Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Líf Magneudóttir: Ég er liðtækur aðstoðarkokkur og held manninum mínum félagsskap með masi“

Líf Magneudóttir: Ég er liðtækur aðstoðarkokkur og held manninum mínum félagsskap með masi“

„Þegar ég var hjá ömmu minni Íbí sem krakki þá tók hún á það ráð að koma ofan í mig fiski með því að búa til rétt­inn Surtsey! Þá stapp­aði hún saman fisk, kart­öflur og smjör og bjó til fjall úr því. Síðan bjó hún til holu í mitt fjallið og lét leka tómatsósu niður „hlíð­arnar“. Þetta kall­aði hún Surtsey og ég borð­aði fisk­inn með bestu lyst. Til­þrifin þegar hún útbjó rétt­inn eru líka eft­ir­minni­leg.

Ég á líka minn­ingar frá því þegar mamma mín tók upp á að lita óhóf­lega allan skap­aðan mat eftir hátíð­is­dögum. 1. maí var allur matur rauður og á 17. júní var allt í fána­litum. Fimm ára afmælið mitt var líka lit­ríkt og allt sem var boðið upp á hafði mamma litað í regn­bog­ans litum. Þetta var dáldið flippað tíma­bili. Því miður áttum við enga mynda­vél á þessum tíma og því engar myndir til, en hefðum við átt hana hefði það ekki hvarflað að mömmu að eyða dýr­mætri filmu í að taka myndir af mat. Ólíkt því sem við þekkjum núna.“  Þetta segir Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, þegar Mannlíf spurði hana út það hvernig kokkur hún væri.

Líf Magneu­dóttir

Hvað er í matinn?

„Ég kann nokkra klass­íska ein­falda rétti – sem eng­inn á heim­il­inu fær leiða á því ég elda þá svo sjaldan. Annars er það mað­ur­inn minn sem er kokk­ur­inn og það fellur í hans hlut að brjóta heil­ann um hina dag­legu spurn­ingu: „Hvað er í mat­inn?“ Ég er hins vegar lið­tækur aðstoð­ar­kokkur og held honum félags­skap með masi og sker kannski niður græn­metið.“

Líf seg­ist elska eig­in­lega allt með hvít­l­auki og tómat­púrru.

„Ef það er nóg af öðru hvoru er ég sátt, sér­stak­lega ef það er hvít­laukur í réttum. Annars eru afganga­kvöldin oft best. Þá eru afgangar vik­unnar lagðir á borð og það er eitt­hvað fyrir alla. Við hendum aldrei mat og reynum að kaupa aldrei of mikið heldur bara akkúrat pass­legt. Það er samt alltaf eitt­hvað sem gengur ekki út og reglu­lega er boðið upp á afganga vik­unnar á heim­il­inu. Afganga-kvöld­verð­ur­innn hefur stundum leitt okkur á nýjar slóðir því stundum gerum við eitt­hvað nýtt úr þeim sem verður að sjálf­stæðum rétti.“

Royal-búðingur í litlum glösum

Aðspurð hvað henni finn­ist skemmti­leg­ast að nota í teitin segir hún:

„Það fer auð­vitað eftir til­efn­inu en heitir brauð­réttir og rækjur í chili og kórí­ander hafa gef­ist vel í okkar veislum. Mæli líka með Royal-búð­ingi í litlum glösum. Vekur alltaf lukku! Aðspurð hvað eigi að bjóða upp á í stórum veislum sting ég eig­in­lega alltaf fyrst upp á súpu. Og þá auð­vitað tómat­súpu með hvít­lauk. En það er ekki nema að ég geri hana sjálf að hún sé á boðstólum í okkar veislum.“

Hvernig er dæmigerður dagur hjá Líf?

„Ég bý til hafra­graut á hverjum ein­asta virka morgni fyrir mig og næstelsta strák­inn minn. Hann borðar graut­inn með hnetu­smjöri, döðlum og hafra­mjólk. Minn grautur er hins vegar aldrei alveg eins. Oft bæti ég hnetum, fræjum og berjum og ávöxtum við, en nota alltaf hafra- eða möndlu­mjólk. Allar hinar mál­tíðir dags­ins eru háðar aðstæðum; hvort ég sé á hlaupum að gera hitt og þetta eða á fundum eða hvort ég hafi yfir­höfuð tíma til að borða kvöld­mat. Stundum gleymi ég hrein­lega að borða allan dag­inn vegna anna. (Þarf að muna að eiga hnetur í poka í tösk­unni minni eða taka með mér epli á morgn­ana.)“

Mið­jarð­ar­hafs­fæði og jap­anska eld­húsið standa upp úr hjá Líf.

„Ég hef ann­ars í seinni tíð lagt áherslu vist­ker­a­fæði og reyni að kaupa sem mest líf­rænt þegar því verður við komið. Ferskir ávextir, pasta, græn­meti og nýbakað brauð er það sem mér finnst best.

Chili-rækjur

Poki af rækjum

lime/sítróna

ferskt engi­fer – rifið

2 chili – saxað niður

hand­fylli kórí­ander – saxað

ólífu­olía

Aðferð:

„Rækj­urnar settar í skál. Engifer, chili og kórí­ander skorið fínt niður. Safinn úr lime/sítrónu kreistur yfir. Látið liggja í góðri ólífu­olíu. Borið fram kælt. Ávextir, pasta, græn­meti og nýbakað brauð er það sem mér finnst best,“ segir Líf en bætir jafn­framt við að kjúklingur, naut og svín sé það allra versta sem hún viti um og hún biðji aldrei um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við