann sendi­herra. Um upp­haf fer­ils Svavars í stjórn­málum rifjar Svandís upp:

„Hann þurfti að fara að kaupa sér tvenn jakka­föt, af því að hann átti engin.

En hann hættir svo í þess­ari póli­tík í þing­inu 1999 og er í raun og veru ungur maður, til þess að gera – 55 ára. Hann hafði þá verið í póli­tík, fyrst sem blaða­maður og svo sem þing­maður, í hart­nær 30 ár ef allt er talið. Af því að hann byrj­aði mjög ungur. Það er þá í raun­inni ekki fyrr en tíu eða ell­efu árum síðar sem ég fer í póli­tík.“

Hún rifjar upp allt til­standið og hasar­inn í kringum póli­tík­ina og þing­störfin eftir að faðir hennar fór út á þann vett­vang.

„Það þurfti alltaf að taka sím­töl, eins og það hét. Það þurfti að taka mikið af sím­tölum þegar heim kom. Ræða málin og fara yfir dag­inn í sím­anum. Svo nátt­úru­lega ræða við fjöl­miðla og svo fram­vegis. Ekki var gems­inn kom­inn, þannig að það þurfti að loka deg­inum í löngum sím­tölum þegar heim var komið.“

Svavar Gestsson lést árið 2021.

„Hann tal­aði alltaf um að það væri mik­il­væg­ast af öllu að gera gagn. Það hefur svo­lítið lifað með mér, ekki síst eftir að hann kvaddi alltof snemma. Að hugsa til þess hvað það er mik­il­vægt að gera gagn og að vera frekar í því að leysa mál heldur en að skapa vanda­mál.“

Svandís segir mik­inn kraft hafa verið í föður sínum. „Mikill kraftur og í raun og veru alveg fram á síð­asta dag. Hann var á leið vestur með hross, eins og venju­lega, þegar hann fékk áfallið. Og það tók hann á rúm­lega hund­rað dögum.“

Svavar Gestsson

Vildi komast aftur vestur

Teng­ingin við sveitir lands­ins var afar sterk í föður Svan­dísar og for­eldrar hennar byggðu sér skóg­ar­jörð á seinni árum.

„Það var alltaf svona hans draumur að loka þessum hring og kom­ast aftur vestur. Hann var nátt­úru­lega alinn upp þarna í Dölum og að hluta til í Reykja­vík, og fór svo víða um lönd og álfur seinna. En hann þráði það alltaf að kom­ast aftur vestur og þar voru þau með bæði skóg­rækt og æðar­varp. Hann hafði sér­stakar mætur á æðar­varp­inu og allskyns búskap. Svo var hann nátt­úru­lega alltaf með hrossin, sem voru mjög mikið hans líf og yndi og sner­ust í raun og veru um það að það var ákveð­inn þráður frá hross­unum sem voru fyrir vestan þegar hann var strákur. Hann var mjög trúr þessum upp­runa sínum.“

Ekki bara pólitískir bandamenn – heldur líka vinir

Þær stöllur, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís hafa unnið saman um langa hríð og semur vel.

„Við höfum unnið saman og talað saman upp á hvern ein­asta dag síðan 2009, í raun og veru sam­fleytt í tólf ár. Við tvær erum þær einu sem eru á svið­inu ennþá úr rík­is­stjórn Jóhönnu og Stein­gríms, fyrir utan Oddnýju Harð­ar­dóttur – og erum ennþá í rík­is­stjórn. Þannig að við erum í annað skiptið að ljúka fjög­urra ára kjör­tíma­bili innan rík­is­stjórnar. Við erum ekki bara póli­tískir banda­menn, heldur erum við líka vinir. Dálítið gaman að segja frá því að við erum líka nágrannar. Við búum í blokkum við Hjarð­ar­haga og Dunhaga. Þannig að við gætum gert svona eins og mann dreymdi alltaf um sem barn, að setja svona línu á milli frá svöl­unum á einni íbúð yfir í sval­irnar á næstu íbúð og draga svo skila­boð á milli. Við gætum gert það – ef GSM-símar væru ekki komnir.

En það er mögnuð sam­staða sem hefur verið á milli okkar allan þennan tíma og ég þakka það fyrst og fremst því að hún er nátt­úru­lega eit­ur­snjöll og mjög skörp og okkur hefur lán­ast að halda í húmor­inn og gleð­ina allan tím­ann.

Hún er alveg ein­stak­lega far­sæl í því að leiða saman ólík sjón­ar­mið og koma fólki að nið­ur­stöðu – og láta fólk tala saman. Það er það sem skiptir öllu máli í póli­tík, fyrr og síðar, að geta leitt saman ólík sjón­ar­mið og fært sam­fé­lagið áfram til góðs.“

Sjálfbær og grænn landbúnaður í öndvegi

Svandís er bjart­sýn og spennt fyrir kom­andi verk­efnum í land­bún­aði á Íslandi.

„Við ætlum að byggja upp mat­væla­ráðu­neyti þar sem land­bún­aður er í önd­vegi. Þar sem sjáv­ar­út­vegur snýst um gæða­fram­leiðslu á sjáv­ar­fangi. Þar sem við horfum ennþá meira til þess sem er grænt og vænt heldur en við höfum áður getað gert. Þar sem við horfum meira til fæðu­ör­yggis heldur en við höfum áður gert, sem snýst um það að landið sé sjálf­bært um mat­væla­fram­leiðslu í hæsta gæða­flokki fyrir íbúa þess. Það getum við líka gert með því að efla líf­ræna fram­leiðslu, með því að efla áburð­ar­fram­leiðslu inn­an­lands og svo fram­vegis. Þarna eru fjölda­mörg sókn­ar­færi.

En þarna er ekki bara um atvinnu­grein að ræða, heldur erum við oftar en ekki að tala um fjöl­skyldu­búið, sem er svona ákveð­inn horn­steinn í þessu byggða­lega og menn­ing­ar­lega sam­hengi, sem við verðum líka að gæta að.

Maður finnur það á ungum bændum, að þar er mik­ill sókn­ar­hugur. En um leið miklar áskor­anir og ekki síst hjá sauð­fjár­bændum. Afkoman er ekki góð. Fólk býr við lítil efni og sumt hvert hrein­lega við fátækt. Það er ekki ásætt­an­legt. Þess þurfum við að horfa til þegar við leggjum grunn að nýjum búvöru­samn­ingi og öllu sem því fylgir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við